Velti lögreglubíl með hjólaskóflu 9. desember 2004 00:01
Maður gjöreyðilagði lögreglubíl með hjólaskóflu og er grunaður um að hafa reynt að kveikja í íbúðarhúsi sínu í Saurbæjarhreppi í Dölum um klukkan tvö í gær. Sýslumaður, lögmaður og lögregla voru stödd á bænum vegna uppboðs sem halda átti á eigninni. Ekki varð manntjón vegna berserksgangs mannsins. Maðurinn brást hinn versti við uppboðsaðgerðunum og velti lögreglubílnum tvær til þrjár veltur með stórri hjólaskófu sem hann hafði til umráða. Maðurinn lokaði sig einnig inni í íbúðarhúsinu og er hann grunaður um að hafa kveikt eld inni. Slökkviliðið var kallað á staðinn og þurfti að slökkva í glæðum og reykræsta húsið. Samkvæmt heimildum blaðsins kveikti maðurinn eld á tveimur stöðum í húsinu, í svefnherbergi á efri hæð og á öðrum stað á neðri hæð hússins. Brunatjón varð ekki mikið í húsinu en talsverðar reykskemmdir urðu. Lögregla náði að yfirbuga manninn sem var fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur. Lögreglan í Borgarnesi hefur lánað lögreglunni í Búðardal lögreglubíl þar til annar bíll fæst í stað þess sem skemmdist.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Benedikt Sveinsson er látinn Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Innlent Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Innlent Brynjar segir af sér Innlent Senda vopnaða menn á svæðið Innlent Fleiri fréttir Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli „Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi „Engar líkur á öðru en að þau endi á að fá alþjóðlega vernd“ Sjálfstæðismenn í borginni vilja samræmd próf aftur Sjá meira