Innlent

Stálu fimm fartölvum

Tveir menn um tvítugt voru, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdir í þriggja og fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og fíkniefnabrot. Mennirnir brutust saman inn í tölvuverslun og stálu þaðan þremur fartölvum samtals að verðmæti um sex hundruð þúsund króna. Yngri maðurinn játar sök en hann var einnig ákærður fyrir að hafa verið með tæpt gramm af amfetamíni í fórum sínum. Sá eldri neitaði sök. Dómurinn taldi hins vegar lögfulla sönnun fyrir sekt hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×