Menning

25 sinnum í viku

Elsku besta Ragga Ég held að ég sé í algjörlega kynóðu sambandi. Við kærastinn erum búin að vera saman í fjóra mánuði, og erum sjúk hvort í annað. Að meðaltali sofum við saman allt að 25 sinnum í viku. Jæts, mér finnst svakalegt að skrifa töluna. Samt líður mér vel og ég er bara nokkuð ánægð með allt þetta sex! Við erum rétt um tvítugt og kannski er þetta alveg innan eðlilegra marka. Samt fékk ég smá sjokk um daginn þegar ég lenti í nánum kynlífsumræðum með vinkonum mínum. Það kom í ljós að þær sem eru í samböndum eru að sofa hjá kannski þrisvar í viku og mér fannst flestum þykja það nokkuð góð frammistaða. Ég sagði undir lokin frá okkur og stelpurnar urðu frekar skrýtnar á svipinn... misstu eiginlega andlitið. Hvað finnst þér um þetta, elsku besta Ragga? Er þetta ekki alveg í lagi?  Kveðja, Kynóð kvensa í Vesturbænum Lestu um kynlífsráðgjöf Röggu í Magasíni sem fylgir DV í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.