Erlent

Um sextíu löggum rænt í Írak

Um sextíu íröskum lögregluþjónum var rænt þegar þeir sneru aftur til Íraks eftir að hafa fengið þjálfun í Jórdaníu. "Við vorum í kringum 65 lögreglumenn á leið heim úr þjálfun í Jórdaníu þegar um það bil tuttugu grímuklæddir og vopnaðir menn réðust á hótelið okkar í Trebil á sunnudagsmorgun," sagði Leith Naama al-Kaabi, einn þriggja lögreglumanna sem sluppu. Hann sagðist hafa sloppið þar sem félagi hans taldi árásarmönnum trú um að þeir væru bílasalar en ekki lögreglumenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×