Erlent

Tíu bandarískir hermenn fallnir

Sprengjum hefur rignt yfir Fallujah í Írak í nótt en áhlaup Bandaríkjahers og írakskra hersveita á borgina stendur þar nú sem hæst. Tilgangurinn er að uppræta skæruliðasveitir og bækisstöðvar hryðjuverkamanna þar en með öllu er óvíst hversu margir illvirkjanna eru enn í borginni. Talið er að nokkur fjöldi þeirra hafi flúið, auk þess sem erfitt er að greina á milli hvar óbreyttur borgari er á ferð og hvar ekki. Skriðdrekasveitir sem sendar voru inn í borgina mættu þar mikilli mótspyrnu og ekki færri en tíu bandarískir hermenn hafa fallið í bardögunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×