Sprengjur dynja á Fallujah 8. nóvember 2004 00:01
Harðir bardagar geisa í Fallujah í Írak eftir að forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar heimilaði bandarískum hersveitum að gera árás á uppreisnarmenn úr röðum súnníta. Sprengjuárásir dynja á borginni og hafa fjölmargir uppreisnarmenn fallið. Neyðarlög hafa tekið gildi í Fallujah, sem er skammt vestur af Bagdad, og útgöngubann ríkir vegna átakanna í borginni en fjöldi írakskra uppreisnarmanna hefur þar aðsetur. Flugvellinum í Bagdad hefur verið lokað vegna ástandsins og lýst hefur verið yfir sextíu daga neyðarástandi í Írak. Bandarískar og írakskar hersveitir gerðu harða árás á lestarstöð í Fallujah til að undirbúa frekari aðgerðir hersveitanna inni í borginni og segja sjónarvottar að sprengingar og skothvellir heyrist nú víða. Forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak gaf grænt ljós á árásina á Fallujah en spenna hafði vaxið undanfarna sólarhringa og árásir verið gerðar í skjóli nætur. Um fjörutíu uppreisnarmenn hafa þegar verið felldir af írökskum hersveitum. Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar í Írak, segir vandann ekki liggja í Fallujah, Mosul eða Najaf heldur í flökkusveitum hryðjuverkamanna. Stjórnin sé staðráðin í að hreinsa Fallujaf af hryðjuverkasveitum sem samanstandi af erlendum sveitum af þeim toga auk hersveita Saddams Husseins sem átt hafi þátt í að kúga íröksku þjóðina.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Albanska manninum fylgt úr landi í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira