Tíska og hönnun

Hálsbindi

Hálsbindi eins og við þekkjum þau í dag eiga sér rúmlega 100 ára sögu. Þau þróuðust frá hálsklútum sem karlmenn byrjuðu að bera á sautjándu öld. Fyrst voru klútarnir mjög einfaldir og einlitir en urðu svo efnismeiri og ívið skrautlegri, og margar mismunandi aðferðir voru við að hnýta þá. Klútarnir þóttu orðnir heldur fyrirferðarmiklir þegar karlmenn voru hættir að geta hreyft höfuðið án þess að líkaminn fylgdi með og tískuspekúlantar tóku þá að þróa þetta hálstau í einfaldari mynd. Hálsbindin hafa fest sig í sessi í karlmannatísku nútímans og endrum og sinnum detta þau einnig inn í kventískuna. Í mörgum atvinnustéttum karlmanna tilheyra bindi vinnufatnaði.

Hálsbindi eru til í ótal gerðum, nú eru bæði breið klassísk og mjórri bindi í tísku, röndótt eru alltaf vinsæl og einföld klassísk jakkaföt geta fengið á sig splunkunýja og ferska mynd sé rétta bindinu teflt með.

Vínrautt mjótt 2.900 kr. Gallerí Sautján Grátt með rauðum hringjum 6.980 kr. Boss Svart mjótt 5.590 kr. GK





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.