Menning

Honda CRF 450

Tryllitæki vikunnar er Honda CRF 450 mótorkrosshjól, árgerð 2004. Hjólið er upphaflega 101,5 kíló og 56 hestöfl. Í það var sett nýtt FMF títaníum pústkerfi sem minnkar þyngdina um 1 kíló og gefur meiri kraft. Einnig var skipt um tölvuheilann sem stjórnar mótornum. Þessar breytingar bæta 4 hestöflum við þannig að hjólið er nú 60 hestöfl. Fjöðruninni var breytt og RaceTech ventlar settir bæði að framan og aftan. Bremsudiskurinn að framan er stærri en sá upphaflegi svo nú hefur hjólið meiri bremsukraft. Settur var hnappur á stýrið sem gerir það að verkum að hægt er að velja tvær mismunandi kveikjukúrvur eftir því hvort óskað er eftir fullum krafti eða minni. Í dekkjunum eru Michelin svampslöngur en ekkert loft sem gerir það að verkum að ekki getur sprungið á hjólinu. Eigandi hjólsins er Ragnar Ingi Stefánsson sem vann íslandsmótið og bikarkeppnina í Mótorkrossi á þessu hjóli auk þess sem hjólið var í Honda-liðinu sem vann liðakeppnina. Hjólið er metið á 750.000 krónur. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×