Erlent

Yfirmanni góðgerðasamtaka rænt

Mannræningjar rændu yfirmanni alþjóðlegu góðgerðasamtakanna Care International í Írak í dag. Margaret Hassan hefur búið í Írak í þrjá áratugi en ekki er vitað hvar hún er nú niðurkomin. Fjórir írakskir þjóðvarðliðar féllu og áttatíu særðust í sprengjuárás á bækistöð þeirra norður af Bagdad í dag. Síðdegis var svo gerð sjálfsmorðsárás á bandaríska hervagnalest í borginni Habbaníja í Vestur-Írak. Loks sprengdu skemmdarverkamenn  hluta megin olíuleiðslunnar frá Norður-Írak í loft upp í nótt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×