Innlent

Ógnaði starfsstúlku með hnífi

Maður vopnaður hnífi gerði tilraun til að ræna verslun við Langholtsveg í Reykjavík um klukkan fimm í gær. Afgreiðslustúlka og tveir unglingspiltar voru í versluninni þegar ræninginn kom inn og krafði stúlkuna um peninga. Áður en til þess kom að hún léti nokkra peninga af hendi kom styggð að ræningjanum og hann hljóp á brott úr versluninni. Maðurinn huldi hluta andlits síns. Þegar blaðið fór í prentun í gær vann lögregla eftir vísbendingum um útlit mannsins og bifreiðar sem hann er talinn hafa notað til að komast á brott. Ræningjanum tókst ekki ætlunarverk sitt og fór tómhentur. Engan sakaði í ránstilrauninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×