Best að æfa á morgnanna 28. september 2004 00:01 "
Ég reyni að stunda nokkuð reglulega líkamsrækt yfir veturinn og fer þá yfirleitt í stöðvar eins og World Class eða aðrar sem ég get lyft lóðum í og komist á hlaupabretti," segir Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður. Á sumrin segist hún vera óskipulagðari. "Þá iðka ég meiri útiveru og fer bæði í gönguferðir og sund mér til heilsubótar, þramma jafnvel á fjöll. En veturinn er sá tími sem regla er á þessum hlutum. Þó ekki svo mikil regla því ég vil hafa það opið hvenær ég mæti í ræktina. Fer yfirleitt tvisvar í viku en ekki í fasta tíma. Bæði er það frekar erfitt í mínu starfi og líka þegar maður er með börn. Mér finnst best að fara fyrri partinn því heimilið kallar þegar vinnudeginum lýkur. Þannig að ég fer á morgnana þegar börnin eru farin í skólann." Heilsurækt Bryndísar snýst ekki bara um hreyfinguna heldur líka það hvað hún setur ofan í sig. "Ég er farin að spekúlera meira í hollustu fæðunnar í seinni tíð. Mér finnst það líka partur af barnauppeldi að hafa hollan mat á borðum og tel mikilvægt að hráefnið sé ferskt og sem minnst unnið," segir þingkonan sem kveðst yfirleitt hafa gaman af að elda. "En stundum geri ég það af nauðsyn einni saman eins og ýmis önnur heimilisstörf," játar hún að lokum.
Heilsa Mest lesið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira