Tíska og hönnun

Einfaldlega geggjaður

"Glingrið, skeljarnar og steinarnir. Hann er svo mikið ég," segir Jane María Sigurðardóttir, markaðsfulltrúi í Smáralind, þegar hún segir frá eftirlætisbolnum sínum sem er úr þunnu gráu silki með ísaumuðum glitsteinum og skeljum. Hún rakst á bolinn á sumarútsölu og stóðst ekki freistinguna. "Hann er einfaldlega geggjaður, og sérstaklega við grófar gallabuxur," segir Jane sem kaupir sér mikið af fötum og telur sig vera algera fatafrík. "Starfs míns vegna er ég í mikið í tískuvöruverslunum og ég fíla mig alveg í tætlur í návígi við tískuna. Hinsvegar eru freistingarnar margar og oft erfitt að standast þær, en sem betur fer á ég æðislegan kærasta sem dregur mig stundum niður á jörðina þegar ég ætla að missa mig í eitthvert rugl," segir Jane.

Aðspurð um nafnið segir Jane að amma hennar hafi borið þetta nafn. "Langamma mín þekkti færeyska konu sem hét þessu nafni og gaf dóttur sinni nafnið. Margir bera það fram á ensku en það á að bera það fram alveg eins og maður les það á íslensku. Það er mjög sjaldan sem ég heyri það rétt borið fram," segir Jane brosandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.