Sjálfstæðiskonur ósáttar 16. september 2004 00:01
Sjálfstæðiskonur eru afar vonsviknar yfir því að Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hafi valið karlmann sem aðstoðarmann. Sigríður Anna hefur verið ötull talsmaður jafnréttis innan flokksins og hvatamaður fyrir aukinni samvinnu kvenna. Hún hefur lýst því yfir að hún sé ekki ánægð með stöðu kvenna innan flokksins. Fréttablaðið ræddi við fjölmargar sjálfstæðiskonur í gær, sem lýstu yfir vonbrigðum með vali Sigríðar Önnu. Þær treystu sér þó ekki til þess að koma fram undir nafni, heldur sögðust fyrst vilja ræða málið innan sinna raða. Sjálfstæðiskonur eru ekki sáttar við hve konum fækkaði í þingflokknum eftir síðustu kosningar. Þær hafa haldið reglulega fundi þar sem ræddar hafa verið hugmyndir um hvernig bæta megi hlut kvenna í flokknum. Sigríður Anna hefur tekið virkan þátt í því starfi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra olli flokkssystrum sínum vonbrigðum þegar hún valdi karlmann sem aðstoðarmann um síðustu áramót. Sjálfstæðiskonur segja ákvörðun Sigríðar Önnu hafa magnað upp óánægjuna er þá spratt upp. Þær segja að mikið sé af hæfum konum innan flokksins og að konur hafi staðið sig afskaplega vel sem aðstoðarmenn hingað til. Þær væru alveg jafnvígar í starfið og karlar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Innlent „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Innlent Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Erlent Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent Fagna löngu tímabærri breytingu Innlent Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Innlent Fleiri fréttir Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Landsfundur ræðir stjórnarslit og nýjum reglum um blóðgjöf fagnað Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Sjá meira