Erlent

Tveir létust í sprengingu í Basra

Tveir létust og þrír liggja sárir eftir að sprengja í vegkanti sprakk nærri bandaríska sendiráðinu í borginni Basra í suðurhluta Íraks í dag. Hinir látnu voru í bifreið á leið fram hjá sprengjunni en þeir sem særðust voru gangandi vegfarendur. Talsmaður bandaríska sendiráðsins í Bagdad segir engan Bandaríkjamann hafa verið á meðal hinna látnu eða særðu. Fjölmargar bíla- og vegkantssprengjur hafa sprungið í Basra undanfarið eitt og hálft ár og hafa tekið mörg mannslíf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×