Guðdómlegar tilviljanir réðu för 11. ágúst 2004 00:01
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur og tónlistarmaður, fór í óvænta ævintýraferð á dögunum. "Einn daginn þegar ég kom heim var konan mín búin að kaupa ferð handa okkur til Krítar í eina viku. Hún vissi sem var að mig hefur alltaf langað til Grikklands og gaf mér ekki færi á að væflast neitt heldur ákvað þetta bara. Þegar til Krítar var komið vorum við á hóteli með sundlaug og fullt af túristum og þar sem ég er einfari í útlöndum var ég orðinn mjög þreyttur á samfélaginu við aðra túrista eftir sólarhring. Við tókum það því til bragðs að leigja bíl og keyra út í bláinn. Ég vissi svo sem ekkert hvað væri skemmtilegt að gera á Krít nema ég vissi af hinni fornu borg Knossos og langaði að skoða hana. Þegar við komum að Knossos var verið að loka og við urðum að snúa frá og finna okkur gististað. Þá sá ég útundan mér vegaskilti sem beindi fólki á safn um frægasta rtihöfund Krítverja, Nikos Kazantzakis, sem skrifaði meðal annars söguna um Grikkjann Zorba. Ég hugsaði strax að það væri gaman að skoða safn um hann. Við sváfum af nóttina, skoðuðum Knossos daginn eftir og keyrðum svo fáfarna vegarspotta á safnið um Kazantzakis. Á leiðinni til baka varð á leið okkar stór og mikil kirkja eða klaustur sem við vildum endilega skoða. Við hittum þar fyrir grískan rétttrúnaðarprest og gamla konu sem voru ógurlega glöð yfir áhuga okkar á kirkjunni þeirra. Gamla konan gaf okkur veitingar og einstaklega fallega hnýtta krossa til að vernda okkur frá öllu illu. Þessi heimsókn vakti með okkur áhuga á kirkjum og klaustrum og við ákváðum að stoppa alls staðar þar sem við sáum klaustur merkt á kortið. Í leit að einu klaustrinu enduðum við uppi á einu hæsta fjalli Krítar, keyrðum þar til við komumst ekki lengra og gengum svo upp á topp eftir fornum göngustígum. Þarna fundum við alveg ótrúlega kirkju inni í fjallinu, yfirgefið klaustur byggt inn í helli. Þetta var toppurinn á ferðinni og það var við hæfi að hann skyldi vera á hátindi eyjarinnar. Það var eins og við hefðum verið leidd alla þessa leið til að skoða þessa einu kirkju. Því betur sem ég velti þessu fyrir mér sé ég að það var röð tilviljana sem leiddi okkur áfram, við þurftum aldrei að ákveða neitt. Ég hef aldrei áður lent í því að ráða ekki för heldur vera leiddur áfram af tilviljunum og kannski grísku guðunum..."
Ferðalög Mest lesið Kalli Bjarni búinn að breyta lífi sínu Lífið Bað Youtube um að fjarlæga myndbandið Lífið „Loksins kominn til okkar“ Lífið Tvær miðaldra: Þekktust ekkert en láta nú drauminn rætast saman Lífið Hittast á laun Lífið „Að koma hingað inn er eins og að fara inn í annan heim“ Lífið Flaug á hausinn fyrsta skóladaginn eftir frí Lífið „Magnað ég hafi lifað 22 ár án þess að fara í aðra aðgerð“ Lífið Ást er: Skrifa sína eigin Rómeo og Júlíu Makamál Njáll á yfir fimmtíu mótorhjól og mun aldrei hætta að safna Lífið Fleiri fréttir Skálað fyrir skíthræddri Unni Sjóðheitir listamenn mynda sterka heild Rif eftir Önnu Júlíu sigraði og verður á Héðinsreit Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Samtal við þann fyrsta til að taka ljósmyndir á Íslandi Tilnefningar til íslensku myndlistarverðlaunanna Birgitta Björg, Ingunn og Rán Flygenring fengu Fjöruverðlaun Tjörnin trónir á toppnum Borgarstjórar og forsetar á ólgandi listasýningu Hendur sem káfa, snerta og breyta „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira