Erlent

Skemmdarverk á olíuleiðslum

Skemmdarverk voru unnin á annarri af tveimur olíuleiðslum á Faw-skaganum í Írak í morgun. Leiðslan er hundrað og tuttugu metrar í þvermál og vegna skemmdanna hefur framleiðslugeta Íraka minnkað úr 1,9 milljónum tunna á dag í 1,1 milljón. Fyrr í morgun héldu olíuframleiðendur því fram að framleiðsla myndi stöðvast vegna hótana vígamanna sjítaklerksins Moqtada al-Sadrs en aðstoðarmaður hans hefur neitað því að sínir menn hafi hótað slíku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×