Menning

Hollenskur gæðabjór

Hollenski bjórinn Bavaria er nú fáanlegur í öllum helstu Vínbúðum hérlendis. Bavaria Holland Beer er einn stærsti bjórframleiðandi Hollands og dreifir afurðum sínum til yfir 90 landa um allan heim. Bjórverksmiðjan var stofnuð árið 1719 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu allar götur síðan. Í dag framleiðir Bavaria 500 milljónir lítra ár hvert. Bavaria hefur verið einna þekktast fyrir ferskt bragð og mjúkan keim og er það þakkað því að fyrirtækið framleiðir sitt eigið malt til framleiðslunnar og notar eingöngu lindarvatn. Bavaria fékkst til að byrja með í reynslusölu í nokkrum Vínbúðum hérlendis en viðtökurnar voru mjög góðar og frá og með vordögum er bjórinn fáanlegur í dósum í öllum helstu Vínbúðum. Í framhaldi af góðum viðbrögðum við sölu á dósinni hefur Bavaria ákveðið að setja inn til reynslusölu í Vínbúðum 33 cl. flösku sem er ein vinsælasta afurð Bavaria og vel þekkt fyrir hinn þægilega snúningstappa. Verð í Vínbúðum eru krónur 155 í dósum og 148 í flöskum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.