Menning

Betri golfsveifla

Á vorin og sumrin taka allir golfáhugamenn sér frí í vinnunni og eyða öllum frítímanum sínum líka á golfvellinum að æfa sveifluna fyrir golfmót sumarsins. Það er staðreynd að golfarar með sterkari lærvöðva eru með lægri forgjöf og ná betri og lengri höggum en þeir sem eru með veikari lærvöðva. Sterkir lærvöðvar koma jafnvægi á búkinn og styrkja handleggina, sem leiðir af sér frábæra golfsveiflu. Hér er góð æfing til að styrkja lærvöðvana fyrir þá sem eru þreyttir á því að tapa og ná ekkert að lækka forgjöfina: Leggstu á hliðina með lærin hvert ofan á öðru og hvíldu höfuðið á handleggnum. Hafðu fótleggina um 45 gráður fyrir framan þig upp á jafnvægi að gera. Lyftu efri fótleggnum um þrjá sentimetra. Haltu honum samhliða neðri fætinum og snúðu fætinum. Láttu efri fótlegginn lyftast upp og niður varlega án þess að hann snerti neðri fótlegginn. Endurtaktu þetta tíu til fimmtán sinnum. Passaðu að missa ekki stellinguna. Skiptu svo um fót og endurtaktu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.