Viðskipti erlent
168 169 170 171 172 173 174 175 176 … 334 ›
Standard Chartered í stórfelldu svindli með Íransstjórn Breski bankinn Standard Charted Bank (SCB), sem þekktur er fyrir að auglýsa starfsemi sína framan á búningum enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, er grunaður um stórfellda ólöglega bankastarfsemi í viðskiptum við stjórnvöld í Íran. Frá þessu er greint á vefsíðu Financial Times (FT) í dag og eru meðal annars birt skjöl frá Fjármálaeftirlitinu í New York, þar sem lögbrotin eru útlistuð. Viðskipti erlent 6.8.2012 17:46
Hækkanir á mörkuðum í Evrópu og Asíu Grænar tölur hækkunar einkenndu markaði í Asíu og Evrópu í morgun. Þannig hækkaði Nikkei vísitalan um 2 prósent og Asia Dow vísitalan um 1,99 prósent. Í Evrópu var svipað upp á teningnum þó tölurnar hafi verið aðeins lægri þar. DAX vísitalan þýska hækkaði um 0,54 prósent, FTSE MIB hækkaði um 0,68 prósent og CAC 40 um 0,32 prósent. Viðskipti erlent 6.8.2012 09:52
Gyðingar halda spænskum hattaframleiðanda á floti Hattaframleiðandinn Fernández y Roche, sem er með höfuðstöðvar sínar í Sevilla á Spáni, hefur átt góðu gengi að fagna að undanförnu, ólíkt nær öllum efnahag Spánar. Ástæðan er mikil sala á tiltekinni gerð hatta sem gyðingar í New York og Jerusamlem kaupa í þúsundavís á hverju ári. "Þeir [gyðingarnir] eru bókstaflega að halda okkur á floti,“ segir Miguel García Gutiérrez, 35 ára framkvæmdastjóri hattaframleiðandans, í viðtali við The New York Times um helgina. Viðskipti erlent 5.8.2012 22:24
Óttast „sáfræðilegar afleiðingar“ fyrir Evrópu Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, segist óttast að kreppan á evrusvæðinu geti haft "sálfræðilegar afleiðingar“ fyrir alla álfuna ef ekki tekst að ná sátt um aðgerðir þar sem neyðin er stærst. Þetta kom fram í viðtali þýska blaðsins Spiegel við Monti en breska ríkisútvarpið BBC vitnar til þess í umfjöllun á vefsíðu sinni. Monti óttast að þjóðir Evrópu fari í auknu mæli að hugsa um eigin hag, frekar en hag heildarinnar, ef ekki tekst að ná víðtækri sátt um mikilvægustu aðgerðirnar. Viðskipti erlent 5.8.2012 19:45
Singapore Airlines kaupir 54 Boeing vélar Flugfélagið Singapore Airlines gekk í gær frá risasamningi við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing um kaup á 54 Boeing flugvélum. Samningurinn er upp 4,9 milljarða dala, eða sem nemur um 612 milljörðum króna. Um er að ræða 23 737-800 vélar og 31 737-Max-8s vélar, að því er Wall Street Journal greinir Viðskipti erlent 5.8.2012 14:14
Nýjasta mynd Cruise tekin í Bretlandi Nýr vísindatryllir með Tom Cruise og Emily Blunt í aðalhlutverkum verður tekin upp í Bretlandi. Um 500 störf verða til við gerð myndarinnar. Það var George Osborne, fjármálaráðherra Breta, sem greindi frá þessu í gær. Myndin mun heita All You Need is Kill. Myndin verður tekin upp í kvikmyndaveri Warner Bros í Leavesden nærri Watford í Bretlandi. Um er að ræða sama kvikmyndaver og Harry Potter myndirnar voru teknar upp, eftir því sem fram kemur á vef Daily Telegraph. Viðskipti erlent 4.8.2012 12:35
"Frábært félag en hörmuleg fjárfesting" Íslenskur verðbréfagreinandi hjá Saxo Bank telur að hlutabréf í Manchester United séu ekki góð fjárfesting. Eigendur fótboltaklúbbsins hyggjast skrá bréf félagsins á markað, m.a. til að greiða niður skuldir. Viðskipti erlent 3.8.2012 15:44
Peston: Getur SFO lifað af „Tchenguiz-skandalinn“? Robert Peston, viðskiptaritstjóri breska ríkisútvarpsins BBC, spyr að því í fyrirsögn pistils um aðgerðir bresku efnahagsbrotadeildarinnar, SFO, gegn Tchenguiz-bræðrunum Roberti og Vincent hvort stofnunin geti lifað það af, að öllum málatilbúnaði deildarinnar hafi verið vísað frá dómi. Þá auki það enn á vandann að Vincent Tchenguiz hyggst fara í máli við SFO og krefjast 100 milljóna punda, jafnvirði um 19 milljarða króna, í bætur vegna þess fjárhagstjóns sem hann varð fyrir við aðgerðirnar gegn sér. Viðskipti erlent 3.8.2012 13:26
Japanir útvíkka rannsóknir á innherjaviðskiptum banka Japönsk stjórnvöld hafa útvíkkað rannsókn sína á innherjaviðskiptum í fjármálageira landsins og er fullyrt í New York Times í dag, að rannsóknin teygi anga sína inn á miðlaragólf margra af stærstu bankanna á Wall Street í New York, þar á meðal Goldman Sachs, svissneska bankans UBS og þýska bankans Deutsche Bank. Viðskipti erlent 3.8.2012 11:49
Mikil umsvif á kornmarkaði Ótti kaupmanna við skort á korni í haust hefur leitt til verðhækkana á kornmarkaði. Aðilar hafa keypt upp stóra lagera af korni á kornmarkaðinum í Chicago. Frá þessu er sagt á Viðskipti erlent 3.8.2012 11:17
Hrun tölvukerfis Royal Bank of Scotland kostar 125 milljónir punda Hrun tölvukerfis Royal Bank of Scotland er að reynast bankanum dýrkeypt, en upplýst var um það í dag að bankinn þarf að greiða völdum viðskiptavinum bankans 125 milljónir punda, eða sem nemur 23,75 milljörðum króna. Viðskipti erlent 3.8.2012 10:44
Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum aftur yfir 7% Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum hafa hækkað mikið í gærdag og í morgun og eru nú komnir í tæp 7,3%. Viðskipti erlent 3.8.2012 09:10
Niðursveifla á mörkuðum Niðursveiflan á mörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum í gærdag og gærkvöldi hélt áfram á Asíumörkuðunum í nótt. Þannig lækkaði Nikkei vísitalan í Tókýó um rúmt prósent og Hang Seng vísitalan í Hong Kong um tæpt prósent. Viðskipti erlent 3.8.2012 06:27
Yfirlýsingar Draghis ollu vonbrigðum Seðlabankastjóri ESB boðar bein inngrip bankans í skuldabréfamarkaði til að styðja við evruna, en útskýrði ekki nánar í hverju þau áform væru fólgin. Þau verði útfærð nánar á næstu vikum. Verðbréf féllu í kjölfarið víða í verði. Viðskipti erlent 3.8.2012 00:01
83 milljón plat einstaklingar á facebook Yfir 83 milljón notendur á facebook eru plat. Þetta tilkynnti fyrirtækið í síðustu viku. Viðskipti erlent 2.8.2012 14:38
Stærstu seðlabankar heimsins grípa enn til aðgerða Seðlabankar Bandaríkjanna og Evrópu segja í tilkynningum, í sitt hvoru lagi, að þeir muni gera það sem til þarf til þess að styðja við efnahagslegan vöxt. Haft er eftir Ben Bernanke, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, að vöxtum verði haldið við "allra lægstu mörk“ í það minnsta fram á árið 2014, í þeirri von að það styðji við framgang atvinnulífsins og vinni gegn stöðnun og samdrætti í efnahagslífi, jafnt í Bandaríkjunum sem annars staðar. Viðskipti erlent 2.8.2012 10:20
Íhuga að þjóðnýta Royal Bank of Scotland að fullu Breska ríkisstjórnin íhugar nú að þjóðnýta stórbankann Royal Bank of Scotland að fullu. Viðskipti erlent 2.8.2012 10:13
Þriðja borgin í Kaliforníu orðin gjaldþrota Þriðja borgin í Kaliforníu er orðin gjaldþrota. Nú er það San Bernardino og borgaryfirvöld þar segja að þau geti ekki lengur borgað reikninga borgarinnar en skuldirnar nema hátt í milljarði dollara. Viðskipti erlent 2.8.2012 06:48
Grikkir hafa ekki lengur efni á að borga mútur til embættismanna Verulega hefur dregið úr mútugreiðslum til embættismanna í Grikklandi undanfarin ár. Ástæðan er sú að grískur almenningur hefur ekki lengur efni á þessum greiðslum. Viðskipti erlent 2.8.2012 06:36
Hlutabréf í Bandaríkjunum lækka Verð á hlutabréfum í Bandaríkjunum lækkaði þó nokkuð í dag. S&P lækkaði um 0.29 prósent og stendur nú í 1.375.32. Viðskipti erlent 1.8.2012 23:48
Fasteignaverð í Bretlandi heldur áfram að lækka Fasteignaverð í Bretlandi heldur áfram að lækka samkvæmt tölum sem breska hagstofan birti í morgun. Lækkunin í júlímánuði er sú hraðasta síðan 2009 en hún var 0,7 prósent í mánuðinum. Undanfarið ár hefur fasteignaverð á landsvísu í Bretlandi lækkað um 2,6 prósent. Viðskipti erlent 1.8.2012 14:53
Millistjórnandi Citigroup sýknaður Brian Stoker, fyrrverandi millistjórnandi hjá bandaríska fjárfestingabankanum Citigroup, var í gær sýknaður af ásökunum um að hafa selt fjárfestum skuldabréfavafninga (CDO) á sama tíma og hann vissi, eða mátti vita, að eignirnar væru ofmetnar. Málareksturinn gegn Stoker hófst í október í fyrra þegar ákærunni á hendur honum var þinglýst. Viðskipti erlent 1.8.2012 09:21
Man. Utd. hyggst safna 40 milljörðum á markaði Enska knattspyrnufélagið Manchester United hyggst safna 330 milljónum dala, jafnvirði um 40 milljörðum króna, með nýju hlutafé með skráningu á markað í New York í Bandaríkjunum. Hver hlutur verður seldur á bilinu 16 til 20 dali, að því er segir í skráningarlýsingu vegna útboðsins sem vitnað er til á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 1.8.2012 08:45
Færeyingar ætla sér stóra hluti þegar norðurleiðin opnast Færeyingar ætla sér stóra hluti þegar siglingarleiðin yfir Norðurpólinn opnast ef marka má orð Kaj Leo Johannesen lögmanns Færeyja. Viðskipti erlent 1.8.2012 06:42
Hátt í 60.000 störf í boði í norska olíuiðnaðinum Hátt í 60.000 störf eru nú í boði innan norska olíuiðnaðarins. Sökum þessa hafa norsku olíufélögin ákveðið að opna sérstaka ráðningarskrifstofu í Kaupmannahöfn. Viðskipti erlent 1.8.2012 06:37
Snjallsímar taka yfir - niðurhal eykst Algjör kúvending hefur orðið á farsímanotkun hér á landi að undanförnu þar sem gagnaniðurhal hefur margfaldast. Þrátt fyrir það erum við nokkru á eftir Norðurlöndunum, segir framkvæmdastjóri Nova. Gríðarlega hröð sala á vinsælum snjallsímum á heimsvísu hefur haft afgerandi áhrif á farsímanotkun. Viðskipti erlent 31.7.2012 18:30
Atvinnulausum í Evrópu fjölgaði um tvær milljónir á einu ári Meðalatvinnuleysi í Evrópu er nú í hæstu hæðum samkvæmt tilkynningu sem hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í morgun. Atvinnuleysi mælist nú 11,2 prósent, svipað og í maí mánuði, en atvinnulausum í Evrópu hefur fjölgað um tvær milljónir manna á einu ári, en í júní í fyrra mældist meðalatvinnuleysi í Evrópu 10,4 prósent. Viðskipti erlent 31.7.2012 17:20
Málið gegn Robert látið niður falla Yfirréttur (e. High court) í Englandi hefur ákveðið að láta mál Roberts Tchenguiz niður falla, en í síðasta mánuði var mál bróður hans Roberts látið niður falla. Breska blaðið Financial Times greinir frá þessu. Viðskipti erlent 31.7.2012 11:52
UBS tapaði 42,2 milljörðum á Facebook Svissneski risabankinn UBS tapaði 349 milljónum dala, jafnvirði um 42,2 milljörðum króna, á viðskiptum og lánveitingum til kaupa á hlutabréfum í Facebook. Á vef breska ríkisútvarpsins BBC segir að hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi þessa árs hafi numið 425 milljónum dala, eða litlu meira en sem nam tapinu vegna Facebook bréfanna. Viðskipti erlent 31.7.2012 10:01
Aldarafmæli Friedmanns minnst Þess er minnst í dag að einn af þekktustu hagfræðingum tuttugustu aldarinnar, Milton Friedman, hefði orðið hundrað ára gamall ef hann hefði lifað. Friedman var jafnan talinn til hóps Chicago hagfræðinga, en þeir áttu það sameiginlegt að leggja áherslu á frjálst markaðshagkerfi. Á Wikipedia kemur fram að Friedman er talinn vera næstáhrifamesti hagfræðingur síðustu aldar á eftir John Maynard Keynes. Friedman var einn af efnahagsráðgjöfum Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og hafði mikil áhrif á efnahagsstefnu Margrétar Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Viðskipti erlent 31.7.2012 09:54