Menning

Biðja vegfarendur að mála ást

Þeir Davíð Óskar Ólafsson, Hreinn Beck og Árni Filippusson vinna nú að verkefni sem þeir kalla Painting Love, ásamt Dananum Bjarke von Koning. „Við förum til tólf borga, stillum upp trönum og striga og biðjum vegfarendur um að mála ást," útskýrði Davíð.

Menning

Bölvun eða blessun Braga

Aðalpersónan í nýjustu skáldsögu Braga Ólafssonar er ljóðskáldið Sturla Jón Jónsson, rithöfundur með snert af sjálfseyðingarhvöt sem ferðast til Litháen á ljóðahátíð. Skáldsagan Sendiherrann fjallar um þrá þessa Sturlu Jóns eftir persónulegri formbyltingu, hann vill segja skilið við ljóðið en allt hans líf virðist líka litað af meiriháttar óþreyju - kannski er hann í óttalegri miðlífskrísu eða kannski er hann bara ofurvenjulegur nútímamaður.

Menning

Hörinn í striganum

Hildur Bjarnadóttir opnar í dag sýningu í Safninu í gamla Faco-húsinu við Laugaveg. Verkin sem hún sýnir eru öll unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu Safnsins. Hildur hefur á undanförnum árum fengist við gerð verka sem sækja í eldri hannyrðir.

Menning

Hulda í Grasrótinni

Grasrótarsýningar Nýlistasafnsins eru undanfarin sex ár búnar að vera spennandi samantekt á því hvað er að gerast í yngsta hópi starfandi myndlistarmanna.

Menning

Af ástum og örlögum

Félag um átjándu aldar fræði gengst fyrir málþingi í fyrirlestra-sal Þjóðarbókhlöðu í dag og hefst það kl. 13 og lýkur um kaffileytið. Þar verða flutt sex erindi fræðimanna um ýmislegt er lýtur að sögulegum minnum frá einkalífi þess tíma sem félagið einbeitir sér einkum að.

Menning

Inngangur að rökfræði

Særhæfð fræði framreidd þannig að leikmenn geti notið og úr verður fyrirtaks hugarleikfimi. Hroðvirkur frágangur rænir bókina hins vegar stjörnu.

Menning

Evrópumánuður ljósmyndarinnar

Í gær hófst í París ljósmyndamessan Paris-Photo og stendur fram á sunnudag. Þetta er í tíunda sinn sem messan er haldin en hún er ein mikilvægasta sýninga- og sölumessa á ljósmyndum sem haldin er í Evrópu.

Menning

Ævisaga skapandi hugsuðar

Ritdómurinn sem Guðmundur Finnbogason sálfræðingur skrifaði um Vefarann mikla frá Kasmír eftir Halldór Laxness árið 1927 var stuttur: "Vélstrokkað tilberasmjör". Tilberar eru þjóðsagnaverur sem sjúga mjólk úr kúm annarra og færa húsbændum sínum með því að æla henni út úr sér. Spýjuna gátu húsbændurnir brúkað í illa fengið smjör.

Menning

Ævar Örn seilist í Glerlykilinn í vor

Glerlykillinn, hin norrænu verðlaun glæpasagnanna, er nú í undirbúningi og taka brátt að birtast tilnefningar frá valnefndum í hverju landi. Dómnefnd Hins íslenska glæpafélags hefur lokið störfum og tilnefnir eina íslenska glæpasögu útgefna árið 2005 til að keppa um Glerlykilinn, verðlaun Norrænu glæpasamtakanna SKS, Skandinaviska Kriminalsällskapet.

Menning

Tangó er spuni á milli tveggja

Tangófélagið stendur fyrir tangódansleik, milongu, í Gyllta salnum á Hótel Borg í kvöld. Áður en ballið byrjar fá þeir sem vilja tilsögn í tangó svo að þeir séu betur í stakk búnir að láta ljós sitt skína á dansgólfinu.

Menning

Skugginn leikur laus

Stjórn Íslensku óperunnar varð á síðasta ári fyrir nokkurri gagnrýni vegna þess að hún sinnti ekki frumsköpun í óperusmíði. Þá hafði Óperan stofnað Óperustúdíó til að þróa ný verk.

Menning

Af uppboðum

Tvö íslensk málverk voru slegin í fyrradag á uppboði Bruun Rasmussen í Landskrona. Bæði verkin voru kynnt á vef fyrirtækisins danska sem þau væru eftir nafnlausa listamenn en íslenska. Annað verkið er eftir Þorbjörgu Höskuldsdóttur frá 1988 (66x1.000) og fór á 5.500 dkr., eða 66.292 ísl. kr. Hitt verkið er eftir Guðbjörgu Láru frá 1989 (74x80) og seldist á 1.650 dkr., – 19.887 ísl. kr.

Menning

Uppskriftir að höfundi

Félag bókmenntafræðinema í Háskóla Íslands kallar sig Torfhildi til heiðurs fyrsta íslenska atvinnuhöfundinum, Torfhildi Hólm. Á morgun verður það með málþing sem öllum er opið í Odda á háskólalóðinni, stofu 101 kl. 15. Þar verða í boði kökur á basar fyrir gesti: Kaffi og kökur í boði Torfhildar; skúffu-, gulrótar-, bláberja-, marengs- og eplakökur.

Menning

Tveggja turna tal komið út

Í dag kemur út rit Halldórs Guðmundssonar bókmenntafræðings, Skáldalíf - ofvitinn í Suðursveit og skáldið á Skriðuklaustri, um þá Gunnar Gunnarsson og Þórberg Þórðarson. Rannsóknarverk Halldórs er um fimm hundruð síður, ríkulega myndskreytt með skrám mynda, heimilda og nafnaskrá.

Menning

Aðfangadagur tungunnar

Í kvöld verður upplestrarhátíð Bjarts á Kaffi Sólon í Bankastræti. Þær Bjartsfreyjur segja hátíðina bera upp á aðfangadag íslenskrar tungu, en á morgun verður afmælisdagur Jónasar haldinn hátíðlegur. Hefst hátíðahaldið í kvöld kl. 20.30, stundvíslega.

Menning

Tilnefnd til verðlauna

það styttist í að Myndstefsverðlaunin svokölluðu verði veitt og var tilkynnt á föstudag hverjir væru tilnefndir að þessu sinni. Sex myndhöfundar, þrjár konur og þrír karlar, keppa um heiðursverðlaun Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands, en forseti Íslands úthlutar þeim hinn 21. nóvember næstkomandi. Það verður í annað sinn sem verðlaunum Myndstefs er úthlutað.

Menning

Bannið þessa sjúku bók

Allt útlit er fyrir að hagsmunasamtök á Írlandi muni reyna að fá örmyndasögubók Hugleiks Dagssonar, Should You Be Laughing At This?, bannaða þar í landi en bókin þykir senda unglingum vægast sagt varasöm skilaboð.

Menning

Portus hrósað í Feneyjum

Íslenski sýningarskálinn á Feneyja-tvíæringnum um byggingarlist og borgarskipulag hlaut á miðvikudag sérstaka viðurkenningu dómnefndar þegar Gullna ljónið var afhent við hátíðlega athöfn.

Menning

Aldingarðurinn

Á mánudaginn, 13. nóvember, kemur út hjá Hjá Vöku Helgafelli Aldingarðurinn eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Aldingarðurinn kemur út samtímis í Bandaríkjunum og á Íslandi.

Menning

Á eigin vegum

Hjá Vöku-Helgafelli er komin út bókin Á eigin vegum eftir Kristínu Steinsdóttur.

Menning

Fljótandi heimur

Hjá Máli og menningu er komin út bókin Fljótandi heimur eftir Sölva Björn Sigurðsson. Sölvi Björn hefur áður sent frá sér skáldsöguna Radíó Selfoss auk nokkurra ljóðabóka. Síðasta bók hans Gleðileikurinn djöfullegi vakti mikla athygli.

Menning

Tvær nýjar bækur um Magga mörgæs

Hjá Vöku-Helgafelli eru komnar út tvær bækur um Magga mörgæs, Maggi verður lasinn og Sleðaskólinn sem Halla Sverrisdóttir þýddi. Margir krakkar þekkja Magga mörgæs og vini hans úr sjónvarpinu sem Pingú í Íslandi í bítið.

Menning

Fyrir kvölddyrum

Hjá Máli og menningu kemur út á morgun ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson, Fyrir kvölddyrum. Hannes yrkir um mannlegar tilfinningar í öllum sínum fjölbreytileika, en ekki síst eru það yrkisefni tengd náttúru og sögu Íslands sem hafa gert hann ástsælan með þjóðinni.

Menning

Pétur Már með sýningu í i8

Samhliða sýningu Katrínar Sigurðardóttur opnar Pétur Már Gunnarsson (f.1975) sýningu sína undir stiganum í i8. Pétur stundaði nám við Listaháskóla Íslands og við Listakademíuna í Vínarborg.

Menning

Aríur um ástina í hádeginu á þriðjudaginn

Hádegistónleikaröð Íslensku óperunnar hefur fest sig í sessi sem einn af föstum liðum í dagskrá Óperunnar yfir vetratímann. Þriðjudaginn 14. nóvember er komið að öðrum tónleikunum í hádegistónleikaröðinni í vetur og bera þeir yfirskriftina „Aríur um ástina”.

Menning

Portrett af Skarði

Einar Falur Ingólfsson og Helgi Þorgils Friðjónsson opna óvenjulega sýningu í Anima galleríi kl. 17 í dag. Sýningin ber heitið „Portrett af stað“ og geymir verk þeirra félaga í ljósmyndum, textum og málverkum er öll tengjast bænum Skarði á Skarðsströnd í Dalasýslu.

Menning

Opið hús í Listaháskólanum

Listaháskólinn verður með opin hús um helgina en þá gefst forvitnum kostur á að kynna sér fjölbreytta starfsemi skólans. Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningarstjóri skólans, útskýrir að svona opinn dagur hafi verið haldinn um árabil en þá jafnan á virkum degi.

Menning

Litirnir dansa

Guðrún Bergsdóttir opnar sýningu á útsaumsverkum og tússteikningum í Boganum í Gerðubergi í dag. Litirnir dansa og iða fullir af kátínu og frelsiskennd og vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hugarheimi Guðrúnar Bergsdóttur.

Menning