Menning

Eiríkur flytur til Finnlands

Ljóðskáldið og Nýhil-liðinn Eiríkur Örn Norðdahl er á leið í víking til Finnlands. Eiríkur, sem hefur verið afar áberandi í bókmenntaheiminum á síðustu misserum og árum, flyst búferlum til Helsinki að páskafríi loknu, en þar býr sænsk unnusta hans.

Menning

Kanna möguleika miðilsins

Á sýningunni „Augliti til auglitis“ eru ljósmyndir eftir franska myndlistarmenn en sýningu þeirri er ætlað að varpa ljósi á samtímaljósmyndun og möguleika hennar. Sýningin er liður í frönsku menningarkynningunni Pourquoi pas? og var opnuð í Listasafni Akureyrar um helgina.

Menning

Ljúka ekki við bók Beckhams

Harry Potter og eldbikarinn, My life eftir Bill Clinton og My side eftir David Beckham eru á meðal þeirra bóka sem Bretar klára ekki. Gerð var könnun á 4000 Bretum og í ljós kom að um helmingur bóka sem þeir kaupa eru ólesnar.

Menning

Fullt af engu

Í Nýlistasafninu stendur nú yfir sýningin „Presque rien“ sem útleggst á hinu ástkæra ylhýra sem „næstum því ekki neitt“. Þar sýna franskir myndlistarmenn í tilefni af menningarkynningunni Pourquoi pas? en sýningin byggir á sköpunarverkum listamannsins Roberts Filliou.

Menning

Fáðu þér bara sæti

Myndlistarmaðurinn Hlynur Hallsson opnar sýninguna LJÓS - LICHT - LIGHT í galleriBOXi á Akureyri kl. 16 á morgun. Verkið sem Hlynur setur upp í galleriBOXi samanstendur af borði og sætum sem gerð eru á afar einfaldan hátt úr froðuplastplötum og gæruskinni.

Menning

Hugvísindaþing hefst í dag

Hugvísindaþing hefst síðdegis í dag í Aðalbyggingu Háskólans og stendur í tvo daga. Að því standa, eins og undanfarin ár, Hugvísindastofnun, ReykjavíkurAkademían og guðfræðideild. Þinginu er ætlað að bregða ljósi á ýmis viðfangsefni sem unnið er að á skika hugvísinda í landinu, bæði lítil álitaefni og stór.

Menning

Rætt um Lindgren

Ráðstefna um barnabókmenntir og barnamenningu verður haldin í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun. Ráðstefnan er að þessu sinni tileinkuð Astrid Lindgren og framlagi hennar til barnamenningar fyrr og nú.

Menning

Baudrillard látinn

Franski heimspekingurinn og menningarfræðingurinn Jean Baudrillard lést í París síðastliðinn þriðjudag. Hann var 77 ára að aldri og hafði glímt við langvarandi veikindi.

Menning

Glíma við orð

Rúnar Helgi Vignisson heldur erindi á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í fyrirlestraröðinni „Þýðing öndvegisverka“ í dag. Rúnar ræðir um glímuna við bókmenntaverk frá fjarlægum og framandi menningarheimi í tengslum við þýðingar sínar á verkum suður-afríska Nóbelsverðlaunahafans J.M. Coetzee.

Menning

Jóhann Briem

Jóhann Briem (1907 - 1991) stundaði listnám hjá Jóni Jónssyni málara, bróður Ásgríms Jónssonar, Eyjólfi Eyfells og Ríkarði Jónssyni myndhöggvara í Reykjavík.

Menning

Æviferill Sigurjóns opinn

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hefur opnað heildar-skrá yfir verk listamannsins í vefrænu formi á heimasíðu safnsins, www.lso.is. Heildarskrá listaverka Sigurjóns Ólafssonar hefur verið í vinnslu í yfir tvo áratugi og nær yfir öll þrívíð listaverk sem vitað er með vissu að Sigurjón gerði. Nú eru skráð 624 verk og fylgja ljósmyndir 537 þeirra. Er þetta fyrsta heildarskrá myndlistarmanns á Íslandi sem birt hefur verið á netinu.

Menning

Heinesen í heimsókn

Á morgun verður opnuð sýning á málverkum og vatnslitamyndum færeyska myndlistarmannsins Zachariasar Heinesen í Hafnarborg. Verða þar uppi yfir þrjátíu verk og eru þau mörg til sölu.

Menning

Skuldadagar

Söguhetja Skuldadaga er Matti, hálflánlaus náungi, sem ætlar þó svo sannarlega að kippa sínu í lag. Hann þarf bara smá tíma og smá pening. Þegar hann vaknar á föstudagsmorgni og uppgötvar að honum hefur, fyrir undarlega slysni, tekist að glata fíkniefnum sem honum var falið að selja, verður eigandinn ekki glaður.

Menning

Hringur Tankados

Út er komin hjá Bjarti í kilju spennusagan Hringur Tankados eftir Dan Brown, höfund DaVinci lykilsins. Enginn höfundur á jafn auðvelt með að ná slíkum heljartökum á lesandum að hann sleppir ekki bókinni fyrr en að lestri loknum. Hringur Tankados er æsileg spennusaga sem sameinar forvitnilegt sögusvið og magnaða framvindu.

Menning

Listasýning Lynch

Listasýning með verkum eftir leikstjórann David Lynch hefur verið opnuð í Cartier-stofnuninni í París. Sýningin nefnist The Air Is On Fire og þar gefur að líta erótískar ljósmyndir frá nítjándu öld, málverk af limlestum líkömum og ýmislegt fleira óvenjulegt.

Menning

Gjörningaklúbburinn hannar fyrir umslag Bjarkar

Gjörningaklúbburinn hefur verið fengin til að hanna búninga fyrir umslagið á nýjustu plötu Bjarkar Guðmdunsdóttur. Þetta staðfesti Eirún Sigurðardóttir en hún skipar klúbbinn ásamt þeim Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Hróflsdóttur.

Menning

Æsispennandi uppboð

"Ég er sáttur. Svavar er stórlega vanmetinn. Og undirverðlagður," sagði Guðmundur Jónsson galleríeigandi í samtali við blaðamann Fréttablaðsins á þriðjudag. Hann stóð á götutröppunum fyrir utan uppboðshús Bruun Rasmussen við Brödgade í Kaupmannahöfn. Og var að róa æstar taugar.

Menning

Litið til veðurs í ASÍ

Myndlistarkonan Guðrún Kristjánsdóttir opnar sýningu í Ásmundarsal og Gryfju Listasafns ASÍ í dag. Sýningin ber yfirskriftina „Veðurfar“ en listamaðurinn hefur hefur um árabil fágað og dýpkað nálgun og sýn á landslagsmyndina, bæði í málverkum sínum og með úrvinnslu í aðra miðla.

Menning

Í minningu Hallgríms

Sýning á verkum Einars Jónssonar myndhöggvara verður opnuð í forkirkju Hallgrímskirkju í dag. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, opnar sýninguna kl. 17 en hún er unnin í samvinnu Listvinafélags Hallgrímskirkju og Hallgrímssafnaðar við Listasafn Einars Jónssonar sem lánar verkin.

Menning

Bera saman bækur

Tilkynnt verður um verðlaunahafa bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs næstkomandi mánudag. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir fagurbókmenntir sem skrifaðar eru á einu af norrænu tungumálunum. Til greina koma skáldsögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða ritgerðasöfn og önnur bókmenntaverk.

Menning

Spessi - Location-farms

Á morgun, laugardaginn 3. mars, opnar ljósmyndarinn Spessi ljósmyndasýningu í DaLí gallery á Akureyri. Nefnist sýningin Location-Farms. Sýningin inniheldur meðal annars nokkrar myndir af bæjum úr Öxnadalnum.

Menning

Listaverk horfið af yfirborði

Harpa Þórsdóttir, deildarstjóri sýningardeildar Listasafns Reykjavíkur, leitar nú logandi ljósi að tveimur listaverkum eftir listamálarann Jón Engilberts.

Menning

Milonga tangóball

Næstkomandi sunnudagskvöld stendur Tangóævintýrafélagið fyrir milonga tangóballi í Gyllta salnum á Hótel Borg. Verður boðið upp á kennslu í tangódansi fyrr um daginn. Allir velkomnir, bæði einstaklingar og pör, sem og áhorfendur og þátttakendur.

Menning

Raggi Bjarna - Heyr mitt ljúfasta lag

Einn ástsælasti söngvari landssins, Raggi Bjarna og færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir munu syngja saman á tónleikum næstkomandi laugardagskvöld. Með þeim spilar stór hópur hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess sem Selkórinn syngur með.

Menning

Leyndarmál hraunanna - elstu dýr Íslands

Jörundur Svavarsson, prófessor við Háskóla Íslands og Bjarni K. Kristjánsson, frá Hólaskóla, munu halda erindi í fyrirlestraröðinni Undur Veraldar laugardaginn 3. mars. Ber erindið heitið Leyndarmál hraunanna - elstu dýr Íslands. Er það Raunvísindadeild Háskóla Íslands sem stendur fyrir fyrirlestrarröðinni.

Menning

Ráðstefna um verndun Skerjafjarðar

Föstudaginn 2. mars verður haldin ráðstefna um verndun náttúrufars Skerjafjarðar. Dagskrá ráðstefnunnar hefst með ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands og Jónínu Bjartmarsdóttur, umhverfisráðherra. Munu ýmsir aðilar með sérfræðiþekkingu á málefninu flytja erindi.

Menning

Þekktu sjálfan þig: Innsýn í jógafræðin

Í byrjun mars kemur út ný bók eftir Guðjón Bergmann rithöfund, fyrirlesara og jógakennara. Bókin ber titilinn Þekktu sjálfan þig: Innsýn í jógafræðin. Í bókinni leitast höfundur við að veita lesendum innsýn í heim jógaheimspekinnar og kynna hugmyndafræðina sem býr að baki. Öll framsetning er á almennu máli og gagnast því jafnt byrjendum og lengra komnum.

Menning

Ögrar ímyndunaraflinu

Sverrir Norland er tvítugur nemi við Háskóla Íslands og FÍH og situr jafnframt í ritstjórn vefsíðunnar dindill.is. Sverrir hlýtur að vera upptekinn ungur maður því ásamt þessu heldur hann úti vefsíðunni http://www.nyttljodahverjumdegi2007.blogspot.com/

Menning

Álfaálög á dansflokknum

Hvert áfallið á fætur öðru hefur riðið yfir Íslenska dansflokkinn undanfarnar vikur, á meðan hann stóð í æfingum fyrir sýninguna Í okkar nafni, sem frumsýnd var á föstudaginn. „Það eru nokkrir eftir heilir, við skulum orða það þannig,“ sagði Valgerður Rúnarsdóttir, dansari.

Menning

Suðvestan 7 í Saltfisksetrinu

Ljósmyndarinn Olgeir Andrésson heldur sína fyrstu einkasýningu í Listasal Saltfisksetrins í Grindavík. Ber sýningin heitið Suðvestan 7. Áður hefur Olgeir sýnt með Ljósopi, félagi áhugaljósmyndara en hann byrjaði að taka myndir fyrir alvöru fyrir tveimur árum síðan.

Menning