Menning

Galdrafár um alla Reykjavík

Sjöunda og síðasta bókin um galdrastrákinn, Harry Potter and the Deathly Hallows, kemur í verslanir á föstudaginn og mikill spenningur er kominn í aðdáendur bókanna.

Menning

Götulistakeppni í reykporti

Kaffihúsið Prikið stendur fyrir götulistakeppni um þessar mundir, en vinningshafi í keppninni fær að skreyta flennistórt svæði í portinu á bak við húsnæðið.

Menning

Magnús Pálsson minnist Þórarins Nefjólfssonar í i8

Í gær opnaði Magnús Pálsson athyglisverða sýningu í Galleríinu i8 á Klapparstíg 33. Sýningin mun standa til 18. ágúst næstkomandi og ber yfirskriftina Minning Þórarins Nefjólfssonar. „Frá unga aldri hefur setið í mér sagan af Þórarni og viðskiptum hans við Noregskonung,“ segir Magnús.

Menning

Síðasta Föstudagsfiðrildið í dag

Síðasta Föstudagsfiðrildi sumarsins fer fram í dag. Skapandi sumarhópar hafa verið duglegir að skemmta gangandi vegfarendum miðbæjarins í sumar og hafa fengið mjög góðar undirtektir. Í dag er því um að gera að kíkja niður í bæ og athuga hvað unga fólkið hefur upp á að bjóða.

Menning

Jónsi og Alex sýna í Arkansas

Riceboy Sleeps, sameiginlegt verkefni Jóns Þórs Birgissonar, sem flestir þekkja sem Jónsa í Sigur rós, og Alex Somers, kærasta hans, heldur utan á næstunni. Jónsi og Alex halda sýningu í Arkansas um næstu mánaðamót og í Melbourne í Ástralíu í október.

Menning

InfoPHR opnar á Korpúlfsstöðum

Sýningin InfoPHR opnar í sýningarrými Sambands íslenskra myndlistarmanna á Korpúlfsstöðum á morgun. Þar sýna níu listamenn frá Reykjavík, Hamborg og Prag afrakstur samstarfs síns síðastliðin þrjú ár.

Menning

Björgum Harry Potter

Í vikunni verður fimmta kvikmyndin um galdrastrákinn Harry Potter frumsýnd. Aðdáendur bókanna bíða hins vegar margir hverjir spenntari eftir sjöundu bókinni og vona heitt og innilega að Potter haldi lífi. Vefsíða Waterstone-netbókaverslunarinnar hefur sett af stað undirskriftalista og biðlar þar til J.K Rowling um að gefa galdraunglingnum grið.

Menning

Vinna myndir og tóna

Slefberi nefnist einn af hinum skapandi sumarhópum Hins Hússins. Hópinn skipa þau Logi Leó Gunnarsson, Birna Björnsdóttir og Helena Aðalsteinsdóttir.

Menning

Rándýr hauskúpa

Myndlistarmaðurinn Damien Hirst opnaði í byrjun júnímánaðar sýningu þar sem hann sýnir dýrasta listaverk sem hefur verið búið til. Verkið er hauskúpa í fullri stærð úr títaníum alþakin demöntum. Á hauskúpunni eru 8601 demantar sem eru samtals 1106,18 karöt.

Menning

Hrófatildur í Hyde Park

Breska blaðið Observer greindi frá því í fyrri viku að að fyrirhugaður skáli Ólafs Elíassonar og norska arkitektsins Ketils Thorsen við Serpentine-galleríið í London yrði ekki reistur sökum þess að þeir hefðu ekki staðist skilafrest á teikningum.

Menning

Innblástur frá málurum

Tískuhúsið Christian Dior fagnar þessa dagana sextíu ára afmæli sínu og John Galliano, yfirhönnuður þess, fagnar því einnig að tíu ár eru síðan hann tók við hjá Dior.

Menning

Warhol í Skotlandi

Einn viðburða á Edinborgarhátíðinni í byrjun águst er gríðarstór yfirlitssýning á verkum Andy Warhol á Skoska Þjóðlistasafninu. Þar mun æja saman ólíklegustu verkum hans.

Menning

Lokahelgi Davíðs

Það er komið að sýningarlokum á fyrstu einkasýningu Davíðs Arnar Halldórssonar í Safninu á Laugavegi. Hann er fæddur í Reykjavík, býr þar og starfar. Davíð Örn fæst við málaralistina og hefur gert síðan hann útskrifaðist frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2002. Á þessum tíma hefur Davíð Örn

Menning

Sýnt í Innréttingum

Handverk og hönnun hefur nú haft aðsetur í nýuppgerðu húsi Innréttinganna í Aðalstræti 10 í Reykjavík um nokkurt skeið. Á fimmtudag var þar opnuð ný sýning á vegum samtakanna. Hún kallast Á skörinni. Þar sýna Margrét Þórarinsdóttir handgerða fugla, Snjólaug Sigurjónsdóttir sýnir útsaumaðar myndir og Fitjakot sýnir púða.

Menning

Nýtt Blek

Nýtt hefti af myndasögublaðinu Blek er komið út en það ber nú heitið Neo-Blek. Þetta er tólfta blaðið í hinni merku útgáfu íslenskra myndasögusmiða og hefur útgáfa þess ekki notið nægilegrar athygli.

Menning

Blöndal í Boxi

Myndlistarkonan Margrét Blöndal sýnir teikningar sína í Gallerí Box í Kaupvangsstræti 10 á Akureyri og verður sýningaropnun á laugardag - 07.07.07 - kl. 14:00. Sýningin stendur til 22.júlí og er opið á laugardögum og sunnudögum frá 14-17 en einnig eftir samkomulagi.

Menning

Guðfaðir poppsins

Breski myndlistarmaðurinn Peter Blake - maðurinn sem gerði ásamt eiginkonu sinni umslagið utanum Sergent Peppers er sjötíu og fimm um þessar mundir. Hann heldur upp á afmælið með stórri málverkasýningu í Tate-safninu í Liverpool og hefur mátt þola nokkra gagnrýni í blöðum eftir að hún opnaði í síðustu viku.

Menning

Hamingjudagar

Hamingjudagar skella á í Gallery Turpentine í eftirmiðdaginn þegar Guðrún Vera Hjartardóttir myndlistarkona opnar þar sýningu. Guðrún segist hafa smíðað sýninguna inn í rýmið á Ingólfsstrætinu þar sem Turpentine er til húsa. Verkin eru fjögur og passa inn: „Þau eru öll í stærri kantinum,“ segir Guðrún. Guðrún Vera hélt síðast sýningu á Íslandi í lok ársins 2005, þá í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.

Menning

Álfar setjast að í Edens ranni

Þegar heldri konur vildu taka sér sunnudagstúr létu þær karlana keyra sig í Eden áður fyrr. Nú er ný kynslóð kvenna sæknari á önnur mið. Og þó. Á laugardag ætla fjórar vaskar myndlistarkonur að opna sýningu í Edens ranni. Þær eru Anna Hallin, Margrét Hlín Sveinsdóttir, Olga Bergmann og Steinunn Guðríður Helgadóttir en þær voru allar við myndlistarnám á sama tíma í Gautaborg.

Menning

Tumi í Skaftafelli

Tumi Magnúson listmálari opnar á morgun sýningu í seyðfirska menningarsetrinu Skaftfelli. Á sýningunni gefur að líta tvö stór prent og myndverk á fimm skjám með hljóði. Efniviðurinn er eins og hefur verið um langt skeið hinn fljótandi litur og þaðan er nafnið komið á sýninguna: Pollar.

Menning

„..frá því ég gat haldið á skærum“

Borin verða upp þau nýmæli í versluninni og menningarsetrinu 12 Tónum á næstu vikum að þar verður uppi myndlistarsýning: Það er listakonan Sigríður Níelsdóttir sem sýnir þar klippimyndir.

Menning

Sökk eða stökk

Hópur listamanna leggur alþjóðlegri ráðstefnu lið sem haldin verður hér um komandi helgi með því að gefa verk eftir sig. Verða verkin boðin upp á uppboði á fimmtudag en þau verða til sýnis í Startart á Laugavegi 12b í dag og á morgun á afgreiðslutíma verslana. Klukkutíma fyrir uppboðið, sem verður kl. 17 á fimmtudag, kynna listamennirnir verkin áhugasömum.

Menning

Gögn um listir á Artprice

Veffyrirtækið Artprice og hagsmunasamtök myndréttarhafa ADAGP hafa gengið frá samkomulagi sín á milli um gjald fyrir birtingu mynda af listaverkum á vefsíðu Artprice. Artprice heldur úti vefsíðum á fimm tungumálum þar sem myndlist gengur kaupum og sölum.

Menning

Útgáfu Rafskinnu fagnað

DVD-Sjónritið Rafskinna kom út í fyrsta sinn nú á laugardaginn. Rafskinna er sambland af hefðbundnu pappírstímariti og alls konar efni á DVD-diski, myndböndum, viðtölum og öðru.

Menning

Sigurjónssýning í Friðriksborgarhöll

Mannamyndir Sigurjóns Ólafssonar verða efni í sýningu haustið 2008 á Nationalhistorisk Museum á Friðriksborgarsloti. Hingað komu í liðinni viku þrír sérfræðingar á vegum safnsins í Hilleröd til að velja verkin í samráði við Birgitte Spur, forstöðukonu Sigurjónssafns í Laugarnesi og ekkju Sigurjóns.

Menning

Sjónvarp dauðans

Þess berast nú fregnir að Þjóðverjar hyggist á haustdögum setja á stofn sérstaka sjónvarpsrás sem helguð verður dauðanum. Vefrit Deutsche Welle greinir frá því að samband þýskra útfararstjóra standi að baki stöðinni sem mun sjónvarpa efni allan sólarhringinn en þar verði meðal annars fjallað um sorgarferli, útfararsiði, reglugerðir og annað tilstand er fylgir þessu óumflýjanlega hlutskipti.

Menning

Dansarar hnoðast um bæinn

Danshópurinn Hnoð samanstendur af fjórum ungum stúlkum sem stunduðu allar nám í Listdansskóla Íslands. „Við erum aðallega að vekja athygli á dansi, leikum okkur mikið með spuna og vinnum út frá aðstæðunum. Þetta er svolítið í dansleikhússtíl,“ segir Ásrún Magnúsdóttir en hópurinn er hluti af Skapandi sumarstarfi Hins hússins.

Menning

Sýn leigjendanna

Samsýningin „Leigjendurnir“ var opnuð í húsakynnum SÍM á Seljavegi 32 á dögunum. Þar sýna fimm erlendir gestalistamenn verk sín sem eru í vinnslu á vinnustofum þeirra.

Menning

Yfirlit um Georg Guðna

Sumarsýning Listasafnsins á Akureyri, sem verður opnuð í dag, er helguð yfirliti á verkum Georgs Guðna landslagsmálara, en þar gefur að líta höfundarverk eins helsta listamanns sinnar kynslóðar. Sýningin er yfirgripsmikil og gefur gestum Listasafns Akureyrar tækifæri til að skoða verk Georgs Guðna í stóru samhengi.

Menning