Menning

Ljóðastund í Mosfellsbæ

Jóhann Hjálmarsson og Christopher Burawa.
Jóhann Hjálmarsson og Christopher Burawa.

Ljóðastund í tali og tónum fer fram í Listasal Mosfellsbæjar annað kvöld kl. 20. Jóhann Hjálmarsson og Christopher Burawa lesa úr ljóðum sínum og þýðingum og Tríó Carls Möller fléttar inn djasstónum. Tríóið skipa þeir Carl Möller, Guðmundur Steingrímsson og Bjarni Sveinbjörnsson. Tónlistin er eftir Carl Möller og fleiri.

Jóhann Hjálmarsson hefur sent frá sér sautján ljóðabækur, hina fyrstu 1956. Hann var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2006. Ljóð Jóhanns hafa verið þýdd á um þrjátíu tungumál og hafa birst víða í tímaritum og safnritum og að auki í sérstökum bókum í Svíþjóð, Finnlandi, Bandaríkjunum, á Spáni og í Noregi.

Bandaríska skáldið og þýðandinn Christopher Burawa er fæddur á Íslandi og á íslenska móður. Hann kennir enskar bókmenntir og skapandi skrif við Háskólann í Arizona og hefur fengið fjölda viður­kenninga fyrir bækur sínar og þýðingar. Hann hefur þýtt margar bækur eftir Jóhann Hjálmarsson og fyrir eina þeirra, Of the Same Mind, hlaut hann Toad Press International Chapbook Competition-verðlaunin árið 2005.

Aðgangur að ljóðastundinni er ókeypis og öllum opinn.- vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.