Menning

Sveitarstjóri og læknir eru Ekkiþjóðin

„Ekkiþjóðin heitir bandið. Skrifað svona. Ekkiþjóðin," segir Grímur Atlason sveitarstjóri. Hann ásamt félögum sínum, Lýði Árnasyni lækni og Hrólfi Vagnssyni, sem sér um að réttir tónstigar séu farnir, voru við upptökur á nýrri plötu sem gefa á út fljótlega í orðsins fyllstu merkingu.

Menning

Skrifar ævisögu Villa Vill

„Ég fór með þessa hugmynd til þeirra og átti allt eins von á því að þeir vildu finna einhvern þekktan rithöfund í þetta verkefni. Og ég hefði kyngt þeim rökum. En maður hefur svo sem séð þekkta rithöfunda skrifa um bransann og fundist það uppskrúfað og skrítið," segir Jón Ólafsson

Menning

Andóf þversögn

Hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands heldur áfram með fyrirlestri Jóns Ólafssonar heimspekings kl. 12.05 í dag í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið ber yfirskriftina Hvað er andóf?

Menning

Handjárnuð blóm

Sigurður Pálsson, skáld og þýðandi, heldur í dag fyrirlestur sem hann kallar Handjárn á blómin – Vangaveltur um leikritaþýðingar. Fyrirlesturinn fer fram í Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og hefst kl. 16.30.

Menning

Góði dátinn Svejk til bjargar

„Á tímum sem þessum er mikilvægt að rifja upp fílósófíu Svejks, hið fádæma æðruleysi hans en hann lætur sér fátt um finnast hvað sem á dynur," segir Davíð Ingason lyfjafræðingur.

Menning

Leikverk um Bólu-Hjálmar

Í kvöld verður aukasýning á verkinu Brunað gegnum Bólu-Hjálmar á vegum Stoppleikhópsins í Leikhúsinu í Funalind 2 í Kópavogi. Verkið er nýtt af nálinni en höfundar eru þeir Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Verkið byggist á lífi og ljóðum Hjálmars Jónssonar sem kenndur er við Bólu. Sýningin hefst kl. 20.00.

Menning

Djass í Iðnó

Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Iðnó í kvöld kl. 20.30. Stjórnandi og höfundur tónlistar á þessum tónleikum verður Nikolaj Bentzon, fyrrum píanóleikari og aðalstjórnandi Stórsveitar Danska ríkisútvarpsins.

Menning

Nýr kvartett spilar í dag

Háskólatónleikar hafa um langan aldur sett svip sinn á stærsta vinnustað landsins. Þeir eru í skjóli Norræna hússins enda salurinn þar vel hentugur til minni tónleika.

Menning

Framleiðir leikrit með Titanic-stjörnu í Los Angeles

Leikverkið Sexy Laundry er tilnefnt til þriggja verðlauna hjá tímaritinu LA Weekly en það þykja virtustu leikhúsverðlaunin í Englaborginni. Einn framleiðandi verksins er Íslendingurinn Óskar Eiríksson og hann var að vonum ákaflega glaður yfir þessum fréttum þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Þetta eru víst stærstu verðlaunin í borginni þótt þau telji lítið á ameríska vísu,“ segir Óskar og er þar að vísa meðal annars til Tony-verðlaunanna sem eru hálfgerð Óskarsverðlaun fyrir bandarískt leikhúsfólk. Í LA er þó urmullinn allur af leikhúsum og þar er mjög blómlegt leikhúslíf þótt allra augu beinist að sjálfsögðu að kvikmyndaframleiðslunni í Hollywood. Sexy Laundry er tilnefnt sem besti einleikurinn, besti leikstjóri einleiks og besta leikmyndin.

Menning

Góðir möguleikar á Grammy

Meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem er tilnefnd til Grammy-verðlaunanna í ár, bíða nú spenntir eftir afhendingu þeirra í Los Angeles annað kvöld.

Menning

Skrítnar stelpur á kvikmyndahátíð

Listahópurinn Weird Girls Project verður áberandi á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Northern Wave Festival sem verður haldin á Grundafirði í annað sinn í lok febrúar.

Menning

Kreppa stöðvar Grammy-fara

„Það er mjög dýrt að fara þangað og taka þátt í þessu. Við búum ekki við þannig ástandi hér að við getum leyft okkur neinn munað,“ segir Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníusveitarinnar.

Menning

Sjónvarpsþættir Jóns Ólafs á sviðið

„Ég hef gengið með þessa hugmynd í maganum í nokkur ár,“ segir Jón Ólafsson tónlistarmaður. Hann gengst fyrir tónleikaröð í Salnum í Kópavogi sem hann kallar „Af fingrum fram“ og byggir á vinsælum samnefndum sjónvarpsþáttum hans. Fyrstu tónleikarnir verða 19. febrúar og er þá gestur Jóns sjálfur Magnús Eiríksson en sérstakur gestur verður söngkonan Ellen Kristjánsdóttir. „Mér datt í hug að færa þetta konsept úr sjónvarpinu og upp á svið. Ég ræði við Magnús og þá með meiri áherslu á tónlistina en ferilinn eins og var í sjónvarpinu. Hvort til dæmis hann hafi ekki fljótlega fengið ógeð á „Ég er á leiðinni“ eftir gegndarlausa útvarpsspilun þess lags. En mest verður þetta tónlist en ekki kjaftavaðall.“

Menning

Laddi sextugur í tvö ár

Sýningin Laddi 6-tugur fagnar óvæntum tímamótum í kvöld en Laddi sjálfur verður þá 62. Hópurinn kemur saman í síðasta sinn á laugardaginn.

Menning

Hjörvar í Iðnó

Í kvöld stígur Hjörvar á svið Iðnó ásamt einvalaliði tónlistarmanna og strengjasveit og flytur efni af nýju plötunni A Copy Of Me, ásamt vel völdu eldra efni. Einnig verður frumsýnt splúnkunýtt tónlistarmyndband sem gert var við lagið „See the Sea“. Húsið opnar klukkan 20 og kvartettinn Árstíðir stígur á svið skömmu síðar til að hita mannskapinn upp. Þúsund kall kostar inn, miðasalan í Iðnó er opin á milli kl. 11-16 og opnar svo aftur tveimur tímum fyrir tónleikana.

Menning

Óska eftir fólki í Leikhússport

„Við erum tvö frá Þýskalandi sem stöndum að þessu," segir Carl Henrik Deiting arkitekt sem hefur verið búsettur hér á landi síðastliðin tvö ár, um svokallaðan Leikhússporthóp sem hann stofnsetti fyrir tveimur mánuðum. Leikhússport byggist á spuna þar sem hópar keppa hvorir á móti öðrum á meðan áhorfendur hafa mikil áhrif á framvinduna.

Menning

Öll verk Kjarvals á salon

Nokkur hundruð verka Jóhannesar S. Kjarvals í eigu Listasafns Reykjavíkur verða dregin fram í dagsljósið á sýningunni Mynd af heild sem verður opnuð í austursal Kjarvalsstaða í dag. Það sem einkennir sýninguna er að hún er sett fram í anda salon-sýninga, þar sem verkin þekja alla veggi

Menning

Kammerverk vantar í sumar

Tónlistarhátíðin Við Djúpið er orðinn árviss viðburður við Djúp. Hún verður haldin á Ísafirði í 7. sinn dagana 18. til 23. júní 2009. Viðamesta verkefnið á dagskrá hátíðarinnar í ár er stórt samstarfsverkefni með Ísafold kammersveit og Rás 1 Ríkisútvarpsins.

Menning

Forlagið stelur Steinari Braga

„Jahhh, svíkja Nýhil? Nei, nei, það var mjög gott samkomulag um að ég færi,“ segir Steinar Bragi rithöfundur sem nýverið söðlaði um og gekk til liðs við Mál og menningu sem er hluti Forlags-veldisins.

Menning

Sjötugur Böðvar skrifar nýja bók

Blásið verður til mikillar veislu í íslensku óperunni 11. janúar þegar rithöfundurinn Böðvar Guðmundsson verður sjötugur. Fjöldi landsþekktra leikara mun lesa upp úr verkum Böðvars og skáldið sjálft heiðrar samkomuna með nærveru sinni en hann hefur verið búsettur í Danmörku undanfarinn aldarfjórðung.

Menning

Draumasmiðju veittur styrkur

Menning Draumasmiðjan hefur fengið styrk frá Norræna menningarsjóðnum til að halda alþjóðlega döff leiklistarhátíðina DRAUMAR 2009.

Menning

Pönkast á breskri leikhúshefð

Það er frumsýning hjá Gísla Erni Garðarssyni í kvöld í konunglega Shakespeare-leikhúsinu í Bretlandi. Hann leikur í pönkútgáfu af óperunni Don Giovanni.

Menning

Dýrasta bók landsins uppseld

Þau hundrað eintök sem komu af Flóru Íslands eftir Eggert Pétursson fyrir jól eru seld. Alls voru prentuð fimm hundruð eintök og afgangurinn kemur um miðjan janúar frá Kína.

Menning

Merzedes Club var pönk

Listamaðurinn Ceres 4 (Hlynur Áskelsson) hefur komið víða við. Pönkað á plötum og hnyklað vöðvana í Merzedes Club. Hann hóf listaferilinn á ljóðaplötunni Kaldastríðsljóðin árið 2000 og hefur nú gefið þau ljóð út á glæsilegri bók, sem Þorvaldur Jónsson og Davíð Hólm myndskreyta.

Menning

Leikstýrir ekki aftur í Mexíkó

Guillermo del Toro segir það ólíklegt að hann kvikmyndi á nýjan leik í heimalandi sínu Mexíkó. Ástæðan er öryggisleysi eftir að föður hans var rænt þar í landi fyrir tíu árum. Honum var á endanum sleppt en fjölskylda leikstjórans segir að henni hafi borist dauðahótanir eftir atvikið. Del Toro, sem er þekktastur fyrir Hellboy-myndirnar og Pan"s Labyrinth, finnur fyrir óöryggi sem leikstjóri í landinu vegna þess að hans daglega rútína fer fram fyrir opnum tjöldum.

Menning

Grín fyrir vitsmunaverur

Aukablaðið hefur komið út á netinu síðan 2001 og vakið athygli fyrir gagnrýnar og skemmtilegar teikningar. Höfundurinn Sverrir Björnsson segir Aukablaðið ágætis samtímaspegil.

Menning