Menning

Draumur hafsins afhjúpaður

Rafaella Brizuela Sigurðardóttir lauk í gær við risastórt málverk, sem kallast Draumur hafsins, á hundrað fermetra húsgafl á Laugavegi 159. Hugmyndin á bak við listaverkið kemur úr gamalli persneskri sögu úr bahái-trúnni og einnig úr íslenskri menningu.

Menning

Sögur gefa út sex bækur í Svíþjóð

Sögur útgáfa færir út kvíarnar og gefur út sex bækur í Svíþjóð fyrir jól. Tómas Hermannsson útgefandi segir drauminn vera að gefa út bækur jöfnum höndum á íslensku og sænsku.

Menning

Erótíska bylgjan heldur áfram

Sylvia Day hefur gefið út þrjár bækur í Crossfire-þríleiknum, sem eiga það sameiginlegt með 50 gráum skuggum að fjalla um samskipti hrjáðs auðmanns og fagurrar konu.

Menning

250 þúsund seld í Frakklandi

Glæpasagan Myrká eftir Arnald Indriðason hefur notið mikilla vinsælda í Frakklandi frá því hún kom út í vasabroti síðastliðið vor og hefur selst í 250 þúsund eintökum á fáeinum mánuðum.

Menning

Guðrún Bergmann gefur út bók

Það var góðmennt í útgáfuhófi Guðrúnar Bergmann í Heilsuhúsinu en hún gefur út bókina Ung á öllum aldri fyrir þessi jól. Þar veitir Guðrún lesandanum innsýn í hvað hann getur gert með hækkandi lífaldri til að auka eigin lífsgæði og fá meira út úr lífinu.

Menning

Fyrsta sýnishorn úr Fölskum fugli

Vísir frumsýnir hér glænýtt sýnishorn úr kvikmyndinni Falskur fugl. Myndin er byggð á samnefndri bók Mikaels Torfasonar sem kom út árið 1997 en Jón Atli Jónasson skrifar handritið. Þór Ómar Jónsson leikstýrir myndinni. Kvikmyndatökumaður er Christoph Nicolaisen.

Menning

Bókadómur: Kortið og landið

Kortið og landið er þriðja skáldsaga Michel Houellebecq sem kemur út í íslenskri þýðingu Friðriks Rafnssonar. Tvær hinnar fyrri, Öreindirnar og Áform, vöktu heilmikla athygli, enda voru þær sláandi róttækar, bæði í greiningu sinni á samtímanum og í lýsingum á ofbeldi og kynlífi sem

Menning

Hrollvekjur í gamni og alvöru

Í teiknimyndinni Hótel Transylvania býður Drakúla öllum helstu skrímslum heimsins í 118 ára afmæli dóttur sinnar, Mavis. Veislan er haldin á hóteli hans sem er sérstaklega fyrir skrímsli.

Menning

Leikhúsið er hálfpartinn verndaður vinnustaður

Gullregn nefnist nýtt leikrit eftir Ragnar Bragason sem Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld. Ragnar, sem er einn okkar þekktustu kvikmyndaleikstjóra, leikstýrir verkinu sjálfur og það liggur beinast við að hefja spjallið á því að spyrja hvað hafi eiginlega dregið hann frá kvikmyndavélunum og inn í leikhúsið.

Menning

Frumsýnd eftir áramót í Bandaríkjunum

Bandaríska endurgerðin á íslensku kvikmyndinni "Á annan veg" verður frumsýnd vestanhafs eftir áramót. Endurgerðin ber titilinn "Prince Avalanche" og var tekin upp í Austin í Texasfylki í sumar. Myndin er nú á lokastigi eftirvinnslunnar. Stefnt er á að sýna Prince Avalanche hér á landi stuttu eftir frumsýninguna í Bandaríkjunum.

Menning

Enduruppspretta Ayn Rand

Tvö skáldverk eftir Ayn Rand hafa komið út í íslenskri þýðingu með stuttu millibili, Undirstaðan og Uppsprettan.

Menning

Blóðbandabrullaup

Bastarðar nefnist nýjasta stykkið úr smiðju Vesturports sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Verkið er unnið í samvinnu við þrjú norræn leikhús og hefur hlotið mikið lof í Svíþjóð og Danmörku.

Menning

Tómur en fullur salur

Í innsetningu sem þessari er salurinn tómur, en samt fullur, og misbjagaðar myndirnar af rýminu í HA hafa skynræn og líkamleg áhrif á mann.

Menning

Þrír leikstjórar skoða Húsið

Þrír þekktir innlendir leikstjórar eru að íhuga að kvikmynda elleftu skáldsögu Stefáns Mána, Húsið, sem er nýkomin út. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru þeir að lesa bókina um þessar mundir með kvikmyndaréttinn í huga.

Menning

Að drepa skipbrotsmenn er níðingsverk

Finnski rithöfundurinn Tapio Koivukari sendi í fyrra frá sér skáldsöguna Ariasman, sögulega skáldsögu um Spánverjavígin á Vestfjörðum árið 1615 og aðdraganda þeirra. Bókin er nú komin út í íslenskri þýðingu Sigurðar Karlssonar og Tapio var tekinn í yfirheyrslu af því tilefni.

Menning

Framlengir líkamann

Ljósmyndasýning á Mokka sem samanstendur af sextán ljósmyndum sem Margrét hefur tekið síðustu mánuði.

Menning

Trúlofuðust á sviði umkringd blóði og útlimum

„Þetta var svo ekta við. Að trúlofast á sviði í Berlín umkringd blóði og gervilimum,“ segir leikkonan Svandís Dóra Einarsdóttir sem fékk afar óvenjulegt bónorð frá unnusta sínum, leikskáldinu Sigtryggi Magnasyni, þann 5. október. Hann fór niður á skeljarnar að lokinni íslensku danssýningunni We Saw Monsters í leikhúsinu Berliner Festspiele.

Menning

Sænskir töfrar

Sænski töframaðurinn Tom Stone verður aðalgesturinn á árlegri töfrasýningu Hins íslenska töframannagildis sem verður haldin í Salnum í dag.

Menning

Sagafilm með í Emmy-tilnefningu

Þýska heimildarmyndin Wettlauf Zum Südpol, sem heitir á ensku Race to the South Pole, er tilnefnd til alþjóðlegu Emmy-verðlaunanna sem besta heimildarmyndin. Myndin er framleidd af þýska framleiðslufyrirtækinu Loopfilm en íslenska framleiðslufyrirtækið Sagafilm aðstoðaði við framleiðslu á þessu metnaðarfulla verkefni.

Menning

Efnafræðingurinn syngjandi

Íransk-bandaríski baritónsöngvarinn Anooshah Golesorki fer með hlutverk Luna greifa í uppfærslu Íslensku óperunnar á Il Trovatore, sem frumsýnd verður í Hörpu í kvöld. Golesorki er efnafræðingur að mennt en eftir viðdvöl á tilraunastofum og í viðskiptalífinu hefur leið hans legið um helstu óperuhús heims.

Menning

Ragnar Jónasson fagnaði útkomu nýrrar bókar

Ragnar Jónasson rithöfundur fagnaði útkomu fjórðu bókar sinnar í verslun Eymundsson í Austurstræti í dag. Bókin, sem heitir Rof, er fjórða bók Ragnars. Fyrsta bókin hans, Fölsk nóta, kom út árið 2009. Rof segir frá tveimur ungum hjónum sem flytja árið 1955 í afskekktan eyðifjöðr. Dvölin fær snöggan endi legar önnur kvenanna deyr með dularfullum hætti. Hálfri öld síðar finnst gömul ljósmynd sem bendir til þess að hjónin hafi ekki verið ein í firðinum. Ari Þór lögreglumaður á Siglufirði reynir að fá botn í þetta sérkennilega mál með liðsinni fréttakonunnar Ísrúnar. Og í Reykjavík vindur óvænt sakamál upp á sig þegar ung fjölskylda er ofsótt af ókunnum manni.

Menning