Menning

Þykir vænst um þá texta sem fá minnstu athyglina og hólið

Megas er umsvifamikill í jólavertíðinni í ár. Nýlega kom út bók þar sem er að finna yfir 600 texta frá meistaranum og um mánaðamótin kemur út fjögurra diska safnplata með lögum Megasar til síðustu tíu ára. Sjálfur kveðst hann nokkuð ánægður með hvoru tveggja.

Menning

Svartir dagar í Bíói Paradís

Svartir sunnudagar nefnist dagskrárliður í Bíói Paradís sem fram fer öll sunnudagskvöld. Aðstandendur Svartra sunnudaga eru Hugleikur Dagsson, Sjón og Sigurjón Kjartansson og hafa þeir staðið fyrir sýningum á myndum sem falla undir költ-flokkinn.

Menning

Útpældur bókatitill

Frosti Gnarr, sonur Jóns, hannar bókarkápu Sjóræningjans, en á henni má sjá mynd af húðflúri sem Jón fékk sér nítján ára gamall.

Menning

Samsamaði sig sjóræningjum

„Þetta er sjálfstætt framhald Indjánans. Sjóræninginn segir frá Hlemmsárunum mínum, þegar ég er á aldrinum þrettán til fimmtán ára. Í stórum dráttum segir bókin frá því þegar ég lýk barnaskóla og fer í Réttarholtsskóla. Þar varð ég fyrir miklu einelti og lenti í ákveðnum erfiðleikum, svo kynnist ég pönkinu og fer að hanga á Hlemmi,"

Menning

Hátíð helguð furðum, göldrum og gufupönki

Kjartan Yngvi Björnsson, Snæbjörn Brynjarsson og Þorsteinn Mar Gunnlaugsson eru forsprakkar Íslenska furðusagnafélagsins, sem stendur fyrir hátíð í Norræna húsinu á föstudag og laugardag þar sem furðusögum verða gerð skil.

Menning

Meðgönguljóð fæðast

"Okkur langaði að gera ljóð aðgengilegri," segir Sveinbjörg Bjarnadóttir bókaútgefandi. Hún er eigandi útgáfunnar Frú Stellu, sem sérhæfir sig í fagurbókmenntum.

Menning

Auðveldar fjölskyldufólki að finna afþreyingu

Það er hverju barni mikilvægt að hreyfa sig reglulega og eiga góðar stundir með fjölskyldunni, segja þær Sigríður Arna Sigurðardóttir og Lára Guðrún Sigurðardóttir höfundar nýrrar bókar um útivist og afþreyingu fyrir börn.

Menning

Þjóðfræði í kvikmynd

Þjóðfræðinemarnir Björk Hólm Þorsteinsdóttir og Ólafur Ingibergsson hafa síðastliðin þrjú sumur unnið að heimildarþáttaröðinni Þjóðfræði í mynd, með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og Háskóla Íslands.

Menning

Gaman að vinna með mömmu

„Ég tók þátt í sýningunni með Felix Bergssyni nokkrum sinnum og þegar ég spurði hann út í sýninguna í ár voru blikur á lofti. Ég sagði við Felix að hann yrði að setja upp verkið, annars mundi ég gera það. Og úr því varð,“ útskýrir Orri Huginn Ágústsson sem fer með öll helstu hlutverk í leiksýningunni Ævintýrið um Augastein.

Menning

Mesta áskorunin var kynlífslýsingar og koddahjal

„Í ferlinu komumst við að því að það er lítil hefð fyrir koddahjali á íslensku og var það mesta áskorunin fyrir okkur,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sem ásamt Þóru Karitas Árnadóttur hefur þýtt metsölubókina Þú afhjúpar mig eftir Sylviu Day.

Menning

Stóll frá afa og ömmu í öndvegi á heimilinu

„Mig langar að varpa ljósi á ýmsa þætti í hversdagslífi fólks á síðustu öld, til dæmis hvaða munir voru fólki kærir og eftirminnilegir á uppvaxtarheimilinu. Líka hvort eitthvað af þeim hlutum hafi fylgt fólki inn í samtímann,“ segir dr. Sigurður Gylfi um rannsókn sína á samspili efnis og tilfinningalífs fólks. Spurningalistar sem Þjóðminjasafnið hefur sent út nýlega undir yfirskriftinni Híbýli, húsbúnaður og hversdagslíf eru eitt af því sem hann notar við þá rannsókn.

Menning

Safna pening á netinu til að ljúka við gerð Hross

„Við erum að safna peningum í eftirvinnsluna svo við getum gert þetta vel,“ segir Benedikt Erlingsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Hross. Tökum á henni er lokið og er stefnt á frumsýningu hérlendis næsta haust. Á síðunni Alpha.karolinafund.com óska aðstandendur Hross eftir fjárhagsaðstoð til að geta klárað myndina og vonast þeir til að safna sex og hálfri milljón króna á tveimur mánuðum. Í staðinn fá þeir sem veita aðstoðina eitthvað fyrir sinn snúð.

Menning

Líf flestra er alveg skelfileg vonbrigði

Málarinn eftir Ólaf Gunnarsson er mikil örlagasaga eins og búast má við frá hans hendi. Söguefnið rifjar upp smásöguna Kjarvalsmálverkið í Meistaraverkinu, smásagnasafni Ólafs frá í fyrra. Varð sú saga kveikjan að skáldsögunni?

Menning

Ástin, fortíðin, pólitíkin og allt hitt á Bókamessu

"Markmiðið er fyrst og fremst að sýna fram á þá gróskumiklu og breiðu flóru sem íslensk bókaútgáfa býður upp á,” segir Kristín Viðarsdóttir verkefnisstjóri um bókamessu sem Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO í Ráðhúsi Reykjavíkur á laugardag og sunnudag.

Menning

Segir RIFF hafa öðlast nýtt líf

Danski blaðamaðurinn og kvikmyndasérfræðingurinn Bo Green Jensen segir hrokafulla bjartsýni hafa einkennt fyrstu RIFF-hátíðina sem fram fór árið 2004. Í grein í Weekendavisen segir hann hins vegar að hátíðin hafi öðlast nýtt líf í kjölfar kreppunnar og sé í raun tákn þess hversu Ísland hefur rétt úr kútnum eftir hrun.

Menning

List þýðandans að vera ósýnilegur

List þýðandans felst í því að vera ósýnilegur," segir Arnar Matthíasson þýðandi, einn þeirra sem lesa upp úr eigin þýðingum á Hlaðborði Bandalags þýðenda og túlka á Súfistanum annað kvöld.

Menning

Redford framleiðir Aldingarð Ólafs

Hollywoodleikarinn, leikstjórinn og framleiðandinn Robert Redford undirbýr sjónvarpsþætti byggða á smásagnasafni Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Aldingarðinum. Erlendir miðlar fara mikinn í umfjöllun sinni um væntanlega þætti enda Redford ákveðinn gæðastimpill á verkefninu en hann er titlaður framleiðandi. Þættirnir bera heitið Valentines og verða sýndir á Sundance-sjónvarpsstöðinni. Ásamt Redford er Fred Berner framleiðandi en hann er meðal annars með myndir á borð við Pollock og sjónvarpsþættina Law and Order á ferilskránni.

Menning

Uppseld í útgáfuhófi

Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfuteiti fyrir Gleðigjafa, bók sem inniheldur tæplega 30 frásagnir foreldra barna sem eru einstök á einhvern hátt. Um 200 manns mættu sem er met hjá Eymundsson. Bókin seldist upp í útgáfuhófinu sem er einsdæmi.

Menning

Heimildamyndahátíð hafin í Bíó Paradís

„Wonder Women: The Untold Story of American Superheroines" er ein þeirra mynda sem sýnd er á heimildamyndahátíðinni Bíó:DOX sem hefst í dag. Myndin segir frá þróun og arfleifð hinnar stórkostlegu ofurhetju Wonder Woman, allt frá tilurð teiknimyndahetjunnar um 1940 til nútíma vinsælda hennar. Í myndinni er kannað hvernig birtingarmyndir kraftmikilla kvenna endurspegla hræðslu samfélagsins við aukin réttindi þeirra. Wonder Women! kafar undir yfirborðið með Lyndu Carter, Lindsay Wagner, gamanhöfundum og listamönnum og einnig með raunverulegum kvenofurhetjum eins og Gloriu Steinem, Kathleen Hanna og fleirum, sem bjóða upp á upplýsandi og skemmtilega andstæðu við karllægan heim ofurhetja.

Menning

Síminn stoppaði ekki í fimm ár

Þáttaröðin Íslensku björgunarsveitirnar hefst á sunnudaginn næsta á RÚV. Þættirnir eru fjórir talsins, koma úr smiðju Sagafilm og hafa verið fimm ár í vinnslu.

Menning

Uppblásin ímynd á reki

Olga og Anna hafa unnið saman um árabil, sýndu meðal annars í Kling og Bang í fyrra, auk þess að hafa unnið með öðrum listamönnum og arkitektum.

Menning

Walker í The Missionary

Handritshöfundur sjónvarpsþáttanna er Charles Randolph en hann skrifaði meðal annars handritið að kvikmyndinni Love and Other Drugs.

Menning