Golf
135 136 137 138 139 140 141 142 143 … 178 ›
Tiger byrjaði vel á Pebble Beach | Spilar með Tony Romo Tiger Woods hóf keppnistímabilið á nýju ári nokkuð vel en hann skilaði sér í hús á 68 höggum á fyrsta PGA-móti ársins sem fer fram í Pebble Beach um helgina. Golf 10.2.2012 10:30
John Daly fékk keppnisbann og sekt í Ástralíu | í fjórða sæti í Katar Bandaríski kylfingurinn John Daly náði sér loksins á strik á golfvellinum en hann endaði í fjórða sæti á Katar meistaramótinu sem lauk um helgina. Daly er ekki með keppnisrétt á PGA eða Evrópumótaröðinni og hefur hann stólað á að vera boðið á mótin af styrktaraðilum. Það verður einhver bið á því að Daly leiki á ný í Ástralíu því þar hefur hann verið úrskurðaður í keppnisbann. Golf 6.2.2012 18:30
Paul Lawrie stimplaði sig inn með sjaldgjæfum sigri Skoski kylfingurinn Paul Lawrie hefur ekki látið fara mikið fyrir sér á atvinnumótum frá því hann landaði sigri á opna breska meistaramótinu árið 1999. Hinn 43 ára gamli kylfingur sigraði á Katar meistaramótinu á Evrópumótaröðinni um helgina og með sigrinum komst Lawrie í hóp 50 efstu á heimslistanum í fyrsta sinn frá árinu 2003. Golf 6.2.2012 14:00
Stanley kom sterkur til baka og sigraði í Phoenix Kyle Stanley sigraði á Farmers Insurance meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem lauk í gær. Þetta er fyrsti sigur Stanley á sterkustu atvinnumótaröð heims en hann er 24 ára gamall Bandaríkjamaður. Fyrir viku var Stanley í efsta sæti þegar aðeins nokkrar holur voru eftir á lokakeppnisdeginum á Torrey Pines en þar gerði hann afdrifarík mistök sem kostuðu hann sigurinn. Hann tapaði í bráðabana gegn Brandt Snedeker á því móti. Golf 6.2.2012 11:30
Fjórtán ára sigurvegari á atvinnumannamóti Lydia Ko fjórtán ára gömul stúlka frá Nýja-Sjálandi varð í dag yngsti kylfingurinn til að sigra atvinnumannamót í golfi þegar hún sigraði New South Wales Open kvenngolfmótið á áströlsku mótaröðinni. Golf 29.1.2012 18:30
Rock hafði betur gegn Tiger Tiltölulega lítt þekktur kylfingur Robert Rock gerði sér lítið fyrir og sigraði Abu Dhabi HSBC golfmótið á evrópskumótaröðinni í golfi og stóðst pressuna á að vera með Tiger Woods í lokahollinu. Golf 29.1.2012 13:45
Tiger Woods í stuði - efstur að loknum þriðja degi Tiger Woods er í fyrsta sæti að loknum þriðja keppnisdegi á HSBC Golfmótinu í Abu Dhabi. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Golf 28.1.2012 20:00
Stefán Már og Þórður Rafn komust áfram - þriðji hringur leikinn í dag Kylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur komust í gegnum niðurskurðinn á Gloria Old Course Classic mótinu í Tyrklandi í gær. Þriðji og síðasti hringurinn verður leikinn í dag. Golf 25.1.2012 10:00
Stefán Már og Þórður Rafn á fjórum yfir pari á fyrsta hring Kylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur léku fyrsta hringinn á Gloria Old Course Classic mótinu í Tyrklandi á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Þetta kemur fram á kylfingur.is. Golf 23.1.2012 16:15
Erfitt hjá Tinnu á Spáni Tinna Jóhannsdóttir, kylfingur úr GK, er meðal neðstu keppenda í lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi eftir fyrstu þrjá keppnishringina. Golf 17.1.2012 14:57
Tinna byrjar ekki vel á lokaúrtökumótinu á Spáni Tinna Jóhannsdóttir úr Keili náði ekki að spila sitt besta golf á fyrsta hringnum í lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna sem fram fer á La Manga á Spáni. Tinna lék fyrstu 18 holurnar á mótinu á 76 höggum eða fimm höggum yfir pari. Golf 15.1.2012 15:47
Tinna komin áfram á lokaúrtökumótið Tinna Jóhannsdóttir úr GK er komin áfram á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina í golfi þrátt fyrir að hafa spilað sinn versta hring á mótinu í dag. Golf 11.1.2012 16:44
Tinna í góðri stöðu fyrir lokahringinn Tinna Jóhannsdóttir úr golfklúbbnum Keili er í mjög sterkri stöðu fyrir lokahringinn í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi sem nú stendur yfir á Spáni. Golf 10.1.2012 17:28
Stricker sigraði á fyrsta PGA móti ársins Steve Stricker sigraði á fyrsta PGA golfmóti ársins sem fór fram á Kapalua á Hawaii en þar áttust við þeir kylfingar sem náðu að sigra á PGA móti á síðasta keppnistímabili. Golf 10.1.2012 12:15
Fjórir meðlimir í Team Iceland í golfinu | Breytt skipulag afrekshópa Úlfar Jónsson nýráðinn landsliðsþjálfari í golfi hefur að undanförnum vikum verið að skipuleggja æfingardagskrá fyrir afrekshópa GSÍ. Úlfar hefur skipt hópnum upp í samræmi við stöðu og markmið hvers kylfings og nefnast hóparnir Team Iceland, A hópur og B hópur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Golfsambandinu. Golf 9.1.2012 16:30
Tiger Woods er langtekjuhæsti íþróttamaður veraldar Þrátt fyrir afleitt gengi á undanförnum tveimur árum er bandaríski kylfingurinn Tiger Woods enn tekjuhæsti íþróttamaður heims. Tekjur Woods hafa lækkað um allt að 6,5 milljarða kr. á ári en engu að síður er hann langtekjuhæsti íþróttamaður ársins 2011. Talið er að Woods sé með um 9,1 milljarða kr. í árslaun. Þrír fótboltamenn eru á listanum yfir 10 tekjuhæstu íþróttamenn heims, tveir körfuboltamenn og tveir kylfingar. Golf 25.12.2011 20:00
Heimsþekktir kylfingar vilja hanna ólympíugolfvöllinn í Ríó Golf verður keppnisíþrótt á Ólympíuleikunum í Rio de Janeiro í Brasilíu árið 2016 og verður það í fyrsta sinn frá árinu 1904 sem keppt verður í golfi á ÓL. Keppnisvöllurinn í Rio de Janeiro er ekki tilbúinn og í febrúar verður greint frá því hvaða aðilar fá það hlutverk að teikna og hanna völlinn. Alls eru átta tillögur til skoðunar hjá Alþjóða ólympíunefndinni og framkvæmdanefnd ÓL í Brasilíu 2016. Golf 25.12.2011 10:00
Donald kylfingur ársins á Bretlandseyjum | Clarke og McIllroy jafnir Enski kylfingurinn Luke Donald hefur verið útnefndur kylfingur ársins á Bretlandseyjum en það eru samtök golfíþróttafréttamanna sem standa að kjörinu. Norður-Írinn Darren Clarke varð annar í kjörinu og landi hans Rory McIlroy deildi því sæti með Clarke. Donald er efstur á heimslistanum en Clarke og McIlroy náðu báðir að vinna stórmót á árinu 2011, Clarke á opna breska meistaramótinu og McIllroy á opna bandaríska meistaramótinu. Golf 25.12.2011 06:00
McIlroy spilar golf í hæstu hæðum - myndir Hinn 22 ára gamli Norður-Íri, Rory McIlroy, hefur átt frábært ár innan sem utan vallar. Hann var sigursæll á vellinum og nældi sér í kærustu sem er besta tenniskona heims. Golf 21.12.2011 17:30
McIlroy grét eftir klúðrið á Masters Kylfingurinn Rory MCIlroy hefur viðurkennt að hafa grátið eins og barn eftir að hann kastaði frá sér sigrinum á Masters-mótinu. Golf 17.12.2011 19:15
Westwood grátlega nálægt því að koma í hús á 59 höggum Englendingurinn Lee Westwood lék ótrúlegt golf á tælenska meistaramótinu í dag og var aðeins einu höggi frá því að koma í hús á 59 höggum. Hann lék holurnar 18 sem sagt á 60 höggum eða 11 undir pari. Hann er með fimm högga forskot eftir daginn. Golf 15.12.2011 17:15
Donald segist vanta risatitil Besti kylfingur heims um þessar mundir, Luke Donald, er ekki fullkomlega sáttur þó svo hann hafi átt ótrúlegt ár á vellinum. Hann rakaði inn mestum peningum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Golf 14.12.2011 12:00
Sögulegur árangur hjá Luke Donald Enski kylfingurinn Luke Donald varð í dag fyrstur í sögunni til að verða tekjuhæsti kylfingurinn á bæði bandarísku og evrópsku mótaröðinni í golfi. Golf 11.12.2011 11:32
Birgir Leifur komst ekki áfram Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki áfram á næsta stig úrtökumótaraðarinnar fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék á einu höggi undir pari í dag og lauk keppni í 42.-49. sæti. Golf 5.12.2011 14:27
Tiger Woods vann sinn sitt fyrsta mót í 749 daga Tiger Woods tryggði sér í kvöld sigur á Chevron World Challege mótinu í golfi sem fór fram í Kaliforníu. Zach Johnson var með eins högg forskot á Woods fyrir lokadaginn en Woods lék á þremur höggum undir pari í dag og tryggði sér langþráðan sigur. Golf 4.12.2011 23:28
Birgir Leifur þarf að spila frábærlega til að komast áfram Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í 59. sæti af 74 kylfingum á úrtökumótinu á öðru stigi sem fram fer á Spáni þessa helgi. Birgir Leifur hoppaði upp um þrettán sæti eftir að hafa spilað annan hringinn á einu höggi undir pari. Golf 4.12.2011 11:49
Tiger missti forystuna en heldur í vonina Tiger Woods á enn möguleika á því að vinna sitt fyrsta mót í tvö ár þrátt fyrir að hafa misst niður þriggja högga forystu á þriðja degi á Chevron World Challege mótinu sem fram fer í Kaliforníu. Golf 4.12.2011 11:00
Tiger í stuði og kominn með þriggja högga forskot Tiger Woods sýndi snilli sína í nótt og var í miklu stuði á öðrum hringnum á Chevron World Challege mótinu sem fram fer í Kaliforníu. Woods lék annan hringinn á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann hefur þriggja högga forskot þegar mótið er hálfnað. Golf 3.12.2011 11:00
Tiger Woods í toppbaráttunni í Kaliforníu Tiger Woods hefur byrjað vel á Chevron World Challenge boðsmótinu sem hann stendur fyrir og fer fram á Sherwood vellinum í Kaliforníu. Kóreumaðurinn KJ Choi er með forystu eftir fyrsta hring en Woods er í öðru sæti. Golf 2.12.2011 10:15
Tiger fær 360 milljónir kr. fyrir það eitt að mæta til leiks Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods nýtur enn vinsælda og til marks um það þá fær hann um 360 milljónir kr. fyrir það eitt að mæta til leiks á HSBC meistaramótið sem fram fer í Abu Dhabi. Mótið, sem fram fer í lok janúar á næsta ári, er hluti af Evrópumótaröðinni. Golf 25.11.2011 16:15