Erlent
75 76 77 78 79 80 81 82 83 … 334 ›
Þrjár stúlkur látnar eftir kynfæramisþyrmingu í Sierra Leone Lögregluyfirvöld í Síerra Leóne rannsaka nú dauðsföll þriggja stúlkna sem létust eftir að þær voru látna gangast undir umskurð, sem felur í sér að ytri kynfæri kvenna eru fjarlægð að öllu leyti eða að hluta til. Erlent 2.2.2024 06:56
Segja aðgerðum í Khan Younis að ljúka og beina sjónum að Rafah Ísraelsher er nú að ljúka aðgerðum sínum í Khan Younis, þar sem tekist hefur að uppræta Hamas, og mun næst beina sjónum sínum að Rafah. Erlent 2.2.2024 06:33
Dómstóll í Vín úrskurðar um flutning Fritzl Saksóknari í Austurríki hefur áfrýjað ákvörðun héraðsdómstóls í Krems í Austurríki um að flytja Josef Fritzl af réttargeðdeild í öryggisfangelsi í venjulegt fangelsi. Erlent 1.2.2024 23:22
Enginn öruggur staður eftir á Gasa „Aðstæður á Gaza eru eins og stendur hörmulegar. Líf allrar þjóðarinnar var snúið við og sett á hvolf þann 7. október,“ segir Nebal Farsakh, upplýsingafulltrúi palestínska Rauða hálfmánans á Gasa. Erlent 1.2.2024 23:19
Meint njósnadúfa frá Kína hreinsuð af sök Yfirvöld í Indlandi slepptu á þriðjudaginn dúfu eftir að hún hafði verið í haldi í átta mánuði vegna gruns um að hún væri í raun kínverskur njósnari. Eftir ítarlega rannsókn hefur komið í ljós að dúfan slapp frá eigendum sínum í Taívan. Erlent 1.2.2024 23:04
Vill losa herinn við úreltan hugsunarhátt Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir úkraínska herinn standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þó sé hægt að komast í gegnum þá með því að endurhugsa hernaðaraðgerðir og losa herinn við úreltan hugsunarhátt og herinn þarf að sníða stakkinn eftir vexti, vegna samdráttar í hernaðaraðstoð. Erlent 1.2.2024 22:01
Beitir landtökumenn refsiaðgerðum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, gaf í dag út tilskipun og beitti fjóra ísraelska landtökumenn á Vesturbakkanum sem hafa ráðist á Palestínumenn refsiaðgerðum. Hægt er að breyta tilskipuninni gegn fleiri landtökumönnum í framtíðinni en refsiaðgerðirnar fela meðal annars í sér að fólkið getur ekki átt í viðskiptum við bandarísk fyrirtæki og getur ekki ferðast til Bandaríkjanna. Erlent 1.2.2024 19:00
Leita manns sem skvetti eiturefnum framan í mæðgur Lögreglan í London leitar árásarmanns sem talinn er hafa skvett eiturefnum framan í 31 árs gamla konu og tvær dætur hennar, átta og þriggja ára, í suðurhluta borgarinnar í gærkvöldi. Fólk sem kom konunni til aðstoðar hlaut brunasár í kjölfarið. Erlent 1.2.2024 15:06
Viktor Orban gaf eftir: Ná saman um stuðning til Úkraínu Leiðtogar Evrópusambandsins hafa náð saman um stuðning til handa Úkraínu. Áður hafði Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, sett sig upp á móti stuðningnum. Erlent 1.2.2024 11:17
Zuckerberg bað fjölskyldur afsökunar á nefndarfundi í gær „Mér þykir leitt allt það sem þið hafið þurft að ganga í gegnum... það er hræðilegt. Það á enginn að þurfa að upplifa þá þjáningu sem þið hafið upplifað.“ Erlent 1.2.2024 08:05
Sprengjusveit kölluð til vegna búnaðar við sendiráð Ísrael í Stokkhólmi Lögregluyfirvöld í Svíþjóð voru kölluð til í gær eftir að „hættulegur“ og „virkur“ búnaður fannst fyrir utan embætti Ísrael í Stokkhólmi í gær. Sprengjusveit var send á staðinn og er sögð hafa eyðilagt búnaðinn. Erlent 1.2.2024 06:47
Herinn hefur tapað tugum bæja í hendur uppreisnarmanna Hersveitir herforingjastjórnarinnar í Mjanmar hafa þurft að þola hvern ósigurinn á fætur öðrum í átökum við uppreisnarmenn á undanförnum mánuðum. Þremur árum eftir að herforingjastjórnin rændi völdum af ríkisstjórn nóbelsverðlaunahafans Aung San Suu Kyi, hefur herforingjastjórnin aldrei verið í verri stöðu en nú. Erlent 31.1.2024 23:57
Þurfa árið til að snúa vörn í sókn Ástandið á vígvöllum í austanverðri Úkraínu hefur færst Rússum í vil á undanförnum mánuðum. Rússar hafa mun meira af skotfærum fyrir stórskotalið, eiga fleiri skrið- og bryndreka og eiga auðveldar með að fylla upp í raðir sínar vegna mannfalls. Erlent 31.1.2024 22:30
Afhöfðaði föður sinn og birti myndband af höfðinu Bandarískur maður hefur verið ákærður fyrir að myrða föður sinn og afhöfða hann. Hann birti svo myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann hélt á höfði föður síns og sakaði hann um að hafa svikið Bandaríkin og viðraði ýmsar samsæriskenningar um Joe Biden, farand- og flóttafólk, innrásina í Úkraínu og ýmislegt annað. Erlent 31.1.2024 19:56
Græddi milljarða en þótti hann engu að síður hafa verið svikinn Milljarðamæringurinn Dmitry Rybolovlev hefur tapað máli sem hann höfðaði gegn uppboðshúsinu Sotheby's í Bandaríkjunum, sem hann sakaði um að hafa haft af sér milljónir dollara. Erlent 31.1.2024 08:14
Einn leiðtoga Hamas segir nýjar vopnahléstillögur til skoðunar Ismail Haniyeh, einn af leiðtogum Hamas, segir samtökin nú liggja yfir nýjum tillögum að vopnahléi á Gasa. Tillögurnar fela í sér lausn gísla og voru lagðar fram að milligönguaðilum eftir viðræður við Ísrael. Erlent 31.1.2024 07:31
Sjötug kona í fimm ára fangelsi fyrir að vanvirða herinn Eldri kona hefur verið dæmd í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir að vanvirða rússneska herinn. Það gerði konan, sem er 72 ára gömul og frá Rostov-héraði, með því að deila tveimur færslum á rússneska samfélagsmiðlinum VKontakte. Erlent 30.1.2024 22:41
Biden segist búinn að ákveða sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist búinn að ákveða sig hvernig brugðist verði við drónaárás í Jórdaníu, þar sem þrír bandarískir hermenn létu lífið og minnst þrjátíu særðust. Forsvarsmenn hópsins sem gerði árásina segjast hættir að gera árásir á Bandaríkjamenn í bili. Erlent 30.1.2024 22:31
Með lásboga, hníf, sverð og öxi og í skotheldu vesti Maður sem skotinn var af lögregluþjónum í Lundúnum í morgun var vopnaður lásboga, hníf, sverði og öxi. Þar að auki var hann klæddur skotheldu vesti og hótaði hann íbúum húss í Southwark. Erlent 30.1.2024 21:03
Spítalinn í Rafah yfirfullur og skortur á öllu Íslenskur skurðhjúkrunarfræðingur sem starfaði á spítala á Gaza segir ástandið vægast sagt slæmt. Mikill skortur væri á lyfjum, áhöldum og mat og fjölmargir hafi misst jafnvel alla fjölskyldu sína. Erlent 30.1.2024 19:20
Sagður vilja reka Járnherforingjann Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er sagður ætla sér að skipta út Valerí Salúsjní, yfirmanni herafla landsins. Þeir funduðu í gær og bauð forsetinn Salúsjní að taka að sér stöðu varnarmálaráðgjafa en hann neitaði að segja af sér. Erlent 30.1.2024 18:21
Dulbjuggu sig og myrtu palestínska vígamenn á spítala Ísraelskir sérsveitarliðar dulbjuggu sig sem heilbrigðisstarfsmenn og myrtu þrjá palestínska menn á spítala á Vesturbakkanum í Palestínu í morgun. Ísraelsk yfirvöld segja að um hryðjuverkamenn hafi verið að ræða. Erlent 30.1.2024 12:58
Maður með lásboga skotinn til bana Maður með lásboga var skotinn til bana af lögreglu í suðurhluta London í Bretlandi í morgun. Maðurinn var á fertugsaldri. Erlent 30.1.2024 10:30
Dæmdur í tíu ára fangelsi Dómstóll í Pakistan hefur dæmt Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, í tíu ára fangelsi fyrir að hafa lekið ríkisleyndarmálum. Erlent 30.1.2024 08:44
Fimm handteknir í tengslum við líkfund í Mojave-eyðimörkinni Lögregla í San Bernardino í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur handtekið fimm einstaklinga eftir að sex lík fundust á afskekktum stað í Mojave-eyðimörkinni. Erlent 30.1.2024 08:04
Heilaflaga Neuralink Musk grædd í fyrsta einstaklinginn Auðjöfurinn og frumkvöðullinn Elon Musk hefur greint frá því að fyrirtæki hans Neuralink hafi nú í fyrsta sinn grætt þráðlausa tölvuflögu í heila manneskju. Erlent 30.1.2024 07:13
Liðsmenn Hamas ná aftur vopnum sínum í norðurhluta Gasa Liðsmenn Hamas eru sagðir hafa snúið aftur til norðurhluta Gasa, þar sem þeir eru sagðir vinna að því að ná aftur stjórn og ná vopnum sínum fyrir frekari átök við Ísraelsher. Erlent 30.1.2024 06:49
Fimm ára fangelsi fyrir að stela og leka skattskýrslum auðmanna Charles Littlejohn, fyrrverandi verktaki hjá bandaríska Skattinum, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að stela og leka skattskýrslum margra af auðugustu mönnum Bandaríkjanna og Donald Trump, fyrrverandi forseta. Brot hans er sagt einstakt í sögu Skattsins í Bandaríkjunum. Erlent 29.1.2024 23:46
Dauðvona þjófur sem stal skóm Dóróteu sleppur við fangelsi Aldraður maður sem stal hinum frægu rauðu skóm Dóróteu úr kvikmyndinni um Galdrakarlinn í Oz mun líklega sleppa við fangelsi þar sem hann er við dauðans dyr. Hinn 76 ára gamli Terry Jon Martin sagðist hafa stolið skónum sem Judy Garland var í í kvikmyndinni sem kom út árið 1939 af safni í Minnesota, því hann vildi fremja sitt síðasta rán áður en hann dó. Erlent 29.1.2024 23:01
Vítisengill og morðingi sakaðir um tilraun til launmorða fyrir Íran Tveir kanadískir menn hafa verið ákærðir fyrir að taka að sér að fremja morð í Bandaríkjunum fyrir hönd leyniþjónusta Írans. Annar mannanna er meðlimur í Hells Angels glæpasamtökunum en þeir tveir eru sakaðir um að hafa hópað saman nokkrum mönnum með því markmiði að fara til Maryland í Bandaríkjunum í lok árs 2020 eða byrjun 2021 og myrða mann og konu sem búa þar. Erlent 29.1.2024 22:00