Erlent
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 334 ›
Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Töluverðar líkur eru nú taldar á því að vantrauststillaga verði lögð fram gegn Michel Barnier, forsætisráðherra Frakklands, á miðvikudag vegna andstöðu við fjárlagafrumvarp minnihlutastjórnar hans. Erlent 2.12.2024 12:23
Biden náðar son sinn Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur náðað son sinn, Hunter Biden, sem hlaut dóma fyrir brot gegn vopna- og skattalögum. Biden hafði áður neitað því að hann myndi beita forsetavaldinu til að náða son sinn eða fella niður refsingu hans. Erlent 2.12.2024 07:40
Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi, veikindadögum og lífeyrisgreiðslum eftir að ný lög þess efnis tóku gildi í dag. Í frétt Guardian segir að með lögunum sé búið að binda enda á mismunun gegn kynlífsverkafólki. Erlent 1.12.2024 18:50
Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Tvennt er sært eftir að átján ára piltur hóf skothríð í þorpinu Tiniteqilaaq á suðaustanverðu Grænlandi í dag. Annar þeirra særðu er sagður í lífshættu en pilturinn er í haldi lögreglu. Erlent 30.11.2024 14:56
Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Uppreisnar- og vígamenn höfðu í morgun náð tökum á bróðurparti Aleppo-borgar í Idlib héraði í Sýrlandi eftir umfangsmikla skyndisókn og hafa þeir einnig náð tökum á stóru svæði kringum borgina á undanförnum þremur dögum. Í nótt tóku uppreisnarmenn kastala Aleppo, í miðri borginni, og í morgun lýsti ríkisstjórn Sýrlands því yfir að herinn hefði hörfað frá borginni. Erlent 30.11.2024 08:44
Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Uppreisnar- og vígamenn hafa sótt hratt inn í borgina Aleppo í Idlib-héraði í Sýrlandi í dag. Svo virðist sem að varnir hers Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, hafi brostið og hafa stórir hlutar borgarinnar, sem var sú stærsta í Sýrlandi á árum áður fallið. Þá hafa fregnir borist af því að umfangsmikil vopnabúr hafi fallið í hendur uppreisnarmanna. Erlent 29.11.2024 14:14
Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Frakklandsforseti heimsótti dómkirkjuna Notre Dame en viðgerðum á henni er að ljúka. Um fimm ár eru síðan kviknaði í kirkjunni en hún verður aftur opnuð almenningi í byrjun desember. Erlent 29.11.2024 13:57
Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Ríkisstjórn Tjad tilkynnti í gær að binda ætti enda á varnarsamstarf með Frakklandi og mun það væntanlega fela í sér brotthvarf franskra hermanna þaðan. Tjad er síðasta ríkið á Sahelsvæðinu þar sem Frakkar eru enn með viðveru, eftir að þeim var vísað frá Búrkína Fasó, Malí og Níger í kjölfar valdarána. Erlent 29.11.2024 13:33
Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Öreindafræðingar við Kjarnorkurannsóknaráð Evrópu (CERN) ætla að reyna að flytja andefni á milli staða í fyrsta skipti. Flutningarnir, sem fara fram með vörubílum, eiga að gera þeim kleift að rannsaka andróteindir nánar. Erlent 29.11.2024 11:40
Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Hópur Búlgara sem bjó í Bretlandi njósnaði fyrir Rússa í tæp þrjú ár og á þeim tímabili er hópurinn sagður hafa sett líf margra í hættu. Hópurinn stundaði njósnir víðsvegar um Evrópu, þar sem fólkið safnaði upplýsingum um fólk fyrir Rússa og ræddi meðal annars að myrða búlgarskan blaðamann sem kom að því að svipta hulunni af banatilræði rússneskra útsendara á Sergei Skripal. Erlent 29.11.2024 11:02
Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Yfirvöld í Laos hafa bannað sölu og neyslu Tiger vodka og Tiger viskís, þar sem drykkirnir kunna að ógna heilsu manna. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að sex ferðamenn létust úr metanól-eitrun í kjölfar drykkju. Erlent 29.11.2024 09:46
Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Stjórnvöld í Svíþjóð hafa formlega óskað eftir samvinnu Kínverja við að komast til botns í því hvernig tveir neðansjávarstrengir skemmdust í Eystrasalti. Erlent 29.11.2024 07:37
Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur hótað því að nota Oreshnik-eldflaugar til að gera árásir á Kænugarð og segir afl vopnsins sambærilegt við kjarnorkuvopn ef ítrekaðar árásir eru gerðar á sama skotmark. Erlent 29.11.2024 06:40
Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Grænlendingar fagna í dag nýjum alþjóðflugvelli í Nuuk. Opnun vallarins er sögð marka þáttaskil í samgöngum Grænlands við umheiminn og var almenningi boðið til hátíðar með tónleikum og veisluhöldum í dag og flugeldasýningu í kvöld. Erlent 28.11.2024 21:42
Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Þingkosningarnar sem fóru fram í Georgíu í haust fóru ekki heiðarlega fram og þær ætti að endurtaka, að mati Evrópuþingsins. Það kallar ennfremur eftir refsiaðgerðum gegn leiðtogum stjórnarflokksins Georgíska draumsins. Erlent 28.11.2024 16:44
Sækja óvænt og hratt að Aleppo Uppreisnarmenn og vígahópar gerðu í gær umfangsmiklar árásir á hersveitir Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, og aðrar sveitir sem styðja hann vestur af borginni Aleppo í Idlib-héraði í gær. Útlit er fyrir að hóparnir hafi lagt undir sig stórt svæði við borgina og að sóknin hafi náð að jaðri borgarinnar. Erlent 28.11.2024 14:00
Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Skemmdarverk útsendara Rússa í Evrópu gæti að endingu leitt til virkjunar fimmtu greinar stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins um sameiginlegar varnir aðildarríkja. Þetta sagði yfirmaður einnar leyniþjónustu Þýskalands á ráðstefnu í gær en Rússar hafa á undanförnum mánuðum og jafnvel árum verið sakaðir um skemmdarverk, banatilræði og annarskonar árásir í Evrópu. Erlent 28.11.2024 11:14
Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Kólumbísk yfirvöld hafa í samstarfi við aðila í 62 ríkjum lagt hald á 225 tonn af kókaíni á aðeins sex vikum. Um er að ræða metmagn í einni aðgerð. Erlent 28.11.2024 08:23
Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Rússar hafa gert harðar og umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu í nótt. Erlent 28.11.2024 07:21
Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Seyed Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir hætt við því að stjórnvöld muni íhuga að einbeita sér að því að eignast kjarnorkuvopn ef Vesturlönd standi við þá hótun sína að taka aftur upp allsherjarþvinganir gegn landinu. Erlent 28.11.2024 06:56
Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Fallhlíf hins alræmda D.B. Cooper er mögulega fundin. Um helgina voru liðin 53 ár frá því að Cooper stökk úr flugvél með 200 þúsund Bandaríkjadali í reiðufé eftir að hafa tekið flugáhöfn og farþega sem gísla. Erlent 27.11.2024 23:03
Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Stjórnarflokkur Georgíu, Georgíski draumurinn, hefur tilnefnt Mikheil Kavelashvili sem forsetaefni sitt í kosningum sem fara fram þar í landi 14. desember næstkomandi. Erlent 27.11.2024 20:07
Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fjölmiðlar í Frakklandi hafa veitt þeim 50, sem hafa verið ákærðir fyrir að hafa brotið kynferðislega á Gisele Pelicot, viðurnefnið „herra meðal-Jón“ eða „Monsieur Tout-le-monde“, sökum þess hve venjulegir þeir eru og frá hve hefðbundnum bakgrunni þeir koma. Erlent 27.11.2024 18:10
Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Þremur Bandaríkjamönnum sem hafa setið um árabil í kínverskum fangelsum hefur verið sleppt. Það var gert í skiptum fyrir ótilgreinda kínverska ríkisborgara í haldi Bandaríkjamanna. Erlent 27.11.2024 15:44
Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Vopnahlé sem tók gildi milli Ísraela og Hezbollah í nótt hefur haldið að mestu í dag, þó það þyki brothætt og að Ísraelar hafi varpað sprengjum á tvö þorp í suðurhluta Líbanon. Fólk sem þurft hefur að flýja heimili sín streymir til suðurs þó herir bæði Ísrael og Líbanon hafi varað fólk við því. Erlent 27.11.2024 14:47
Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, sagði í gær að til greina kæmi að beita eigin tollum á vörur frá Bandaríkjunum. Er það eftir að Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hótaði því að setja 25 prósenta toll á vörur frá Mexíkó, stöðvi yfirvöld þar ekki flæði fíkniefna og farand- og flóttafólks yfir landamæri ríkjanna. Erlent 27.11.2024 11:17
Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Kristian White, 34 ára lögreglumaður, hefur verið fundinn sekur um að hafa banað Clare Nowland, 95 ára, þegar hann skaut hana með rafbyssu. Nowland féll, fékk höfuðhögg og lést í kjölfarið. Erlent 27.11.2024 07:22
Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hefur tilkynnt að Norðmenn ætli sér að auka fjárhagslegan stuðning við Úkraínumenn á næsta ári, eftir að hafa ákveðið að draga töluvert úr honum. Í heildina stendur til að veita Úkraínumönnum að minnsta kosti þrjátíu milljarða norskra króna á næsta ári, eftir viðræður við stjórnarandstöðuna. Erlent 27.11.2024 07:02
Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé á milli Ísraela og Hezbollah samtakanna í Líbanon tók gildi klukkan fjögur í nótt. Erlent 27.11.2024 06:45
Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels mun leggja fram tillögu um vopnahlé milli Ísraels og Líbanon fyrir ríkisstjórn sína til samþykktar. Þetta tilkynnti ráðherrann í kvöld en ítrekaði að vopnahlé í Líbanon hafi engin áhrif á stríðið á Gasa. Erlent 26.11.2024 20:10