Erlent
225 226 227 228 229 230 231 232 233 … 334 ›
Geti átt yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að flýja herkvaðningu Pútín tilkynnti rússnesku þjóðinni á miðvikudag að grípa skildi til herkvaðningar til þess að vernda Rússa á „frelsuðum svæðum.“ Lítið virðist vitað um hversu margir verði skikkaðir í herinn og hafa karlmenn haldið á flótta frá landinu vegna þessa. Pútín er sagður hafa gripið til lagabreytinga sem refsi þeim sem flýi herkvaðninguna. Erlent 24.9.2022 15:31
Ríki ESB fleygja rúmlega 150 milljónum tonna af mat á ári Ríki Evrópusambandsins sóa meiri mat en þau flytja inn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu umhverfissamtakanna Feedback EU. Stefnt er að því að draga úr matarsóun um helming á næstu 8 árum. Erlent 24.9.2022 14:30
Hægriflokkarnir stefna á stórsigur með öfgahægrikonu í fararbroddi Ítalir ganga til þingkosninga á morgun og er baráttan hörð á milli flokkanna á hægri og vinstri vængnum. Væntanleg orkukreppa og stríðið í Úkraínu hafa áhrif á kosningarnar í ár en allt stefnir í að öfgahægriflokkur fái forsætisráðherrastólinn í fyrsta sinn frá því að Mussolini var í embætti. Kona gæti í fyrsta sinn í sögunni orðið forsætisráðherra Ítalíu. Erlent 24.9.2022 10:00
Rússar flýi herkvaðningu Pútíns Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn. Erlent 23.9.2022 19:59
Japan opnar landamærin í október og styrkir ferðaþjónustu Langt hlé hefur verið á ferðamennsku í Japan vegna kórónuveirufaraldursins en nú er útlit fyrir að varúðarráðstafanir vegna faraldursins verði látnar niður falla og landamærin opnuð á ný. Erlent 23.9.2022 18:05
Segja íbúa hersetinna svæða þvingaða til að greiða atkvæði Stjórnvöld í Kænugarði fullyrða að íbúar á hersetnum svæðum hafi verið hótað refsingum taki þeir ekki þátt í atkvæðagreiðslu sem leppstjórnir Rússa halda nú um helgina um hvort svæðin skuli innlimuð í Rússland. Erlent 23.9.2022 16:20
Tugir farandfólks fórust undan ströndum Sýrlands Leitarlið hefur fundið 71 lík eftir að bátur með á annað hundrað farandfólks sökk undan ströndum Sýrlands í gær. Björgunaraðgerðir standa enn yfir en tuttugu manns hafa fundist á lífi til þessa og verið fluttir á sjúkrahús í Sýrlandi. Erlent 23.9.2022 14:55
SÞ: Stríðsglæpir framdir á hersetnu svæðunum í Úkraínu Nauðganir, pyntingar og einangrunarvistun barna á sér stað á hersetnum svæðum Rússa í Úkraínu, að sögn yfirmanns rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Vísbendingar hafa fundist um fjölda aftaka þar sem fólk hefur verið skorið á háls eða skotið í höfuðið. Erlent 23.9.2022 12:36
Fegurðardrottning föst á flugvelli Mjanmarska fegurðardrottningin Han Lay hefur nú verið föst á flugvellinum í Bangkok í þrjá daga. Hún fær ekki að komast út af flugvellinum nema hún fljúgi til Mjanmar. Hún óttast að hún verði handtekin þar fyrir að hafa mótmælt herstjórninni. Erlent 23.9.2022 08:36
Afboðuðu viðtal við forseta Íran vegna slæðukröfu Bandaríski fréttamiðillinn CNN afboðaði viðtal við Ebrahim Raisi, forseta Íran, eftir að hann krafðist þess að sjónvarpskonan Christiane Amanpour klæddist höfuðslæðu í viðtalinu. Erlent 23.9.2022 08:28
Riverdale-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á móður sinni Kanadíski leikarinn og fyrrverandi barnastjarnan Ryan Grantham hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt móður sína árið 2020. Erlent 23.9.2022 08:06
Rússneskir miðlar segja atkvæðagreiðslu um innlimun hafna Samkvæmt ríkismiðlum í Rússlandi er atkvæðagreiðsla hafin á sumum þeirra hernumdu svæða í Úkraínu þar sem til stendur að halda íbúakosningu um innlimun nú um helgina. Erlent 23.9.2022 07:09
Herkvaðningin mun umfangsmeiri en Rússar segja Umfang herkvaðningar í Rússlandi gæti orðið þrisvar sinnum meira en ráðamenn hafa sagt. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sagði í gær að til stæði að kveðja þrjú hundruð þúsund manns í herinn og Dimítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta, staðfesti það. Erlent 22.9.2022 22:30
Raisi hætti við viðtalið eftir að Amanpour neitaði að bera höfuðklút Forseti Írans, Ebrahim Raisi neitaði að mæta í viðtal við fréttakonu CNN, Christiane Amanpour vegna þess að hún neitaði að bera höfuðklút á meðan á viðtalinu stæði. Erlent 22.9.2022 21:14
Telur forseta geta aflétt leynd með huganum einum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, réttlætti vörslu sína á aragrúa leyniskjala með því að forseti gæti aflétt leynd af gögnum með því einu að hugsa um það í sjónvarpsviðtali í gær. Þá kallaði hann málaferli gegn honum í New York pólitískar nornaveiðar. Erlent 22.9.2022 11:51
Að minnsta kosti níu látnir í mótmælunum í Íran Ekkert lát er á mótmælunum í Íran en mótmælendur kveiktu í lögreglustöðvum og bílum í höfuðborginni og öðrum borgum í dag. Minnst níu eru sagðir hafa látist eftir að mótmælin brutust út um helgina og hefur ríkisstjórnin lokað á samfélagsmiðla til að reyna að koma í veg fyrir að mótmælendur nái að tala sig saman. Erlent 22.9.2022 10:52
Ríkisstjórnin gekk út vegna samsæriskenninga umdeilds þingmanns Samsæriskenningar þar sem ýjað var að því að fjármálaráðherra Hollands væri njósnari á vegum vestrænna ríkja sem viðraðar voru í þingræðu í Hollandi í gær varð til þess að öll hollenska ríkisstjórnin gekk af þingfundi í mótmælaskyni. Erlent 22.9.2022 10:44
Kaþólikkar orðnir fleiri en mótmælendur á Norður-Írlandi Fleiri Norður-Írar telja sig nú kaþólikka en mótmælendur í fyrsta skipti samkvæmt nýbirtu manntali. Tölurnar eru taldar verða vatn á myllu þeirra sem berjast fyrir sameiningu Írlands. Erlent 22.9.2022 10:35
Stefna ríkisstjóra fyrir að senda þá á sumardvalareyju Venesúelskir hælisleitendur sem ríkisstjóri Flórída í Bandaríkjunum lét fljúga með frá Texas til lítils sumardvalarstaðar í Massachusetts hafa stefnt honum fyrir blekkingar og mismunun. Lögmaður þeirra sakar ríkisstjórann um notfæra sér þá sem pólitísk peð. Erlent 22.9.2022 09:15
Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. Erlent 22.9.2022 07:23
„Held að íbúar í Íran séu komnir með meira en nóg af ríkisstjórninni“ Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Íran undanfarna daga eftir að ung kúrdísk kona dó í haldi lögreglu. Hún hafði verið handtekin fyrir að vera ekki klædd samkvæmt ströngum reglum klerkastjórnar Írans og dó í síðustu viku. Erlent 21.9.2022 23:03
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. Erlent 21.9.2022 20:27
Saka Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur höfðað mál gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og þremur elstu börnum hans, þeim Donald Trump yngri, Ivönku Trump og Eric Trump. Þau eru sökuð um umfangsmikil skatt- og bankasvik. Erlent 21.9.2022 18:29
Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. Erlent 21.9.2022 14:55
Gefið í skyn að aðgerðum á hernumdum svæðum verði svarað fullum hálsi Orðræða rússneskra stjórnvalda hefur stigmagnast að mati sérfræðings í utanríkismálum, þar sem gefið er í skyn að hernaðaraðgerðum í úkraínskum héröðum sem Rússar hyggjast innlima verði svarað með öllum tiltækum ráðum. Tilkynnt var um herkvaðningu í Rússlandi í morgun. Erlent 21.9.2022 12:05
Gagnrýndur fyrir að syngja Bohemian Rhapsody stuttu fyrir jarðarförina Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur verið gagnrýndur síðustu daga fyrir að hafa sungið lag með hljómsveitinni Queen í hótelanddyri í London, tveimur dögum fyrir jarðarför Elísabetar II Bretlandsdrottningar. Erlent 21.9.2022 11:21
Danadrottning greinist með Covid í annað sinn Margrét Þórhildur Danadrottning hefur greinst með kórónuveiruna í annað sinn. Erlent 21.9.2022 10:40
Vaktin: Skiptu á verjendum Maríupól fyrir vin Pútíns Mikil eftirspurn er eftir flugferðum aðra leiðina frá Rússlandi eftir að Vladímír Pútín forseti tilkynnti í sjónvarpsávarpi að um 300.000 manns yrði kvaddir í herinn vegna stríðsins í Úkraínu í morgun. Erlent 21.9.2022 10:26
Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa Ákvörðun Vladimir Pútín Rússlandsforseta að grípa til herkvaðningar er viðurkenning á því að innrásin í Úkraínu hefur ekki gengið eins og Rússar ætluðu. Þetta segja bæði talsmenn Úkraínustjórnar og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands. Erlent 21.9.2022 08:33
Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna. Erlent 21.9.2022 08:07