Formúla 1
96 97 98 99 100 101 102 103 104 … 151 ›
Tveir stefna á sigur og tveir ætla að meta stöðuna Fjórir ökumenn keppa um meistaratitilinn í Formúlu 1 um næstu helgi og þeir voru spurðir að því hvaða keppnisáætlun þeir myndu beita og hvert markmiðið væri í mótinu í Abu Dhabi á sunnudaginn, sem er úrslitakeppni um meistaratitilinn. Formúla 1 11.11.2010 14:35
Rússneskur bílaframleiðandi í Formúlu 1 Sportbílaframleiðandinn Marussia í Rússlandi hefur keypt vænan hlut í Virgin liðinu breska, sem er stýrt af auðkýfingnum Richard Branson sem á Virgin flugfélagið og yfir 400 önnur fyrirtæki. Í ljósi þessara kaupa þá verður liðið endurskírt og mun heita Marussia Virgin Racing á næsta keppnistímabili. Formúla 1 11.11.2010 09:53
Button: Vonbrigði að falla úr titilslagnum Jenson Button er fráfarandi heimsmeistari í Formúlu 1 og verður að sjá á eftir titilinum í Abu Dhabi um næstu helgi, þar sem fjórir keppinauta hans munu takast á um titilinn. Möguleikar Buttons voru endanlega úr sögunni eftir keppnina í Brasilíu á sunnudaginn Formúla 1 11.11.2010 09:07
Alonso tilbúinn í lokaslag um titilinn Forystumaður stigamótsins í Formúlu 1, Fernando Alonso er kominn til Abu Dhabi þar sem lokamótið í titilbaráttu fjögurra ökumanna fer fram um helgina. Formúla 1 10.11.2010 17:51
Hamilton: Lokamótið stórkostlegt fyrir áhorfendur Bretinn Lewis Hamilton er einn fjögurra ökumanna sem á möguleika á meistaratili ökumanna í lokamótinu í Abu Dhabi um helgina. Hann verður að vinna mótið til að eiga nokkra möguleika á titilinum og keppinautum hans þarf að ganga miður vel. Formúla 1 10.11.2010 12:37
Sögulegur viðburður í síðasta Formúlu 1 móti ársins í Abu Dhabi Það verður sögulegur viðburður í síðsta Formúlu 1 móti ársins í Abu Dhabi um næstu helgi. Þá eiga fjórir ökumenn möguleika á meistaratitli ökumanna í lokamóti keppnistímabilsins, en það er í fyrsta skipti sem slíkt hefur komið upp í 60 ára sögu íþróttarinnar. Fernando Alonso er efstur í stigamótinu, Mark Webber er annar, Sebastian Vettel þriðji og Lewis Hamilton fjórði. Formúla 1 10.11.2010 09:35
Button: Ránstilraunin eins og Hollywood mynd Formúlu 1 meistarinn Jenson Button hjá McLaren slapp ásamt föður sínum og öðru föruneyti undan mönnum sem ætluðu að gera ránstilraun í grennd við Formúlu 1 mótið í Brasilíu á laugardaginn. Button segir lögreglumann sem ók brynvörðum hafa sýnt mikið snaræði. Nokkrir vopnaðir menn gerðu sig líklega til að gera atlögu að bíl sem Button var í á leið á hótel sitt eftir tímatökuna á laugardaginn. Formúla 1 9.11.2010 13:08
Eigandi Red Bull á móti því að hagræða úrslitum í titilsókn Dietrich Mateschitz, eigandi Red Bull fyrirtækisins sem á Red Bull Formúlu 1 liðið segist vera mótfallinn því að hafa áhrif á úrslitin í lokamótinu í Abu Dhabi, til að tryggja öðrum ökumanni liðsins meistaratitilinn. Hann segir frekar vilja að Þeir fái annað sætið, en að beita liðsskipunum til að landa meistaratitli ökumanna í lokamótinu næsta sunnudag í Abu Dhabi. Formúla 1 9.11.2010 11:43
Alonso dugar fjórða sætið ef Vettel vinnur, en annað ef Webber sigrar Tölfræðingar og spekingar spá mikið í möguleika Formúlu 1 ökumanna í lokamótinu í Abu Dhabi um næstu helgi og Ferrari menn hafa tekið þá afstöðu að rýna ekki í tölfræðina, því hægt er að reikna málin á marga vegu og reyna að sigra lokamótið. Alonso á Ferrari er efstur í stigamótinu, en fjórir ökumenn eiga möguleika á titlinum. Formúla 1 9.11.2010 10:58
Ferrari stefnir á titilinn með sigri í lokamótinu Stefano Domenicali yfirmaður hjá Ferrari segist ekki ætla að reikna út alla hugsanlega möguleika sem kunna koma upp varðandi titilmöguleika Fernando Alonso hjá Ferrari í keppni Formúlu 1 ökumanna í lokamótinu í Abu Dhabi um næstu helgi. Formúla 1 8.11.2010 15:25
Hamilton segist þurfa kraftaverk, en McLaren stjórinn ekki sammála Lewis Hamilton hjá McLaren telur að hann þurfi kraftaverk til að landa meistaratitlinum í Formúlu 1, en hann er meðal fjögurra ökumanna sem á möguleika á titlinum í lokamótinu um næstu helgi í Abu Dhabi. Martin Whitmarsh, framkvæmdarstjóri McLaren er ekki sammála að kraftaverk þurfi og segir sögulegan viðburð að fjórir ökumenn séu í baráttunni í lokamótinu. Formúla 1 8.11.2010 14:10
Fjórir geta orðið meistarar í lokamótinu Fjórir ökumenn eiga enn möguleika á meistaratitlinum í Formúlu 1 eftir mótið í Brasilíu í gær, en lokamótið verður í Abu Dhabi um næstu helgi. Formúla 1 8.11.2010 10:49
Red Bull mun ekki hagræða úrslitum í titilslag ökumanna Christian Horner yfirmaður Red Bull segir að lið sitt muni ekki beita liðskipunum til að hagræða úrslitum í titilslag ökumanna. Bæði Mark Webber og Sebastian Vettel eiga möguleika á meistaratitlinum í kapphlaupi við Fernando Alonso og Lewis Hamilton. Þeir keppa í síðasta móti ársins um næstu helgi. Formúla 1 7.11.2010 22:12
Vettel stoltur af titli Red Bull Sebastian Vettel hjá Red Bull er hluti af stórri liðsheild sem fagnaði fyrsta meistaratitlinum í Formúlu 1 og tryggði sér titil bílasmiða með tvöföldum sigri í Brasilíu í dag. Vettel lagði grunn að sigri með því að fara strax framúr Nico Hulkenberg sem var fremstur á ráslínu. Vettel sá við honum fyrir fyrstu beygju Formúla 1 7.11.2010 21:43
Vettel fagnaði í Brasilíu Red Bull vann tvöfaldan sigur í brasilíska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag en þeir Sebastian Vettel og Mark Webber komu fyrstir í mark í dag. Það dugði til að tryggja liðinu heimsmeistaratitilinn í flokki bílasmiða. Formúla 1 7.11.2010 17:57
Háspenna í Formúlu 1 titilslag í dag Það verður mögnuð stemmning á meðal fjörugra áhorfenda á Jose Carlos Pace (Interlagos) í Brasilíu í dag, þar sem Fernando Alonso getur tryggt sér meistaratitilinn í Formúlu 1, en þrír keppinauta hans eru þó framar á ráslínu og vilja hindra að slíkt gerist í dag. Aðeins tveimur mótum er ólokið og fimm ökumenn eiga enn möguleika á titilinum. Formúla 1 7.11.2010 12:01
Button slapp undan vopnuðum ræningjum Formúlu 1 heimsmeistarinn Jenson Button og föruneyti hans slapp undan vopnuðum ræningjum sem gerðu tilraun til að nálgast bíl sem hann var farþegi í eftir tímatökuna á Interlagos brautinn í Brasiíu í gær. Hann var á ferð með föður sínum og tveimur öðrum samkvæmt tilkynningu frá McLaren liðinu, en autosport.com fjallaði um málið. Formúla 1 7.11.2010 10:26
Hülkenberg: Tilfinningarík upplifun að ná besta tíma Nico Hülkenberg á Williams Cosworth frá Þýskalandi náði fremsta stað á ráslínu í fyrsta skipti í Formúlu 1 í dag, en þessi 23 ára ökumaður varð heimsmeistari í GP2 mótaröðinni í fyrra. Hann varð sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull. Formúla 1 6.11.2010 21:10
Hülkenberg á ráspól í fyrsta sinn Þjóðverjinn Nico Hülkenberg kom öllum að óvörum er hann tryggði sér sæti fremst á ráslínu í tímatökum á Interlagos brautinni í Brasilíu í dag. Formúla 1 6.11.2010 17:04
Kubica fljótastur á blautri lokaæfingunni Robert Kubica á Renault reyndist fljótastur á lokaæfingu keppnisliða fyrir tímatökuna á Formúlu 1 brautinni við Sao Paulo í Brasilíu í dag. Hann varð 0.309 sekúndum á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Lewis Hamilton á McLaren varð þriðji. Formúla 1 6.11.2010 14:23
Vettel 0.104 sekúndu á undan Webber Sebastain Vettel var enn og aftur á undan liðsfélaga sínum Mark Webber á Red Bull á seinni æfingu keppnisliða á Interlagos brautinni í Brasilíu í dag. Formúla 1 5.11.2010 18:01
Renault hugsanlega að hætta sem keppnislið Renault liðið sem vörumerki gæti verið að hætta í Formúlu 1 samkvæmt frétt á autosport.com í dag, en liðið er í meirihlutaeigu sjálfstæðs fyrirtækis sem heitir Genii Capital. Renault virðist ætla útvega liðum vélar á næsta ári, en hætta með keppnislið undir eigin merkjum. Í fréttinni segir að möguleiki sé að Lotus bílaframleiðandinn breski verði styrktaraðili hjá liði sem myndi þá kallast Lotus Renault og nota Renault vélar eins og Red Bull og annað lið sem kallast í dag Lotus. Áhöld er um hvort það lið hefur rétt á notkun nafnsins, en það lið er í eigu malasíkra aðila og liðið kallast Lotus Racing. Þó hefur þetta lið samið við Renault um notkun á vélum fyrirtækisins á næsta ári og í tilkynningu frá Renault í dag, þá kallaði fyrirtækið þetta keppnislið 1 Malaysia Racing Team. Team Lotus var viðfrægt vörumerki í kappakstri á síðustu öld og ef marka má frétt autosport.com, þá virðist Lotus bílaframleiðandinn vilja endurreisa það nafn undir eigin formerkjum með samvinnu við Renault. Formúla 1 5.11.2010 17:44
Vettel fljótari en Webber á fyrstu æfingunni Sebastian Vettel á Red Bull var sneggstur um Interlagos brautina í Brasilíu í dag, en næst síðasta mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn. Vettel varð tæplega hálfri sekúndu á undan Mark Webber á samskonar bíl. Formúla 1 5.11.2010 13:41
Red Bull áfram í samtarfi með Renault Red Bull liðið tilkynnti formlega í dag að það hefur framlengt samning sinn við Renault vélaframleiðandann. Renault hefur séð liðinu fyrir vélum og gerir það áfram árið 2011 og 2012. Formúla 1 5.11.2010 13:04
Webber og Vettel ekki mismunað í titilslagnum Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins segir að Mark Webber og Sebastian Vettel hafi ekki verið mismunað hjá liðinu á keppnistímabilinu og báðir fái fullan stuðning liðsins. Horner segir að ummæli Mark Webber, ef rétt túlkuð í fjölmiðlum gætu sært menn innan liðsins, en Webber lét í veðri vaka í gær að Vettel væri í uppáhaldi hjá liðinu að sögn autosport.com. Formúla 1 5.11.2010 10:01
Alonso: Markmiðið að komast á verðlaunapall Fernando Alonso er efstur í stigamóti Formúlu 1 ökumanna og getur tryggst sér meistaratitilinn í Brasilíu um helgina ef vel gengur. Hann telur þó líklegra að úrslitin ráðist ekki fyrr en í lokamótinu í Abu Dhabi um aðra helgi. Hann hefur haldið þessu fram í langan tíma og afstaða hans hefur ekkert breyst, þó hann sé nú 11 stigum a undan Mark Webber í stigamótinu og í efsta sæti stigamótsins. Formúla 1 4.11.2010 15:55
Webber stefnir sigur í Brasilíu Mark Webber hjá Red Bull vann mótið í fyrra á Interlagos brautinni í Brasilíu sem keppt er á um helgina og ef hann vinnur tvö síðustu mót ársins getur hann orðiði heimsmeistari ökumanna í fyrsta skipti á ferlinum. Formúla 1 4.11.2010 15:12
Massa vill sigur, en mun hjálpa Alonso Felipe Massa verður meðal fjögurra Brasilíumanna á heimavelli í Formúlu 1 mótinu á Interlagos brautinni í Brasilíu um helgina. Hann á ekki möguleika á meistaratitilinum og mun styðja við bakið á liðsfélaga sínum hjá Ferrari, Fernando Alonso í titilslagnum, komi sú staða upp í mótinu. Formúla 1 4.11.2010 14:22
FIA staðfesti 20 Formúlu 1 mót 2011 FIA staðfesti í dag að 20 Formúlu 1 mót verða árið 2011 í Formúlu 1. Fyrsta mótið verður í Barein, en það síðasta í Brasilíu. Í þremur tilfellum eru þrjú mót í mánuði. Formúla 1 3.11.2010 17:02
Liðsskipanir Ferrari mega ekki skyggja á titilinn Martin Whitmarsh yfirmaður McLaren segir að sú staðreynd að Ferrari beitti liðsskipunum í móti í Þýskalandi í sumar megi ekki skemma fyrir Formúlu 1, ef Fernando Alonso verður meistari. Formúla 1 3.11.2010 14:19