Fréttir
53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 334 ›
Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Í dag er ár liðið frá því að stór kvikugangur myndaðist undir Grindavík og bærinn var rýmdur. Hamfarirnar eru einar þær mestu í sögunni að sögn bæjarstjóra sem kveðst bjartsýnn á framtíð bæjarins þrátt fyrir að jarðhræringum sé ekki lokið. Forseti Íslands mun sækja samverustund í Grindavíkurkirkju í kvöld. Innlent 10.11.2024 13:26
Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Irmý Rós Þorsteinsdóttir, starfsmaður Landsbankans, varð fyrir óheppilegu atviki í gær þegar hún kom verðmætum sem hún hafði keypt í versluninni Módern í Faxafeni fyrir í bíl sem var ekki í hennar eigu. Þegar hún snéri aftur í bifreið sína áttaði hún sig á misskilningnum en þá var hin bifreiðin horfin á brott. Innlent 10.11.2024 13:09
Ár frá mestu hamförum síðari tíma og útboðshlé hjá Vegagerðinni Í dag er ár liðið frá því að stór kvikugangur myndaðist undir Grindavík og bærinn var rýmdur. Hamfarirnar eru einar þær mestu í sögunni. Í hádegisfréttum ræðum við, við bæjarstjóra Grindavíkur sem er bjartsýnn á framtíð bæjarins þó jarðhræringum sé ekki lokið. Innlent 10.11.2024 11:38
Dó fjórum árum eftir að hún hvarf „Þar sem að hún gat ekkert tjáð sig þá vissum við ekkert hvað væri að gerast í höfðinu á henni. En stundum horfði hún í augun á mér og grét og ég vissi að hún vildi deyja,“ segir Áslaug Dröfn Sigurðardóttir en móðir hennar lést vegna framheilabilunar í nóvember árið 2019. Innlent 10.11.2024 10:46
Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Jarðskjálfti að stærð 3,0 varð klukkan 08:13 í morgun á austurbakka Öskjuvatns, 1,6 kílómetra frá Víti sem er stærsti sprengigígurinn í Öskju. Þetta er stærsti skjálftinn sem hefur mælst á svæðinu síðan í janúar 2022. Innlent 10.11.2024 10:14
Trump vann öll sveifluríkin Donald Trump, nýkjörinn verðandi Bandaríkjaforseti, hafði betur gegn demókratanum Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna, í öllum sjö sveifluríkjunum. Búið er að telja nógu mörg atkvæði í síðasta ríkinu, Arizona, til að telja öruggt að Trump fari þar með sigur. Erlent 10.11.2024 09:44
Kyrrstaða í vegaframkvæmdum, sigur Trumps og kosningabaráttan framundan Kyrrstaða í stórum vegaframkvæmdum, úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum og innanlandspólitíkin er meðal þess sem er til umfjöllunar hjá Kristjáni Kristjánssyni í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þátturinn hefst klukkan 10 og er hægt að fylgjast með honum í spilaranum fyrir neðan. Innlent 10.11.2024 09:33
Næsta lægð væntanleg á morgun Í dag er spáð suðaustan 5 til 13 metrum á sekúndu og rigningu, en úrkomulítið verður um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast norðanlands. Vestan og suðvestan 10 til 18 metrar á sekúndu kringum hádegi, skúrir og heldur kólnandi, en lengst af þurrt norðaustantil. Hægari suðvestanátt í nótt. Veður 10.11.2024 08:10
Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Fjármálaráðherrar Danmerkur og Grænlands hafa kynnt samkomulag þess efnis að danska ríkið ábyrgist 95 prósent af lánsfjármögnun tveggja nýrra vatnsaflsvirkjana á Grænlandi upp á sextíu milljarða íslenskra króna. Samkomulagið um lánsábyrgð Dana greiðir leiðina að mestu virkjanaframkvæmdum í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga. Erlent 10.11.2024 07:37
Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Óeirðir brutust út þegar mótmæli voru haldin í Valensía-héraði á Spáni í kvöld. Þar kölluðu mótmælendur eftir afsögn leiðtoga héraðsins, sem mótmælendur segja að hafi brugðist í viðbragði stjórnvalda við flóðunum sem urðu rúmlega 200 manns að bana. Erlent 9.11.2024 23:41
Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Aðalvarðstjóri hefur áhyggjur af fjölgun tilvika þar sem ökumenn aka yfir á rauðu ljósi. Fleiri og fleiri ökumenn séu annars hugar í umferðinni og jafnvel að horfa á kvikmyndir í símanum á meðan þeir keyra. Innlent 9.11.2024 22:52
Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Ríkisstjórn Katar hefur tilkynnt Bandaríkjamönnum og Ísraelum að ríkið muni hætta hlutverki sínu sem sáttasemjari í deilu Ísraela og Hamas-samtakanna. Telur ríkisstjórnin að viðræður séu til einskis á meðal aðilar séu ekki í góðri trú. Fréttir 9.11.2024 22:40
Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Líkamsræktarkappi sem ætlar að fara sautján hundruð kílómetra á þrektækjum á einni viku segist vera aukaatriði í verkefninu. Markmiðið er að vekja athygli á málstað sem stendur honum nærri og styðja við Pieta-samtökin. Innlent 9.11.2024 22:01
Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða nú fram til Alþingis gera sér fyllilega grein fyrir þeim áhrifum sem samfélagsmiðillinn TikTok getur haft, sérstaklega á unga kjósendur. Flokkarnir eru flestallir komnir á fullt á miðlinum og segja má að hliðstæð kosningabarátta sé hafin í formi TikTok-myndbanda. Innlent 9.11.2024 20:50
Engin miðlæg skráning slysa í ferðaþjónustu Engin markviss skráning slysa og óhappa í ferðaþjónustu er fyrir hendi á Íslandi. Starfshópur leggur til að bætt verði úr með því með miðlægri skráningu. Hins vegar mælir starfshópurinn ekki með banni við jöklaferðum yfir sumartímann. Sérfræðingur segir aukið eftirlit og tryggari öryggisferla vænlegri lausn en boð og bönn. Innlent 9.11.2024 20:01
Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Yazan Tamimi, ellefu ára langveikur drengur frá Palestínu, og fjölskylda sem fengu samþykkta vernd í síðasta mánuði leita nú logandi ljósi að húsnæði sem hentar fjölskyldunni og sérþörfum Yazans. Innlent 9.11.2024 18:57
Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Engin markviss skráning slysa og óhappa í ferðaþjónustu er fyrir hendi á Íslandi. Starfshópur leggur til að úr því verði bætt. Sérfræðingur segir aukið eftirlit og skýrari öryggisferla vænlegri lausn en boð og bönn. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.11.2024 18:02
Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum Maður var handtekinn í dag í vesturhluta Reykjavíkur grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum. Innlent 9.11.2024 18:01
Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Ökumaður missti stjórn á bílnum sínum þegar hann ók um Öxnadalinn á þriðjudagskvöld. Klæðing á veginum húðaðist utan um dekkin hans. Ökumaðurinn segir veginn á svæðinu oft vera í ansi slæmu standi. Innlent 9.11.2024 17:07
Lögreglan bannaði bjór á B5 Samband ungra framsóknarmanna fékk ekki að bjóða upp á áfengi þegar kosningamiðstöð þeirra var opnuð við Bankastræti 5 í gær. Formaðurinn segir að einhverjir hafi verið súrir þegar þeir gátu eingöngu fengið óáfenga drykki á staðnum en þeir boða til nýrrar veislu í næstu viku. Innlent 9.11.2024 15:37
Leikskólastarfsmenn í Hafnarfirði greiða atkvæði um verkfall Félagsmenn verkalýðsfélagsins Hlífar sem starfa á leikskólum Hafnarfjarðar greiða ný atkvæði um verkfall. Verði tillagan samþykkt fara starfsmenn í verkfall í tvo sólarhringa á tímabilinu 21. nóvember til 5. desember. Innlent 9.11.2024 15:20
„Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Demókratar eru þegar farnir að undirbúa næstu lotu þingkosninga í Bandaríkjunum, eftir tvö ár, en útlit er fyrir að Repúblikanar verði í meirihluta í báðum þingdeildum þangað til. Erlent 9.11.2024 14:21
Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands Um eitt þúsund og fimm hundruð manns sækja símenntun hjá Fræðsluneti Suðurlands á hverju ári en helmingur af þátttakendum eru erlendir íbúar búsettir á Suðurlandi. Fræðslunetið, sem fagnar nú tuttugu og fimm ára afmæli er með um sextíu kennara á sínum snærum. Innlent 9.11.2024 14:04
Bein útsending: Sigmundur kynnir innihaldið Miðflokkurinn hefur boðað til fundar þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, kynnir áherslumál flokksins fyrir komandi þingkosningar. Innlent 9.11.2024 13:52
Öryrkjar fá 1,7 skattfrjálsa milljarða Velferðarnefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp um sjötíu þúsund króna skattfrjálsa eingreiðslu til öryrkja. Samkvæmt fjáraukalagafrumvarpi er gert ráð fyrir 1,7 milljörðum í eingreiðsluna. Innlent 9.11.2024 13:38
Ætla ekki að slíta viðræðum Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til nýs fundar hjá samninganefndum kennara og ríkis og sveitarfélaga. Formaður Kennarasambands Íslands segir sáttasemjara hafa metið stöðuna þannig að ekki sé ástæða til að boða til fundar að svo stöddu. Innlent 9.11.2024 13:31
Engin ákvörðun um hvalveiðar og maurasýrumengun á Bíldudal Um helmingi landsmanna þætti óeðlilegt að ráðherra í starfstjórn gæfi út nýtt leyfi til hvalveiða. Matvælaráðherra hefur ekki tekið afstöðu til fyrirliggjandi umsóiknar um hvalveiðileyfi en segir brýnt að málið fari í lögboðið ferli. Innlent 9.11.2024 11:41
Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði. Innlent 9.11.2024 11:19
Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Íranskur karlmaður hefur ákærður fyrir tengsl hans við meint ráðabrugg um að ráða Donald Trump, nýkjörinn forseta Bandaríkjanna, af dögum. Hann segir íranska byltingarvörðinn hafa verið að baki ráðabrugginu. Erlent 9.11.2024 10:10
Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Karlmaður á níræðisaldri var handtekinn í bænum Owatonna í Minnesota á fimmtudag, grunaður um að hafa orðið 25 ára konu að bana fyrir fimmtíu árum síðan. Erlent 9.11.2024 10:05