Fréttir
321 322 323 324 325 326 327 328 329 … 334 ›
Ísdrottningin safnar undirskriftum til að komast á Bessastaði Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, er byrjuð að safna meðmælum fyrir forsetaframboð í komandi kosningum. Þetta má sjá á vefnum Ísland.is, en þegar þetta er skrifað eru 25 að safna meðmælum. Innlent 17.3.2024 22:54
Pútín fagnar sigri Vladímír Pútín hefur lýst yfir sigri í forsetakosningunum í Rússlandi. Erlent 17.3.2024 21:29
Grindvíkingar búi í óvissu þrátt fyrir tölfræðileiki „Þetta hlýtur að vera mjög erfitt. Það er erfitt að setja sig spor þessa fólks að horfa enn og aftur upp á þetta. En þetta er það sem má búast við,“ segir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, um þá erfiðu stöðu sem Grindvíkingar séu í vegna enn eins eldgossins. Innlent 17.3.2024 19:48
Dóttirin hætt komin eftir að hárið flæktist utan um háls hennar Móðir sjö mánaða stúlku sem hefði getað dáið eftir að hár móðurinnar flæktist um háls barnsins á meðan þær mæðgur sváfu er enn í áfalli. Ef ekki hefði verið fyrir nágrannana hefði geta farið mun verr. Innlent 17.3.2024 19:15
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Verulega hefur dregið úr virkni eldgossins sem hófst norðan Grindavíkur í gærkvöldi en hraun rennur þó áfram í átt til sjávar. Kristján Már Unnarsson fer yfir stöðuna við gosstöðvarnar í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 17.3.2024 18:23
Ætti að vera í kirkju en skoðar hraunið í staðinn „Það er sunnudagur. Maður ætti að vera í kirkju, en svo er maður hér,“ segir Olgeir Sigmarsson, jarðvísindamaður hjá jarðvísindastofnun Háskóla Íslands í samtali við fréttastofu þegar hann var staddur við hraunjaðarinn ásamt fleiri vísindamönnum að safna sýnum úr hrauninu sem hefur runnið síðan í gærkvöldi. Innlent 17.3.2024 18:17
Telur ólíklegt að hraunið nái að Suðurstrandarvegi Verkfræðingur hjá Eflu segir ólíklegt að hraunrennsli nái að Suðurstrandavegi og út í sjó. Aðeins voru um 150 metrar í að hrauntungan sem rann í vesturátt að Svartsengi næði að hitaveitulögn, en rennslið virðist hafa stöðvast. Innlent 17.3.2024 16:59
Líkti innflytjendum við dýr í langri ræðu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, hélt í gær kosningaræðu þar sem hann talaði með niðrandi hætti um farand- og flóttafólk og hét efnahagslegu „blóðbaði“ ef hann skyldi tapa forsetakosningunum í nóvember. Erlent 17.3.2024 15:44
Hraunið færist nær Suðurstrandarvegi Náttúruvásérfræðingur á von á því að hraun nái út í sjó áður en langt um líður. Hann segir mikilvægt að benda á að engum sé hollt að dvelja nálægt þegar það gerist, þar sem hættulegar gastegundir kunni að myndast. Hraun rennur rennur um tuttugu metra á klukkustund. Innlent 17.3.2024 15:08
„Áframhaldandi áfall fyrir alla Grindvíkinga“ Forsætisráðherra segist ekki ætla að fagna neinu fyrr en ljóst sé hvernig atburðarrásinni í yfirstandandi eldgosi vindi fram. Erfitt sé að horfa upp á atburðinn sem sé enn eitt áfallið fyrir Grindvíkinga. Innlent 17.3.2024 13:39
Þurfi að hafa samúð með starfsfólki Veðurstofunnar Jarðeðlisfræðingur segir greinilegt að fyrirvarinn á eldgosum í Sundhnjúkagígaröðinni fari minnkandi og merkin að verða ógreinilegri. Gossprungan milli Hagafells og Stóra-Skógfells opnaðist einungis örfáum mínútum eftir að Veðurstofan tilkynnti um aukna jarðskjálftavirkni og landbreytingar sem bentu til þess að kvikuhlaup gæti fljótlega hafist. Innlent 17.3.2024 13:24
„Nú er allt orðið vel smurt“ Gosstöðvarnar við Grindavík eru orðnar „vel smurðar“ og útskýrir það að miklu leyti hve lítill fyrirvarinn að eldgosinu í gærkvöldi var. Útlit sé fyrir að eldgosið klárist þegar líður að kvöldi en líklega tekur þá aftur við bið eftir næsta eldgosi. Innlent 17.3.2024 13:00
Gerir ráð fyrir löndun í Grindavík á morgun Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkur og lögreglumaður, segist ekki sjá ástæðu til annars en að halda sig við áætlanir um löndun inni í Grindavík á morgun. Hann skynji bjartsýni meðal bæjarbúa og segir bjarta framtíð framundan. Innlent 17.3.2024 12:41
Gýs á þremur stöðum og óvissa um styrk gasmengunar Verulega dró úr skjálftavirkni í nótt og mældist nánast engin skjálftavirkni eftir klukkan 3 til morguns. Þá dró einnig úr gósóróa og virkni á gossprungunni eftir því sem leið á nóttina. Gýs nú á þremur stöðum og er virkasti hluti sprungunnar austan við Sýlingarfell, en minni gosop norðar. Innlent 17.3.2024 12:27
Halla býður sig fram til forseta Halla Tómasdóttir stefnir að því að verða næsti forseti Íslands. Halla tilkynnti um framboð sitt til forseta á blaðamannafundi í Grósku í Vatnsmýri í Reykjavík í hádeginu í dag. Fjöldi stuðningsmanna Höllu hafði þar safnast saman. Innlent 17.3.2024 12:09
„Þetta segir okkur að við erum ekki tilbúin að fara heim“ Bæjarstjóri Grindavíkur segir atburði síðasta sólarhrings sýna að íbúar Grindavíkur séu ekki tilbúnir til að snúa aftur á heimili sín. Gert er ráð fyrir því að hægt verði að hefja starfsemi í bænum á milli gosa, á meðan jörðin er róleg. Innlent 17.3.2024 12:02
Bein útsending: Blaðamannafundur Höllu Tómasdóttur Blaðamannafundur sem Halla Tómasdóttir, rekstrarhagfræðingur og forstjóri B Team, hefur boðað til hefst í Grósku í Vatnsmýri klukkan 12 í dag. Innlent 17.3.2024 11:01
Appelsínugul viðvörun á vegna norðaustan hríðar Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna norðaustan hríðar sem hefur skollið á norðvesturhluta landsins. Gular viðvaranir hafa sömuleiðis verið gefnar út við Faxaflóa, Breiðafjörð og Ströndum og Norðurlandi vestra. Veður 17.3.2024 10:59
Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Ekki er talin hætta í byggð að svo stöddu en aðstæður geta breyst þegar líður á veðrið. Innlent 17.3.2024 10:34
Hrauntungan 100 metrum frá Njarðvíkuræðinni Sviðsstjóri almannavarna segir enn töluvert hraunrennsli úr eldgosinu sem hófst í gærkvöldi. Hætta er á gufusprengingum og gasmengun nái hraunið út í sjó. Vindur og úrkoma verði þó líklega til þess að það dreifist mjög hratt úr því og ekki stafi hætta af, nema þá staðbundin. Innlent 17.3.2024 10:29
Byrjað að flæða úr tjörninni Enn flæðir hraun úr sprungunni á Reykjanesi, þó dregið hafi úr virkni þar og hraunflæði. Hraunið flæðir í tvær áttir, til vesturs í átt að Grindavíkurvegi, þar sem hraunið hefur farið yfir veginn og nálgast Njarðvíkuræð, og til suðurs í átt að Suðurstrandavegi. Innlent 17.3.2024 10:26
Sjáðu aukafréttatímann vegna eldgossins í heild sinni Aukafréttatími vegna eldgossins á Reykjanesskaga verður í beinni útsendingu klukkan 12 á Stöð 2, Stöð 2 Vísi, Vísi og á Bylgjunni. Innlent 17.3.2024 10:03
Eldgos, innflytjendur og Grindavík í Sprengisandi Eldgosið á Reykjanesi verður til umfjöllunar í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Kristján Kristjánsson ræðir fyrst við þá Ara Trausta og Pál Einarsson, jarðvísindamenn. Innlent 17.3.2024 09:32
Eldgosið í nótt í myndum Svo virðist sem að dregið hafi töluvert úr gosvirkni í nótt og í morgun en þegar mest var, var hraunflæðið við Grindavík mikið. Hraun flæddi yfir Grindavíkurveg og fór einnig í átt að Suðurstrandaveg. Innlent 17.3.2024 08:26
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín sagður ætla að „taka til“ eftir kosningarnar Hægt hefur á sókn Rússa vestur af Avdívka, fyrstu borgina sem fallið hefur í hendur Rússa um langt skeið. Rússneskir hermenn gera þó áfram tiltölulega smáar árásir víðsvegar á víglínunni í austurhluta Rússlands, að virðist í leit að veikleikum á vörnum Úkraínumanna. Erlent 17.3.2024 08:00
Vaktin: Meiri gasmökkur nú en í öllum hinum gosunum Hraun flæðir enn frá eldgosi sem hófst milli Skógfells og Hagafells á níunda tímanum í gærkvöldi. Þó hefur dregið töluvert úr virkni og gosrennsli. Innlent 17.3.2024 06:58
Rafmagn tekið af Grindavík Rafmagn var tekið af í Grindavík rétt í þessu en á vefmyndavélum sést að ljós í bænum hafa slokknað. Innlent 17.3.2024 01:19
Fylgst með Íslandi úr öllum áttum Fjölmiðlar um allan heim fjalla um gosið sem hófst milli stóra Skógfells og Hagafells í kvöld. Þó virðist áhugi sumra miðla minni en á síðustu gosum sem voru í kastljósi fjölmiðla. Innlent 16.3.2024 23:46
Hraunið rennur hratt og stefnir á Suðurstrandarveg Víðir Reynisson sviðsstjóri hjá Almannavörnum segir að hrauntungurnar tvær frá gosinu við Grindavík valdi mönnum áhyggjum. Stutt er í að hraun renni bæði yfir Grindavíkur- og Suðurstrandaveg. Innlent 16.3.2024 23:19
Öflugasta gosið hingað til Magnús Tumi Guðmundsson eldfjallafræðingur segir að gosið sem hófst í kvöld virðast vera það kraftmesta af þeim sem hafa verið á Reykjanesskaganum undanfarin misseri. Innlent 16.3.2024 23:04