Fréttir
303 304 305 306 307 308 309 310 311 … 334 ›
Skotárás í finnskum grunnskóla Lögregla í Finnlandi hefur handtekið einn eftir að tilkynnt var um skotárás í grunnskóla í finnska bænum Vantaa í morgun. Einhverjir hafa særst í árásinni þó að enn hafi ekki verið gefið upp um nákvæman fjölda. Erlent 2.4.2024 07:28
Enn lokað um Öxnadalsheiði Enn er ófært á nokkrum stöðum á landinu, meðal annars um Öxnadalsheiði fyrir norðan og um Þröskulda fyrir vestan. Innlent 2.4.2024 07:23
Él norðantil en bjartviðri suðvestanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt á landinu, éljum á norðanverðu landinu en bjartviðri suðvestantil. Veður 2.4.2024 07:11
Segir alla munu heita Sato árið 2531 að óbreyttu Prófessorinn Hiroshi Yoshida hefur komist að þeirri niðurstöðu að ef stjórnvöld í Japan ráðast ekki í breytingar á lögum og heimili einstaklingum að halda eftirnöfnum sínum þegar þeir ganga í hjónaband, muni allir í Japan heita Sato árið 2531. Erlent 2.4.2024 07:02
Peningarnir hans Willums í baráttunni við eitrið Heilbrigðisráðherra sagðist í fyrra ætla að verja 225 milljónum til að verjast „ópíóíðafaraldri“ á Íslandi. Í dag er búið að úthluta um 91 milljón í verkefni því tengdu en af þeim er um helmingur í neyslurými. Tveir starfshópar eru starfandi og einn vinnuhópur. Innlent 2.4.2024 06:45
Þrír létust og einn slasaðist í snjóflóði í Zermatt í Sviss Þrír létust og einn slasaðist þegar snjóflóð féll á skíðasvæðinu í Zermatt í Sviss í gær. Leit var hrundið af stað þrátt fyrir slæmt veður en yfirvöld hafa varað við því að fleiri snjóflóð gætu fallið í Ölpunum vegna veðurs og mikillar snjókomu síðustu daga. Erlent 2.4.2024 06:35
Ísraelsmenn sagðir hafa drepið sjö starfsmenn hjálparasamtaka Hjálparsamtökin World Central Kitchen segja sjö starfsmenn samtakanna hafa látist í árás Ísraelsmanna á Gasa. Fólkið er sagt hafa verið frá Ástralíu, Póllandi, Bretlandi og Palestínu. Erlent 2.4.2024 06:18
Bæjarstjóri Akureyrar telur þörf á göngum Ástihildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir þurfa að huga alvarlega að jarðgöngum milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og á fleiri stöðum á landinu. Innlent 1.4.2024 23:28
Börn fundist meðvitundarlaus eftir landadrykkju Verkefnastjóri forvarna hjá borginni segir áhyggjuefni að hópamyndun unglinga við verslunarkjarna og víðar hafi aukist. Neikvæðar hliðar þessa séu ofbeldi og neysla vímuefna. Dæmi séu um að börn hafi fundist meðvitundarlaus eftir landadrykkju. Innlent 1.4.2024 23:00
Öxnadalsheiðin áfram lokuð en Fjarðarheiðin opnaði í kvöld Ekki náðist að opna Öxnadalsheiði í dag en reiknað er með að hún verði opnuð í fyrramálið þegar veður skánar. Vegurinn um Fjarðarheiði opnaði í kvöld eftir að hafa verið lokaður í fjóra daga. Fulltrúi Vegagerðarinnar segir von á hvelli í kvöld en það veður verði mun skárra á morgun. Innlent 1.4.2024 22:18
„Svona ýkta skemmdarfýsn er erfitt að skilja“ Útilistaverk í Grasagarðinum var brotið í sundur og bútunum kastað í tjörn aðeins þremur dögum eftir uppsetningu þess. Myndlistarmaðurinn segir grátlegt að sjá margra mánaða vinnu gerða engu og telur hóp hafa verið að verki. Hann vonast þó til að verkið rísi á ný annars staðar. Innlent 1.4.2024 21:12
Breytingar gerðar á jongnarr.is Lénið jongnarr.is var uppfært í gær og blasti þar tímabundið við snið að framboðssíðu áður en síðan var tekin niður. Sennilega tengist síðan tilkynningu Jóns Gnarr á morgun þar sem hann ætlar að skýra hvort hann hyggist bjóða sig fram til forseta. Innlent 1.4.2024 19:52
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vegurinn yfir Öxnadalsheiði verður ekki opnaður í dag og staðan verður ekki metin aftur fyrr en í fyrramálið. Ferðalangar óku margir um Tröllaskaga til að komast leiðar sinnar, bílaröð myndaðist í gegnum Siglufjörð um tíma og þurfti lögregla að stýra umferð um Múlagöng. Við ræðum ófærðina og snjómokstur við G. Pétur Matthíasson, samskiptastjóra Vegagerðarinnar, í beinni. Innlent 1.4.2024 18:22
Segir íbúa ekki hugsa hlutina til enda og treysta sérfræðingum í blindni Bæjarfulltrúi í Grindavík veltir fyrir sér hvort íbúar séu of fljótir á sér með uppkaupum húsnæðis og flótta úr bænum. Hann telur íbúa og bæjarstjórn vera áhorfendur að því sem sé að gerast og hlusti á sérfræðinga í blindni án þess að hugsa hlutina til enda. Innlent 1.4.2024 18:15
Þung umferð í gegnum Siglufjörð og umferðarstýring um Múlagöng Fjöldi fólks á leið suður af Norðurlandi hefur lagt leið sína fyrir Tröllaskaga, þar sem Öxnadalsheiði er lokuð. Innlent 1.4.2024 16:20
Ísraelski herinn skilur Al-shifa sjúkrahúsið eftir í eyði Ísraelski herinn hefur dregið herlið sitt til baka frá al-Shifa sjúkrahúsinu í Gasaborg eftir rúmlega tveggja vikna árásir á sjúrahúsið. Algjör eyðilegging blasir nú við á svæðinu. Nokkur hundruð manns hafa snúið aftur á spítalasvæðið en sjúkrahúsið er það stærsta í Gasa. Erlent 1.4.2024 15:45
Öxnadalsheiði verður ekki opnuð í dag Vegurinn yfir Öxnadalsheiði verður ekki opnaður í dag. Innlent 1.4.2024 15:02
Fögnuðu lögleiðingu kannabisefna Kannabisunnendur í Þýskalandi gátu fagnað vel og innilega við Brandenborgarhliðið á miðnætti þegar ný lög, sem gera einkaneyslu kannabisefna löglega, tóku gildi. Efasemdir eru hins vegar uppi um ágæti lögleiðingarinnar. Erlent 1.4.2024 14:24
Íbúar á Seyðisfirði enn innilokaðir Fjarðarheiði hefur verið lokuð síðastliðna fjóra daga og íbúar Seyðisfjarðar því verið innilokuð frá því á fimmtudag. Innlent 1.4.2024 13:44
„Við erum með tvo trukka og þeir fara mjög hægt yfir“ Slökkvilið í Grindavík berst enn við gróðurelda við gosstöðvarnar við Sundhnjúkagíga. Slökkviliðsstjórinn segir svæðið afar torfærið og að slökkviliðstrukkar fari hægt yfir svæðið. Innlent 1.4.2024 13:42
Íbúar í Rangárþingi ytra fá að tjá sig um vindmyllugarð Íbúum í Rangárþing ytra mun gefast kostur á að taka þátt í viðhorfskönnun á næstunni þar sem þeir geta sagt álit sitt á Búrfellslundi, sem Landsvirkjun hyggst reisa með allt að þrjátíu vindmyllum austan við Sultartangastöð en staðsetning garðsins er í sveitarfélaginu við Vaðöldu. Innlent 1.4.2024 13:30
Mikill samdráttur í nýskráningu fólksbíla milli ára Skráning nýrra fólksbíla hefur dregist verulega saman milli ára. Í mars á þessu ári voru skráðir 532 nýir fólksbílar, en þeir voru 1.832 í sama mánuði á síðasta ári. Samdrátturinn nemur því 71 prósenti. Dacia var með flesta nýskráða bíla í mars, en Toyota það sem af er ári. Innlent 1.4.2024 12:14
Óvíst hvort heiðin opni í dag og illfært um Tröllaskaga Hringvegurinn er lokaður um Öxnadalsheiði, sem og Möðrudal- og Mývatnsöræfi, og óvist hvort hægt verður að opna hann í dag. Vegir á Tröllaskaga eru opnir en illa færir, og því skiptir búnaður og reynsla ökumanna sem ætla að fara þar um öllu máli Innlent 1.4.2024 11:36
Snjóflóðahætta til fjalla víða um land Talsverð snjóflóðahætta er til fjalla víða um landið í dag. Mælst er til þess að fólk forðist það að ferðast um brattar brekkur til fjalla. Innlent 1.4.2024 11:23
Vegir lokaðir víða um landið Vegir eru lokaðir víða á landinu og færð ekki með besta móti sem er ekki gott fyrir alla þá ferðalanga sem þurfa að komast heim eftir páskahelgina. Veður 1.4.2024 09:21
Hugsanleg framboðslén stofnuð Netverjar grafa oft upp ótrúlegustu hluti en svo virðist sem bæði Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, sem báðar hafa verið orðaðar við embætti forseta, hafi stofnað lén eftir eigin nafni. Sami greiðandi er á léni Katrínar og katrinjakobsdottir.is sem stofnað var árið 2006. Innlent 1.4.2024 08:47
Kallar eftir meiri metnaði í Mjódd: Svæðið illa hirt og lýst og hættulegt gestum Formaður íbúaráðs í Breiðholti, Sara Björg Sigurðardóttir, segir eigendur og rekstraraðila í Mjódd sýna mikið metnaðarleysi gagnvart íbúum Breiðholts og kallar eftir breyttri ásýnd. Hún segir svæðið illa hirt og lýst, rusl ekki tínt og svæðinu ekki sinnt. Afleiðingin sé sú að það sé gestum jafnvel hættulegt að vera þar. Innlent 1.4.2024 08:00
Víða kalt í dag Áfram verður norðaustlæg átt á landinu, víða kaldi eða stinningskaldi með éljum í dag en léttskýjað suðvestantil. Veður 1.4.2024 07:47
Bein tveggja ára drengs sem hvarf komin í leitirnar Bein tveggja ára drengs sem hvarf sporlaust í frönsku smáþorpi síðasta sumar hafa komið í leitirnar. Rannsókn á málinu stendur nú yfir þar sem ekki liggur fyrir hvað henti drenginn. Erlent 1.4.2024 07:35
Styttist í að Nuuk fái nýjan alþjóðaflugvöll Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun. Erlent 1.4.2024 07:27