Fréttir
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 334 ›
Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Lögregla var með ölvunarpóst á Bústaðarvegi og voru þrír ökumenn handteknir þar grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Einn reyndi að flýja af vettvangi og ók á móti umferð en var stöðvaður eftir stutta eftirför. Innlent 2.2.2025 09:15
Mexíkó og Kanada svara tollum Trump með sínum eigin Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt háa tolla á þrjú stærstu viðskiptalönd Bandaríkjanna, Kína, Mexíkó og Kanada. Þeim tollum verður ekki tekið þegjandi og hljóðalaust og eru Kanada og Mexíkó farin að undirbúa eigin tolla á Bandaríkin. Erlent 2.2.2025 08:35
Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir ljóst að siðareglur fyrir alþingismenn hindri aðkomu Sigurjóns Þórðarsonar að vinnu við lagabreytingar á strandveiðikerfinu, vegna eignarhlutar hans í strandveiðibáti. Innlent 1.2.2025 23:07
Ógnaði fólki með barefli í bænum Tilkynnt var um mann sem átti að hafa ógnað fólki með barefli í bænum í dag. Lögregla hafði upp á manninum, sem hún kannaðist við frá fyrri afskiptum. Var hann hinn rólegasti og honum var komið heim til sín. Innlent 1.2.2025 21:57
Allir farþegarnir látnir Allir sex sem voru um borð í sjúkraflugvél sem hrapaði í Fíladelfíuborg í Bandaríkjunum létust. Einn sem var á jörðu niðri er látinn og minnst nítján aðrir eru slasaðir. Vélin var nýtekin á loft þegar slysið varð, sem er nú til rannsóknar. Erlent 1.2.2025 21:49
Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Þrátt fyrir að hún sé að verða 85 ára þá stendur hún vaktina alla daga í söluskálanum sínum Landvegamót í Rangárþingi ytra en hér erum við að tala um Pálínu S. Kristinsdóttur, sem hefur fengið heiðursnafnbótina „Samborgari” ársins í Rangárþingi ytra. Innlent 1.2.2025 21:04
Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Samningafundi samtaka kennara með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga lauk á áttunda tímanum í kvöld án þess að niðurstaða fengist í kjaradeilu þeirra. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði í samtali við fréttastofu að hann hafi boðað deiluaðila til nýs fundar klukkan tíu í fyrramálið. Innlent 1.2.2025 20:16
Klakastykki stórskemmdi bíl Stærðarinnar klakastykki rann af fjölbýlihúsi og olli stórskemmdum á bíl í Grafarvogi í gærkvöldi. Bíllinn er töluvert skemmdur ef ekki ónýtur, að sögn aðstandana eigandans. Innlent 1.2.2025 19:26
Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Óvissustigi vegna ofanflóðahættu hefur verið aflétt á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum, en gert er ráð fyrir áframhaldandi óvissustigi á Austfjörðum fram til mánudags. Innlent 1.2.2025 18:58
Ærandi þögn í Karphúsinu, fangaskipti og biðlistar sem lengjast Ekkert hefur heyrst frá deiluaðilum í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga frá því fjölmiðlum var gert að yfirgefa Karphúsið síðdegis í dag. Innlent 1.2.2025 17:49
Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Stefnt er að því að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gefi út leiðbeiningar til þjóðarinnar brjótist út stríðsátök eða í tilfelli stóráfalla. Utanríkisráðherra segir ekki verið að mála skrattann á vegginn en undirstrikar mikilvægi þess að vera viðbúinn. Innlent 1.2.2025 16:31
Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Kjaraviðræður milli kennara og ríkis og sveitarfélaga eru á viðkvæmu stigi. Kennarar höfðu til klukkan 13 í dag til að taka afstöðu til innanhústillögu ríkissáttasemjara en sú afstaða liggur ekki enn fyrir. Fréttamönnum var vísað út úr Karphúsinu um tvöleytið. Innlent 1.2.2025 14:42
Loðnuleitin skilaði enn lægri mælingu og engar veiðar ráðlagðar Niðurstöður loðnuleitar Polar Ammassak og Aðalsteins Jónssonar í samvinnu við Hafrannsóknastofnun sýna enn lægra mat á stærð veiðistofnsins en í mælingunni í vikunni á undan. Innlent 1.2.2025 14:35
Annasamt hjá björgunarsveitum vegna ofsaveðurs Björgunarsveitir sinntu fimmtán útköllum víða um land í gær vegna veðursins sem gengur yfir landið. Í morgun losnuðu þakplötur af byggingum í Bolungarvík og ferðamenn í vanda voru sóttir á Fagradal í nótt. Innlent 1.2.2025 14:06
Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Landsvirkjun leitar nú logandi ljósi að gistingu fyrir starfsfólk sitt á Suðurlandi vegna mikilla framkvæmda á svæðinu næstu þrjú árin, ekki síst í kringum Búrfell og þar í kring. Innlent 1.2.2025 14:04
Óskandi að hægt væri að ljúka deilunni í dag Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, segist vonast til þess að samninganefnd Kennarasambands Íslands fallist á innanhússtillögu sem lögð var fram í gær. KÍ hafði til klukkan eitt í dag til að taka afstöðu til hennar. Innlent 1.2.2025 13:26
Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Fjórtán íbúar á Patreksfirði, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu, hafa nú mátt snúa heim eftir á hættustigi var aflétt. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn víða í gildi en Veðurstofunni er kunnugt um nokkur krapaflóð sem hafa fallið frá því í gær, meðal annars yfir vegi á Vesturlandi og á Austfjörðum. Varðskip Landhelgisgæslunnar er í viðbragðsstöðu fyrir vestan og almenningur er hvattur til að fylgjast vel með færð enda geti vegir lokast vegna ofanflóða. Innlent 1.2.2025 12:20
Baráttukonur minnast Ólafar Töru Fjöldi fólks hefur minnst baráttukonunnar Ólafar Töru Harðardóttur sem lést langt fyrir aldur fram í fyrradag. Hún stofnaði samtökin Öfga og Vitund og lét mikið að sér kveða í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi. Forseti Íslands, samstarfsfólk og baráttukonur minnast hennar með hlýhug. Innlent 1.2.2025 11:47
Hamas lætur þrjá gísla lausa Fyrsti liður vopnahléssamkomulagsins felur í sér að Hamas láti 33 gísla lausa gegn því að Ísraelar sleppi um tvö þúsund fanga lausa ásamt því að leyfa Palestínumönnum að snúa aftur til norðurhluta Gasasvæðisins. Erlent 1.2.2025 10:34
Djúp lægð beinir illviðri til landsins Vestan við landið fer djúp lægð hratt til norðurs og beinir illviðri til landsins í morgunsárið. Lægðin fjarlægist svo landið og dregur þá úr vindi og úrkomu með skúrum eða éljum. Í kvöld gengur svo kröpp lægð norður yfir landið og verður þá vindasamt. Veður 1.2.2025 09:29
Bæjarskrifstofur og heimili rýmd Heimili og atvinnuhúsnæði á Patreksfirði voru rýmd í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu. Hættustigi var lýst yfir skömmu fyrir ellefu og í kjölfarið voru sjö hús rýmd, eitt þeirra bæjarskrifstofan í bænum. Innlent 1.2.2025 09:24
„Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur á síðasta sólarhring sent dælubíla í 26 útköll og megnið af því vegna vatnsleka. Á sama tíma hefur slökkviliðið sinnt óvenjumörgum sjúkraflutningum. Innlent 1.2.2025 08:26
Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og í nótt. Fjöldi meintra stúta voru stoppaðir, þá var eitthvað um umferðarslys og svo var lögreglan bæði kölluð til vegna þakplötufoks og vatnsleka. Innlent 1.2.2025 08:10
Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra vill að flokksþingi Framsóknarflokksins verði flýtt og útilokar ekki að að hún bjóði sig fram til formanns. Þrátt fyrir stórt fylgistap bjóði staða flokksins upp á tækifæri í þeim miklu breytingum sem væru að eiga sér stað í innaríkis- og utanríkismálum. Þá óttast hún að ný aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu endi sem bjölluat og ferlið reynast nýrri ríkisstjórn fjötur um fót. Innlent 1.2.2025 08:01
Sjúkraflugvél hrapaði í Fíladelfíu Sjúkraflugvél hrapaði til jarðar í Fíladelfíuborg í Bandaríkjunum skömmu eftir að hafa tekið á loft í nótt. Sex farþegar voru um borð og ekki er ljóst hvort einhver þeirra lifði af. Eldur kviknaði í nærliggjandi íbúðarhúsum við slysstað. Erlent 1.2.2025 07:33
Stórir pollar leika bílstjóra grátt Veðrið hefur leikið landsmenn grátt í dag. Stórir pollar mynduðust í Hafnarfirði, bílstjórum til mikilla ama. Innlent 1.2.2025 00:02
Læknir ákærður fyrir að ávísa þungunarrofslyfi Bandarískur læknir frá New York var ákærður af kviðdómi fyrir að hafa ávísað og sent ungmenni í Louisana þungunarrofslyf. Mismunandi reglur eru í fylkjunum um þungunarrof. Erlent 31.1.2025 23:50
Trump leggur háa tolla á nágrannaþjóðirnar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að leggja háa tolla á vörur frá Mexíkó, Kanada og Kína. Löndin eiga í miklum viðskiptum við Bandaríkin. Erlent 31.1.2025 22:53
Hellisheiði opin á ný Búið er að opna Hellisheiðina eftir að veginum var lokað fyrr í dag vegna veðurs. Innlent 31.1.2025 22:31
Vonskuveður framundan Vonskuveður á öllu landinu er framundan í kortunum að sögn veðurfræðings. Veðrið í dag hafði mikil áhrif á flugumferð. Innlent 31.1.2025 21:02