Sautján ára undrabarn spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Ítalíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. september 2016 21:41 Donnarumma ver skot í sínum fyrsta landsleik. vísir/getty
Hinn 17 ára Gianluigi Donnarumma, markvörður AC Milan, lék sinn fyrsta landsleik þegar Ítalía mætti Frakklandi í vináttulandsleik í Bari í kvöld. Þessi gríðarlega efnilegi markvörður kom inn á í hálfleik fyrir hinn þrautreynda Gianluigi Buffon. Þess má geta að Buffon lék sinn fyrsta landsleik árið 1997, tveimur árum áður en Donnaruma kom í heiminn. Þessum öflugu markvörðum tókst þó ekki að koma í veg fyrir tap fyrir silfurliðinu frá EM 2016. Anthony Martial kom Frökkum yfir á 17. mínútu með sínu fyrsta landsliðsmarki. Forystan entist þó aðeins í fjórar mínútur því á 21. mínútu jafnaði Graziano Pellé metin. Sjö mínútum síðar komust Frakkar aftur yfir þegar Oliver Giroud skoraði sitt ellefta mark í síðustu þrettán landsleikjum sínum. Vinstri bakvörðurinn Layvin Kurzawa, sem lagði upp markið fyrir Giroud, skoraði svo þriðja mark Frakka níu mínútum fyrir leikslok og gulltryggði sigurinn. Lokatölur 1-3, Frakklandi í vil.
Fótbolti Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira