Sterkir útisigrar hjá ÍBV og Stjörnunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júlí 2016 20:05 Harpa tryggði Stjörnunni stigin þrjú fyrir norðan. vísir/anton
Tveimur leikjum er lokið í 10. umferð Pepsi-deildar kvenna. Það var mikið skorað þegar Selfoss og ÍBV mættust á JÁVERK-vellinum á Selfossi. Alls urðu mörkin átta talsins en Eyjakonur fögnuðu sigri, 3-5. Þetta var þriðji sigur ÍBV í síðustu fjórum leikjum en liðið er í 5. sæti deildarinnar með 15 stig. Selfoss er aftur á móti búinn að tapa fjórum leikjum í röð og nálgast fallsvæðið. Díana Dögg Magnúsdóttir kom ÍBV yfir á 11. mínútu en Magdalena Anna Reimus jafnaði metin 10 mínútum síðar. Eyjakonur skoruðu svo næstu fjögur mörk leiksins en staðan í byrjun seinni hálfleiks var orðin 1-5, ÍBV í vil. Cloe Lacasse skoraði tvö þessara marka og Leonie Pankratz og Sigríður Lára Garðarsdóttir sitt markið hvor. Selfyssingar gáfust ekki upp og Eva Lind Elíasdóttir minnkaði muninn í 2-5 á 48. mínútu, aðeins mínútu eftir að Lacasse skoraði seinna mark sitt. Magdalena skoraði svo annað mark sitt og þriðja mark Selfoss úr vítaspyrnu á 52. mínútu en nær komust heimakonur ekki og ÍBV fagnaði góðum sigri. Á Þórsvelli mættust svo Þór/KA og Stjarnan í hörkuleik. Hulda Ósk Jónsdóttir kom heimakonum yfir strax á 9. mínútu en Ana Victoria Cate jafnaði metin á 27. mínútu. Staðan var 1-1 í hálfleik og allt fram á 74. mínútu þegar Harpa Þorsteinsdóttir skoraði sigurmark Stjörnunnar eftir sendingu frá Öglu Maríu Albertsdóttur. Þetta var 14. mark Hörpu í Pepsi-deildinni en hún hefur verið hreint óstöðvandi í sumar.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá úrslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Íslenski boltinn Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Handbolti Svindlaði á öllum lyfjaprófum Sport Cucurella sendi Chelsea upp fyrir meistarana Enski boltinn „Vorum að passa okkur og hlupum ekki neitt“ Enski boltinn Glódís úr leik í fyrsta sinn á ferlinum Fótbolti Um orðaskak sitt við LeBron James: „Snerist um son hans“ Körfubolti Tatum lækkaði rostann í Lakers og James meiddist Körfubolti Fleiri fréttir „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Sjá meira