Eldgos og jarðhræringar Funda klukkan níu um hvort opna eigi gossvæðið á ný Viðbragðsaðilar munu funda nú klukkan níu vegna eldgossins við Litla-Hrút. Á þeim fundi verður ákveðið hvort gossvæðið verður opnað almenningi á ný. Innlent 15.7.2023 07:31 Halldór 15.07.2023 Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson. Halldór 15.7.2023 06:01 „
54 55 56 57 58 59 60 61 62 … 132 ›
Funda klukkan níu um hvort opna eigi gossvæðið á ný Viðbragðsaðilar munu funda nú klukkan níu vegna eldgossins við Litla-Hrút. Á þeim fundi verður ákveðið hvort gossvæðið verður opnað almenningi á ný. Innlent 15.7.2023 07:31
„Þetta er mjög erfitt en okkur gengur vel“ Slökkviliðsmenn börðust við gróðurelda á gossvæðinu á Reykjanesi í allan dag meðal annars með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að styrkja Björgunarsveitina í Grindavik um tíu milljónir króna og verið er að athuga gerð á nýju bílastæði sem myndi stytta göngu að gosstöðvunum verulega. Innlent 14.7.2023 21:28
Ása Steinars við gosstöðvarnar: „Ég held að einhver muni deyja hér í kvöld“ Ævintýrakonan og ferðaljósmyndarinn Ása Steinars lét sitt ekki eftir liggja og arkaði upp að eldgosinu í góðra vina hópi í fyrradag. Upplifunina segir hún stórfenglega þó mikill hópur fólks sýni glæfralega hegðun í námundan við gosið. Lífið 14.7.2023 20:01
Fyrsta þrívíddarlíkanið af gossvæðinu Náttúrufræðistofnun Íslands hefur birt fyrsta þrívíddarlíkanið af gossvæðinu við Litla-Hrút á Reykjanesskaga. Líkanið er unnið út frá ljósmyndum sem teknar voru úr lofti í gær, þann 13. júlí, þremur dögum eftir að eldgosið hófst. Innlent 14.7.2023 14:34
Varnargalli úr kísilveri nýtist vel við eldgosarannsóknir Eins og flestir vita er hraunið sem nú kemur upp úr jörðinni við Litla-Hrút mjög heitt. Jarðvísindamenn þurfa þó að fara alveg upp að því til þess að taka mikilvæg sýni og þá er eins gott að vera klæddur góðum varnargalla. Innlent 14.7.2023 12:33
Tvö tonn af vatni í senn Slökkvistarf Landhelgisgæslunnar við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga hefur gengið vel að sögn stýrimanns. Notast er við skjólur sem rúma um tvö tonn af vatni. Innlent 14.7.2023 12:01
Svipað hraunrennsli nú og þegar fyrsta gosið náði hámarki Niðurstöður mælinga sem Landmælingar Íslands unnu úr myndum Pleiades gervitunglsins af eldgosinu við Litla-Hrút sýna að meðalhraunrennsli síðustu þrjá daga hefur verið um 13 m3/s, sem er svipað og mest var í gosinu fyrir tveimur árum. Innlent 14.7.2023 09:53
Grjót og mosi þyrlast upp þegar kvikan brýst í gegn Drónamyndband sem sænsk íslenski ljósmyndarinn Jakob Vegerfors tók sýnir hvernig sprungugos hefst og kvikugangur brýst upp til yfirborðs jarðar. Ný gossprunga sést opnast við rætur Litla-Hrúts um 5-8 mínútum eftir að fyrst varð vart við eldgosið milli Fagradalsfjalls og Keilis mánudaginn 10. júlí. Innlent 14.7.2023 09:52
„Við vonumst eftir því að fá rigningu“ Slökkvilið Grindavíkur var við slökkvistörf á gossvæðinu til að verða tvö í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins lánaði vatnstank til verksins og Brunavarnir Suðurnesja hafa séð um sjúkraflutningavakt á svæðinu. Innlent 14.7.2023 08:36
Vísindamenn nýttu nóttina vel við gosið Virkni eldgossins við Litla-Hrút er stöðug og hefur ekki breyst í nótt. Vísindamenn voru að störfum inn í nóttina að bæta mælitækjum við á svæðið en gönguleiðin að gossvæði var lokað í gær. Innlent 14.7.2023 06:25
Hálft Reykjanesið geti farið undir eld Slökkviliðsbíla má nú sjá við gosstöðvarnar þar sem reynt er að halda aftur af útbreiðslu gróðurelda sem loga vegna glóandi hrauns. Slökkviliðsstjóri segir að ef ekkert verði að gert sé hætta á því að þeir nái gríðarlegri dreifingu á svæðinu. Lokað var fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum í dag. Innlent 13.7.2023 20:42
Fólk að stelast að gosinu í glórulausum aðstæðum Hjálmar Hallgrímsson, vettvangsstjóri lögreglunnar, segir margvíslegar ástæður fyrir því að gosstöðvunum hafi verið lokað í morgun. Sumir reyni að stelast til að komast að þeim, fram hjá lögreglunni. Innlent 13.7.2023 16:51
„Auðveldasta leiðin og eina leiðin er til suðurs“ Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir virkni eldgossins við Litla-Hrút vera svipaða í dag eins og í gær. Hann segir það afar ólíklegt að kvikugangurinn lengist eða að sprungur opnist á nýjum stöðum, til að mynda norðar við Keili. Hraunið muni renna áfram til suðurs. Innlent 13.7.2023 15:14
Hemjum hamfarahamingjuna Í þriðja sinn á rúmum tveimur árum gýs nú á Reykjanesskaganum. Í þriðja sinn erum við tiltölulega heppin því hvorki er um að ræða mikið gosútfall sem ógnar flugi til og frá landinu eða veldur slæmu öskufalli í grennd gossins, né er gosið staðsett þannig eða af þeirri stærðargræðu að það ógni innviðum og íbúðabyggð. Skoðun 13.7.2023 15:01
Einfaldar staðreyndir að Vellirnir standi á nýjasta hrauninu Vellirnir í Hafnarfirði standa á yngsta hrauninu á höfuðborgarsvæðinu. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir því skynsamlegra að byggja til austurs frá Völlunum en til suðurs. Innlent 13.7.2023 14:28
Hraunið muni flæða áfram inn í Meradali Hraunið úr eldgosinu mun líklega fylla upp í skálina við Kistufell suður af Litla-Hrúti í dag. Spálíkan rannsóknarstofu eldfjallafræða og náttúruvár spáir því að hraunið muni flæða áfram inni Meradali. Ómögulegt sé þó að spá fyrir um lengd gossins. Innlent 13.7.2023 13:12
Náði myndbandi af nýrri gossprungu að opnast Myndband náðist af því þegar ný sprunga opnaðist á gossvæðinu á Reykjanesi á mánudaginn. Í myndbandinu má sjá hvernig hraunið nær að brjótast út úr sprungunni í fyrsta skiptið. Sá sem tók upp myndbandið hafði beðið í nokkra daga á svæðinu eftir að eldgos hæfist. Innlent 13.7.2023 10:54
Loka gönguleiðinni að gosstöðvunum Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um loka Meradalaleið upp að gosstöðvunum til laugardags hið minnsta. Um er að ræða einu leiðina sem göngufólki hefur verið leyft að ganga að gosinu við Litla-Hrút. Allar gönguleiðir eru því lokaðar inn á svæðið. Innlent 13.7.2023 10:19
Spá því að hraun flæði úr lægðinni á næstu klukkutímum Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands segir líkur á því að hraunið sem safnaðist saman í lægðinni við Kistufell suður af Litla-Hrúti byrji að flæða úr lægðinni sem sé að verða full. Innlent 13.7.2023 07:54
Eldgosið mallar áfram: Göngufólk á von á reykjarmekki á leið sinni Litlar breytingar hafa orðið á gosstöðvunum frá því í gærkvöldi að sögn Veðurstofunnar. Innlent 13.7.2023 06:52
„Krakkaskítur“ og „helvítis fáviti“ hreytt í björgunarsveitarfólk Björgunarsveitarmaður frá Sandgerði segist hafa átt búist við að fá yfir sig skít og drullu þegar hann lagði leið sína á gosstöðvarnar til að sinna rýmingu vegna gasmengunar á mánudag. Það hafi heldur betur staðist og hann kallaður „krakkaskítur“ og „helvítis fáviti“ af göngufólki. Langflestir hafi þó verði þakklátir og tekið leiðbeiningum vel. Innlent 13.7.2023 06:45
„Það er enginn að fara að koma þér til bjargar“ Upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir dæmi um að fólk fari ekki að tilmælum björgunarsveitarfólks og sé „óvenju fífldjarft“ við eldgosið. Sumir hafi gengið inn á nýrunnið hraun og jafnvel upp á gígbarma. Lítið sé hægt að gera ef einstaklingar stígi ofan í glóðheitt hraun með skelfilegum afleiðingum. Innlent 12.7.2023 23:55
Segir Hraunssels-Vatnsfell með aðgengilegasta útsýnið Almannarvarnir hófu strax í gærkvöldi að stika leið til að beina ferðafólki með sem öruggustum hætti að gosstöðvunum. Formaður Landsbjargar segir að illa hafi gengið á fá björgunarsveitafólk til starfa úr sumarfríi. Innlent 12.7.2023 23:35
Varla komin aftur eftir að hafa flúið gosið fyrir tveimur árum Eigendur Ísólfsskála, sem flúðu með allt lauslegt verðmæti af jörðinni vegna yfirvofandi hraunflóðs úr Geldingadölum fyrir tveimur árum, voru varla byrjaðir að koma sér fyrir aftur núna í sumar þegar enn eitt eldgosið brast á. Þeir vonast þó til að jörðinni stafi ekki ógn af nýjasta gosinu. Innlent 12.7.2023 22:24
Fólk hætti sér með ung börn í gegnum reykjarmökkinn Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að eldgosinu á Reykjanesi í dag í ágætu veðri en mjög erfiðum aðstæðum vegna mikils reyks frá gróðureldum. Dæmi eru um að foreldrar gangi með ung börn á bakinu í gegnum reykmökkinn til að komast að gosinu. Innlent 12.7.2023 20:34
Hættu sér upp á sjóðheitt hraunið: „Leggja líf sitt í hættu til að ná einhverju svona skoti“ Hjartaskurðlæknir fékk hland fyrir hjartað í gær þegar hann sá tvo erlenda ferðamenn ganga upp á nýjan hraunhól við Litla-Hrút þar sem skömmu áður var sprunga og glóandi hraun. Innlent 12.7.2023 19:22
Nota þyrlu til að slökkva gróðurelda við gosið Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar flýgur nú yfir eldstöðvarnar við Litla-Hrút og dreifir vatni yfir gróðurelda á svæðinu til að halda aftur af dreifingu þeirra. Þetta er gert að ósk almannavarna til að draga úr líkum á því að eldurinn breiðist að gönguslóðum. Innlent 12.7.2023 17:30
Hættulegur gróðureldareykur bætist við gasið Mikill reykur frá gróðureldum bætist við gasmengunina í Litla Hrút. Loftgæðin í kringum gosstöðvarnar eru því mun verri en í eldgosunum í Fagradalsfjalli og Meradölum. Innlent 12.7.2023 15:17
Gjaldskylda hafin á bílastæðunum við gossvæðið Búið er að hefja gjaldskyldu á bílastæðunum við gönguleiðina að eldgosinu. Kostnaður við stæði er frá þúsund og upp í fjögur þúsund krónur. Ef gjald er ekki greitt leggst þrjú þúsund og fimmhundruð króna álagning á gjaldið. Innlent 12.7.2023 14:30