Úkraína
1 2 3 4 5 6 7 8 … 79 ›
Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur engar skýringar á dauða Viktoriiu Roshchynu, úkraínskrar blaðakonu, í rússnesku fangelsi. Blaðakonan, sem var 27 ára gömul, hvarf í hernumdri Austur-Úkraínu í ágúst í fyrra. Erlent 13.10.2024 10:00
Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Úkraínumenn gerðu í kvöld árás á vöruskemmu í sunnanverðu Rússlandi sem þeir segja að hafi hýst fjögur hundruð Shahed-sjálfsprengidróna. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum í Rússlandi renna stoðum undir frásögn úkraínska hersins. Erlent 9.10.2024 22:34
Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Hermenn frá Norður-Kóreu verða líklega sendir til liðs við rússneska hermenn í Úkraínu. Sex hermenn frá einræðisríkinu einangraða eru þar að auki sagðir hafa fallið í eldflaugaárás í Úkraínu fyrr í mánuðinum. Erlent 8.10.2024 19:32
Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Flugmaður rússneskrar herþotu skaut á laugardaginn niður sjaldgæfan rússneskan dróna yfir Úkraínu. Svo virðist sem að Rússar hafi verið að nota drónann, sem er búinn tækni svo hann sést verr á ratsjám, til að varpa svifsprengjum á Úkraínu þegar þeir misstu stjórn á honum. Erlent 7.10.2024 21:33
Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Úkraínumenn eigna sér heiður af stórfelldri tölvuárás á stærsta ríkisfjölmiðil Rússlands á afmælisdegi Vladímírs Pútín forseta. Vefsíður stærstu ríkismiðla Rússlands liggja niðri og talsmaður ríkisstjórnarinnar segir árásina án fordæma. Erlent 7.10.2024 14:16
Versnandi ástand í Pokrovsk Rússar gera ítrekaðar árásir á bæinn Pokrovsk í austurhluta Úkraínu og eru helstu innviðir bæjarins, þar sem um þrettán þúsund manns búa, ónýtir. Hersveitir Rússa eru um sjö kílómetra frá bænum, sem er mikilvæg birgðamiðstöð fyrir úkraínska herinn og óbreytta borgara í Dónetsk-héraði. Erlent 4.10.2024 15:12
Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Mark Rutte, nýr framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, er í heimsókn í Kænugarði í Úkraínu. Þetta er fyrsta opinbera ferð Rutte frá því hann tók við embættinu á þriðjudaginn en hún var ekki opinberuð fyrr en hann var kominn þangað í morgun. Erlent 3.10.2024 12:13
Selenskí fundaði með Trump Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði í dag með Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og forsetaframbjóðanda. Trump hefur á undanförnum mánuðum ítrekað gagnrýnt stuðning Bandaríkjanna við Úkraínu varðandi varnir þeirra gegn innrás Rússlands. Erlent 27.9.2024 15:51
Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti tillögum um að Úkraínumenn afsali sér landsvæði sínu til þess að kaupa sér frið við Rússa sem hættulegum og óásættanlegum í dag. Það væru ekki friðartillögur heldur uppgjafartillögur. Erlent 26.9.2024 22:27
Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag umfangsmikla hernaðaraðstoð til Úkraínu og sagði hann að stuðningurinn ætti að hjálpa Úkraínu að „vinna“ stríðið gegn Rússum. Hann mun seinna í dag fá Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í heimsókn til Hvíta hússins. Erlent 26.9.2024 13:18
Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði á fundi með öryggisráði sínu í gær að Rússar myndu íhuga að beita kjarnorkuvopnum ef þeim bærust áreiðanlegar upplýsingar um yfirvofandi loftárás með hefðbundnum vopnum. Erlent 26.9.2024 06:26
Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kom fram fyrir þingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag og sagði Rússland vera að skipuleggja frekari árásir gegn kjarnorkuverum Úkraínu og varaði viðstadda við „kjarnorku hörmung“. Erlent 25.9.2024 19:54
„Virkið“ Vuhledar að falli komið Hersveitir Rússa eru komnar langleiðina með að ná tökum á bænum Vuhledar í Dónetsk-héraði í Úkraínu. Rússar hafa lagt mikið púður í sóknina að bænum á undanförnum dögum og hafa verjendur hans þurft að hörfa undan þessum áhlaupum. Erlent 25.9.2024 15:05
Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Erindrekar frá Íran hafa komið að viðræðum milli yfirvalda í Rússlandi og Húta í Jemen, sem vilja fá háþróaðar eldflaugar frá Rússum til að sökkva skipum á Rauðahafi. Hútar hafa gert ítrekaðar árásir á skip á svæðinu og óttast er að umræddar eldflaugar gætu aukið getu þeirra til muna. Erlent 25.9.2024 10:15
„Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ „Ég tel okkur vera nærri friði en menn halda... Við erum nærri endalokum stríðsins,“ sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, í samtali við Good Morning America. Erlent 24.9.2024 06:57
Úkraínumenn berjist með „aðra hönd bundna fyrir aftan bak“ Tregða Bandaríkjanna og annarra ríkja til að leyfa Úkraínumönnum að nota vopn frá þeim innan landamæra Rússlands er mikil vonbrigði. Þetta segir formaður utanríkismálanefndar Eistlands sem telur afstöðuna hættulega og merki um veikleika. Mikið sé í húfi fyrir allsherjaröryggi í Evrópu. Innlent 23.9.2024 20:02
Ógn Rússa við Norðurlönd og Eystrasaltsríki rædd í HR Norðurlönd og Eystrasaltsríkin finna mjög mikið fyrir ógninni frá Rússlandi og standa þétt saman í öryggis- og varnarmálum, að sögn Diljar Mist Einarsdóttur alþingismanns. Þessi ríki þekki það á eigin skinni að verja þurfi friðinn með kjafti og klóm. Innlent 23.9.2024 11:54
Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, þakkaði starfsmönnum vopnaverksmiðju í Pennsylvaníu fyrir skotfæri sem þeir framleiða fyrir Úkraínuher í heimsókn í gær. Pennsylvanía gæti ráðið úrslitum um hver verður næsti forseti Bandaríkjanna. Erlent 23.9.2024 10:47
Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Að minnsta kosti 21 er særður eftir að sprengjum var varpað á fjölbýlishús í Karkív í Úkraínu í nótt. Þetta var aðra nóttina í röð sem Rússar varpa sprengjum á fjölbýlishús í borginni, sem hefur lengi orðið fyrir sambærilegum árásum. Erlent 22.9.2024 10:31
Senda svifsprengjur fyrir F-16 Yfirvöld í Bandaríkjunum íhuga að senda Úkraínumönnum nýjar svifsprengjur sem hægt er að varpa með F-16 orrustuþotum, sem Úkraínumenn hafa þegar fengið. Enn er verið að leggja lokahönd á næsta hergagnapakka sem Bandaríkjamenn ætla að senda en hann á að vera metinn á um 375 milljónir dala. Erlent 21.9.2024 14:55
Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Önnur stór vopnageymsla í Rússlandi stendur í ljósum logum eftir árás Úkraínumanna í nótt. Stórar sprengingar urðu í vopnageymslunni í nótt og hafa fleiri sést í morgun. Erlent 21.9.2024 07:58
Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Íbúar í grennd við stóra vopnageymslu í Tver-héraði í Rússlandi, skammt frá Belarús, vöknuðu í nótt við kröftugar sprengingar og stendur vopnageymslan í ljósum logum. Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmikla drónaárás á vopnageymsluna, sem þeir telja að hafi hýst eldflaugar og önnur hergögn frá Norður-Kóreu. Erlent 18.9.2024 09:45
Úkraínski heimsmeistarinn handtekinn á flugvelli Hnefaleikakappinn Oleksandr Usyk, heimsmeistari í þungavigt, hefur verið látinn laus eftir að hafa verið handtekinn á flugvelli í Póllandi. Forseti Úkraínu blandaði sér í málið. Sport 18.9.2024 09:32
Stækkar herinn í þriðja sinn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í gær út þá skipun að her ríkisins yrði stækkaður. Atvinnuhermönnum yrði fjölgað um 180 þúsund og yrðu því alls ein og hálf milljón. Skipunin á að taka gildi þann 1. desember en þetta er í þriðja sinn frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022 sem Pútín gefur út skipun sem þessa. Erlent 17.9.2024 13:07
Skiptust á stríðsföngum Tvö hundruð og sex voru látnir lausir þegar Rússar og Úkraínumenn skiptust á stríðsföngum í dag. Einn sagðist finna fyrir miklum létti en nokkrir þeirra hafa verið í haldi síðan Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022. Innlent 14.9.2024 19:03
Rússar vísa breskum erindrekum úr landi Ráðamenn í Rússlandi hafa sakað sex starfsmenn sendiráðs Bretlands í Rússlandi um njósnir og ætla að vísa þeim úr landi. Ríkismiðlar í Rússlandi vísa í embættismenn hjá FSB (áður KGB) og hafa eftir þeim að erindrekunum verði vikið úr landi en það er í kjölfar þess að fregnir hafa borist af því að Bretar og Frakkar ætli að leyfa Úkraínumönnum að nota stýriflaugar frá þeim til árása í Rússlandi. Erlent 13.9.2024 10:57
Pútín segir NATÓ á leið í stríð við Rússa Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir heimild til handa Úkraínumönnum til að nota langdræg vopn frá Vesturlöndum til að gera árásir á Rússland myndu jafngilda þátttöku og stríðsyfirlýsingu af hálfu Atlantshafsbandalagsins. Erlent 13.9.2024 08:46
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar hefja gagnsókn í Kúrsk Á meðan Rússar sækja fram í austurhluta Úkraínu og reyna að ná tökum á öllu Donbas-svæðinu, hafa Úkraínumenn sótt fram í Kúrsk-héraði í Rússlandi. Hægt hefur á sóknum Rússa í Donbas en úkraínskir hermenn eru í mjög varhugaverðri stöðu þar, vegna yfirburða Rússa varðandi mannafla og skotfæri fyrir stórskotalið. Erlent 13.9.2024 06:55
Gætu leyft Úkraínu að nota langdræg flugskeyti gegn Rússlandi Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands ræða nú við forseta Úkraínu um notkun langdrægra flugskeyta til þess að verjast árásum Rússa sem Úkraínumenn hafa kallað eftir. Biden Bandaríkjaforseti segir unnið að því að veita heimildina. Erlent 11.9.2024 10:27
Sammála um að Rússar þurfi að eiga aðkomu að næstu friðarráðstefnu Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við sjónvarpsstöðina ZDF í gær að hann og Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti væru sammála um að Rússar þyrftu að eiga aðkomu að næstu friðarráðstefnu um endalok innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 9.9.2024 06:46