Samgöngur
38 39 40 41 42 43 44 45 46 … 102 ›
Komdu út að hjóla... Í borginni eru margir staðir til að næra sál og líkama. Mörgum finnst gott að ganga, finna lyktina af náttúrunni og njóta útsýnis. Öðrum finnst skemmtilegra að hjóla, vera í síbreytilegu umhverfi innan borgarmarkanna, hjóla meðfram sjónum með vindinn í fangið, upplifa sólsetur með sjávarlykt eða horfa á borgina vakna í hversdagsleikann í upphafi vinnuviku. Skoðun 7.9.2021 10:30
„Bara einhver götuskreyting“: Harma skeytingarleysi borgarinnar gagnvart regnboganum Miklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum um nýja umgjörð Skólavörðustígs og nærliggjandi gata en athygli vekur að nýtt skipulag og útlit gerir ekki ráð fyrir regnbogafánanum, sem prýðir götuna. Innlent 7.9.2021 08:12
Skaftá að komast í ham til að flæða yfir hringveginn Rennsli í Skaftá fór hratt vaxandi við Sveinstind eftir hádegi og er verið að loka hálendisvegum á svæðinu og rýma fjallaskála. Búist er við að hlaupið nái hámarki í byggð eftir tvo sólarhringa og eru líkur taldar á að hringvegurinn í Eldhrauni geti lokast um tíma. Innlent 6.9.2021 21:00
Sundabraut - pólitískur ómöguleiki? Þrátt fyrir mikla efnahagslega niðursveiflu nýtur íslenska ríkið nú betri kjara en áður. Það er afleiðing þeirra róttæku efnahagsaðgerða sem ráðist var í á árunum 2013-16 undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, nú formanns Miðflokksins. Þessa stöðu á að nýta til að byggja upp innviði landsins, ekki hvað síst í samgöngum. En þá skiptir öllu máli að forgangsraða rétt og ráðast í hagkvæmar framkvæmdir þar sem þörfin er mest. Skoðun 6.9.2021 17:31
Loka vegum vegna Skaftárhlaups Fjórum vegum verður lokað í kvöld vegna Skaftárhlaupsins. Búist er við að vatn flæði yfir vegi í nálægð við hlaupið og verður þeim lokað frá og með klukkan sjö í kvöld. Innlent 6.9.2021 16:12
Lyftu líparíthaugum af veginum heim Grjóhrun hindraði för hópa Ferðamannafélags Íslands en göngugarparnir gerðu sér lítið fyrir og ýttu grjóthnullungum frá og út í á. Innlent 6.9.2021 10:23
Skyndiákvörðun poppara um að bruna í bæinn varð hröktum ferðalöngum mögulega til lífs Tveimur rúmenskum karlmönnum var bjargað eftir miklar hrakningar í vonskuveðri eftir að bifreið þeirra varð alelda á miðri Kleifaheiði í gærkvöldi. Ökumaður sem ákvað að drífa sig suður um kvöldið segir það mildi að hann hafi fundið þá hjálparlausa á heiðinni. Innlent 5.9.2021 19:30
Stýrir Evrópusambandið byggðaþróun á Íslandi? Á vordögum lagði ég fram fyrirspurn til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um fyrirkomulag innanlandsflugs. Svar við fyrirspurninni barst loks í lok ágúst. Skoðun 5.9.2021 13:01
Nýtt leiðakerfi almenningssamgangna í Fjarðabyggð Nýtt kerfi almenningssamgangna hóf göngu sína í Fjarðabyggð í vikunni en með því er stigið stórt skref fram á við í að tengja enn betur saman okkar víðfeðma sveitarfélag . Mig langar því á þessum tímamótum að óska íbúum Fjarðabyggðar til hamingju með þennan merka áfanga. Skoðun 4.9.2021 09:30
Rennslið fer minnkandi í Skaftá Rennsli hefur farið hægt minnkandi í Skaftá við Sveinstind síðustu klukkustundir. Rennslið 412 rúmmetrar á sekúndu klukkan 14.30 í dag. Rennslið náði hámarki á miðnætti aðfaranótt 2. september og var þá um 520 rúmmetrar á sekúndu. Innlent 3.9.2021 15:26
Bílatryggingar hækka mjög á meðan slysum fækkar Bílatryggingar hafa hækkað mjög á síðustu árum á sama tíma og bæði umferðarslysum og slösuðum einstaklingum í umferðinni fækkar. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) gagnrýnir tryggingarfélögin, lífeyrissjóðina og fjármálaeftirlitið fyrir að leyfa þessari þróun að viðgangast. Neytendur 2.9.2021 14:41
Fyrsta Skaftárhlaup sem nýja brúin yfir Eldvatn fær á sig Hlaupið sem hófst í Skaftá í gær er það fyrsta sem dynur á nýju brúnni yfir Eldvatn hjá Ásum, eftir að hún var opnuð umferð fyrir tæpum tveimur árum. Hún var reist í stað gömlu brúarinnar sem eyðilagðist í Skaftárhlaupi haustið 2015. Hlaupið núna er þó vart talið verða nema um fjórðungur af stærð hamfarahlaupsins fyrir sex árum. Innlent 2.9.2021 11:49
Strætó tekur upp nýtt greiðslukerfi og allt að 30 þúsund króna sekt Stjórnendur Strætó stefna að því að taka nýtt rafrænt greiðslukerfi í notkun í október. Á sama tíma er unnið að útfærslu svokallaðs fargjaldaálags, sem Strætó mun geta innheimt þegar farþegar eru staðnir að því að hafa ekki greitt tilskilið fargjald. Innlent 2.9.2021 09:57
Einbeita sér að áfangastöðum þar sem eftirspurn er sterk Icelandair mun fljúga til 25 áfangastaða í vetraráætlun flugfélagsins sem nær frá 1. október til 31. mars. Félagið gerir hlé á flugi áfangastaða á borð við Helsinki og Glasgow þar sem eftirspurn hefur ekki náð sér á strik. Viðskipti innlent 1.9.2021 08:55
Síðasta þéttbýli Austurlands tengist brátt bundnu slitlagi Endurbygging fimmtán kílómetra vegarkafla á Fljótsdalshéraði í átt til Borgarfjarðar eystra markar þáttaskil í samgöngumálum Austurlands. Þegar malbikun vegarins lýkur verða allir þéttbýlisstaðir fjórðungsins tengdir bundnu slitlagi. Innlent 31.8.2021 20:40
Icelandair hættir flugi til Vestmannaeyja Icelandair hættir flugi til Vestmannaeyja nú í lok ágústmánaðar og lýkur sumaráætlun mánuði fyrr en ráðgert var. Þetta er vegna dræmrar eftirspurnar og er óvíst hvort félagið taki upp þráðinn að nýju næsta sumar. Innlent 29.8.2021 06:45
Áherslur xF í samgöngum í NV-kjördæmi: Frá Sundabraut til nýrrar Breiðafjarðarferju Sundabraut er þjóðhagslega hagkvæmasta vegaframkvæmdin sem völ er á í dag og myndi verulega styrkja stöðu Akraness sem hluta af atvinnusvæði höfuðborgarsvæðisins. Skoðun 27.8.2021 11:30
Skiptir máli að fá ferðamenn einnig um Egilsstaðaflugvöll Austfirðingar kalla eftir því að Egilsstaðaflugvöllur verði þróaður sem millilandaflugvöllur og þannig opnaðar fleiri gáttir fyrir ferðamenn inn í landið. Viðskipti innlent 27.8.2021 10:34
Gosið hafi mannast Í gær mynduðust myndarlegur hraunfoss í hlíðinni ofan við Nátthaga, svo myndarlegur að hann sást frá Suðurstrandavegi. Eldfjallafræðingur telur að gosið hafi mannast. Innlent 27.8.2021 09:00
Ég panta að græða á PPP Vorið 1997 var ég staddur á breskum pöbbi í Singapúr þar sem ég var búsettur. Við vorum að fagna, skálað var í kampavíni til að halda uppá stórsigur Tony Blair og breska Verkamannaflokksins í kosningunum í Bretlandi. Við vorum að fagna hruni thatcherismans, eða það héldum við. Little did we know eins og þeir segja á ensku. Skoðun 26.8.2021 12:30
Bæjarstjórinn segir hámarksgjaldið í kringum hundrað kall „Ég held það séu gríðarleg mistök að horfa svona á málið,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar, um hugmyndir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að innheimta 400 til 700 krónur fyrir hverja ferð yfir nýja Ölfusárbrú. Innlent 26.8.2021 08:48
Gæsavatnaleið lokað og Sprengisandsleið ófær Gæsavatnaleið norðan Tungnafellsjökuls hefur verið lokað vegna mikilla vatnavaxta. Þá segir einnig í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að Sprengisandsleið sé sögð ófær vegna vatnavaxta í Hagakvísl, skammt norðan Nýjadals. Innlent 25.8.2021 12:57
Varað við vatnavöxtum á Sprengisandsleið Lögreglan á Norðurlandi eystra vekur sérstaka athygli á miklum vatnavöxtum í ám á Sprengisandsleið og Gæsavatnaleið norðan Tungafellsjökuls. Innlent 25.8.2021 09:39
Millilandaflug fer úr skorðum Millilandaflug á Keflavíkurflugvelli fer úr skorðum á þriðjudag eftir viku þegar allt flug til og frá landinu á þriðjudagsmorgun fellur niður takist ríkissáttasemjara ekki að sætta Isavia og flugumferðarstjóra fyrir þann tíma. Verkfall þeirra hefur ekki áhrif á innanlandsflug. Innlent 24.8.2021 11:48
Ferðin yfir nýja Ölfusárbrú mun kosta 400 til 700 krónur Framkvæmdir við nýja brú yfir Ölfusá verða boðnar út fyrir áramót og hefjast á fyrri hluta næsta árs. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Innlent 24.8.2021 06:50
Félag íslenskra flugumferðastjóra boðar til verkfalls Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Isavia var slitið upp úr klukkan 23:30 í kvöld. Fundað hafði verið frá klukkan eitt í dag en samkomulag náðist ekki milli aðila og því hefur verið boðað til verkfalls. Innlent 24.8.2021 00:11
Lengsti vegur Grænlands kominn í sextíu kílómetra Mynd er farin að koma á nýja veginn milli Kangerlussuaq og Sisimiut sem ætlað er að verða lengsti þjóðvegur Grænlands. Búið er að leggja um það bil 60 kílómetra eða yfir þriðjung af 170 kílómetrum. Framkvæmdir halda áfram til loka september en þá verður gert hlé yfir veturinn. Erlent 22.8.2021 09:46
Þjóðvegarykið að hverfa af norðausturhringnum Íbúar norðausturhornsins fagna um þessar mundir stórum áfanga í lagningu bundins slitlags um Langanesströnd milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Núna vantar malbik á aðeins sex kílómetra bút til að klára norðausturhringinn. Innlent 21.8.2021 23:15
Ölfusárbrú lokuð í kvöld og nótt vegna malbikunar Ölfusárbrú verður lokuð í kvöld og í nótt þegar stefnt er að því að malbika veginn yfir brúna. Innlent 19.8.2021 09:51
Hjól og hundar Á ferðum mínum í sumar, bæði til vinnu sem og í fríum, tók ég eftir jákvæðum breytingum sem snúa að útivist hjá landanum. Í fyrsta lagi var allt löðrandi af hjólreiðamönnum um víðan völl og nánast annar hver bíll var með hjól á þaki eða hangandi aftan á bílnum. Skoðun 16.8.2021 13:01