Lögreglumál
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 281 ›
Ekið á stúlku sem var að koma úr strætó Laust fyrir klukkan hálfsex í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að ekið hefði verið á þrettán ára stúlku í Árbæ. Hafði stúlkan verið að koma úr strætó þegar ekið var á hana. Innlent 28.1.2021 06:30
Óska eftir vitnum að hjólreiðaslysi í Breiðholti þar sem maður lést Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að slysi sem varð á göngustíg á móts við Hagasel 14-22 í Breiðholti laugardagsmorguninn 16. janúar. Innlent 27.1.2021 14:09
Óttast að krapastífla sé á fleiri stöðum í Jökulsá Verkstjóri á Húsavík sem staddur er við Krapastífluna við Jökulsá á Fjöllum óttast að fleiri krapastíflur séu í ánni. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á leiðinni með dróna til að ná betri yfirsýn. Innlent 27.1.2021 12:42
Árvekni drengs á Hofsósi varð til þess að sprungan uppgötvaðist Árvekni ungs drengs á Hofsósi varð til þess að stærðarinnar sprunga í snjóalögum fyrir ofan Vesturfarasetrið uppgötvaðist. Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur í samráði við Veðurstofuna lokað hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna snjóflóðahættu. Innlent 27.1.2021 12:30
Fjöldi manns kærður fyrir brot á sóttvarnalögum vegna dansleiks í miðbænum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi tilkynning um dansleik í húsnæði við hlið veitingastaðar í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 27.1.2021 06:21
Þriggja metra djúpur „krapahaugur“ lokar þjóðveginum Krapastífla flæðir nú yfir þjóðveg 1 við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Vegurinn milli Mývatns og Egillstaða er lokaður af þessum sökum. Lögregla segir „krapahauginn“ einna líkastan snjóflóði; hann sé um þriggja metra djúpur og nái yfir um 200 metra vegkafla. Innlent 26.1.2021 18:04
Falsaðir seðlar í töluverðri umferð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að undanfarið hafi borið á tilkynningum um falsaða peningaseðla, bæði fimm þúsund og tíu þúsund króna seðla, auk evru seðla. Nokkur slík mál eru til rannsóknar að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Viðskipti innlent 26.1.2021 12:21
Segja laugaverði hafa verið á sínum stað þegar slysið varð Laugarverðir voru í sal og turni Sundhallarinnar þegar 31 árs karlmaður fannst þar á botni sundlaugar á fimmtudag, að sögn íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur. Maðurinn var síðar úrskurðaður látinn en að sögn föður hans hafði hann legið í um sex mínútur á botni laugarinnar. Innlent 25.1.2021 16:28
Bíða niðurstöðu krufningar eftir andlátið í Sundhöllinni Andlát karlmanns á fertugsaldri sem fannst á botni sundlaugar í Sundhöll Reykjavíkur á fimmtudag er komið til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Er nú beðið niðurstöðu úr krufningu. Innlent 25.1.2021 14:05
Var á þriggja metra dýpi þegar hann heyrði drunurnar í bátunum og þyrlunni Mikael Dubik var á um þriggja metra dýpi í Kleifarvatni í dag þegar hann heyrði einhverjar drunur og velti vöngum yfir því hvort einhver væri kominn með bát á vatnið. Hann hafði oft áður kafað í Kleifarvatni og var yfirleitt einn á ferð. Þá skapaði bátur tiltekna hættu fyrir hann. Innlent 24.1.2021 13:58
Aðgerðum lokið við Kleifarvatn Mikill viðbúnaður var við Kleifarvatn eftir að tilkynning barst um slys upp úr klukkan 12. Talið var að manneskja hefði farið í vatnið en síðar kom í ljós að ekki væri hætta á ferðum, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 24.1.2021 12:50
Töluvert um hávaðatilkynningar vegna samkvæma Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst mikill fjöldi tilkynninga um læti frá partíum í nótt. Þær tilkynningar virðast hafa borist frá öllum hverfum borgarinnar og allt til korter í fimm í nótt, samkvæmt dagbók lögreglu. Innlent 24.1.2021 07:17
Tekinn í fimmta sinn án gildra réttinda Þrjár tilkynningar bárust lögreglu um þjófnað í verslun á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldið og í nótt. Þá var mikið um ökumenn sem stöðvaðir voru vegna gruns um að þeir væru að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Innlent 23.1.2021 07:20
Skotið á skrifstofur þriggja flokka og SA á einu ári Lögregla telur að skotið hafi verið á skrifstofur Viðreisnar, Sjálfstæðisflokksins, Samtaka atvinnulífsins og nú Samfylkingarinnar á einu ári. Talið er að notast hafi verið við loftriffil í öllum tilvikum. Innlent 22.1.2021 16:20
Endurtekið skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka Svo virðist sem endurtekið sé skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka hér á landi. Starfsmenn á skrifstofu Samfylkingarinnar sáu göt á rúðum skrifstofu flokksins í Sóltúni. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fundust litlar byssukúlur á vettvangi. Innlent 22.1.2021 12:26
Handtekinn vegna gruns um íkveikju í húsi á Ólafsfirði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur nú til rannsóknar eldsvoða á Kirkjuvegi 7 á Ólafsfirði sem kom upp aðfararnótt mánudagsins 18. janúar. Innlent 22.1.2021 11:50
Telja að skotið hafi verið á skrifstofur Samfylkingarinnar Starfsfólk skrifstofu Samfylkingarinnar gerði lögregu viðvart í morgun þegar það mætti til vinnu og sá göt á gluggarúðum húsnæðisins við Sóltún 26, sem virðast vera eftir byssukúlur. Tæknideild lögreglu rannsakar nú málið. Innlent 22.1.2021 11:45
Rannsókn lokið: Ásmundarsalarmálið sent ákærusviði Lögregla hefur lokið rannsókn á mögulegum sóttvarnabrotum í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns verður málið sent ákærusviði lögreglunnar í dag, ef það er ekki þegar komið þangað. Innlent 22.1.2021 10:22
Pervertinn sagður hár, grannur og úlpuklæddur í kringum þrítugt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú karlmanns sem beraði á sér kynfærin fyrir framan nemendur í Seljaskóla í Breiðholti um hádegisbil í gær. Maðurinn er talinn í kringum þrítugt, hár og grannur. Innlent 21.1.2021 16:18
Pilturinn látinn laus í fyrradag Ungi maðurinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna árásar í Borgarholtsskóla í síðustu viku var sleppt úr haldi í fyrradag. Úrskurður héraðsdóms um gæsluvarðhald var kærður til Landsréttar, sem sneri úrskurðinum við. Innlent 21.1.2021 15:01
Pervert heldur skólastarfi Seljaskóla í gíslingu Atli Már Gylfason blaðamaður segir gersamlega óþolandi að lögreglan skuli ekki grípa til aðgerða vegna perverts sem gengur laus í Seljahverfinu. Innlent 21.1.2021 14:09
Lögðu hald á sjötíu kannabisplöntur í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi í Hafnarfirði í vikunni. Innlent 21.1.2021 12:41
Þóttust vera eftirlitsmenn MAST í heimsókn til hundagæslu Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á atburði þar sem tveir einstaklingar heimsóttu hundagæslu undir því yfirskyni að vera starfsmenn stofnunarinnar. Sett var út á starfsemina og hún stöðvuð. Innlent 21.1.2021 11:26
Lögreglan lýkur brátt rannsókn á málinu í Ásmundarsal Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýkur væntanlega rannsókn sinni á hvort að sóttvarnarlög hafi verið brotin í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Í framhaldinu verður hún send til ákærusviðs sem tekur ákvörðun um framhaldið. Innlent 20.1.2021 15:00
Ofbeldi gegn fötluðum svartur blettur á samfélaginu Dómsmálaráðherra segir ofbeldi gegn fötluðum svartan blett á íslensku samfélagi. Aðgerðateymi gegn ofbeldi hefur skilað ráðherra úrbóttatillögum í málaflokknum. Innlent 20.1.2021 12:23
Maður á reynslulausn handtekinn fyrir búðarhnupl Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi mann eftir að tilkynnt var um þjófnað úr verslun í hverfi 101 í Reykjavík. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maður í annarlegu ástandi hafi þar verið staðinn að því að stela vörum. Innlent 20.1.2021 07:22
Fatlaðar konur festist í ofbeldisfullum aðstæðum Talið er að um þrjár af hverjum fjórum fötluðum konum verði fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Dæmi eru um aðtekin séu þeim hjálpartækin þannig að þær komist ekki burt úr ofbeldisfullum aðstæðum. Innlent 19.1.2021 21:00
Grunur um fleiri mál þar sem börn fá greitt fyrir nektarmyndir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir þrjú til sex mál fullorðinna einstaklinga sem greiða fyrir nektarmyndir af börnum til rannsóknar hjá embættinu. Grunur sé um fleiri mál af sama toga. Innlent 19.1.2021 18:18
Áform um lögleiðingu neysluskammta fíkniefna í samráðsgátt Áform heilbriðisráðherra um að leggja fram frumvarp sem heimilar vörslu takmarkaðs magns ávana- og fíkniefna eru komin í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu yrði ætlað að stuðlað að því að taka skref í átt frá refsistefnu í málaflokknum. Innlent 19.1.2021 18:05
Lítill hluti ofbeldismála á hendur fötluðu fólki ratar inn í réttarvörslukerfið Talið er að fjöldi fatlaðs fólks hér á landi verði fyrir ofbeldi en að aðeins lítill hluti málanna rati inn í réttarvörslukerfið. Svört skýrsla kom út í dag um ofbeldi gagnvart fötluðum þar sem dregin er sú ályktun að sá hópur njóti ekki sömu réttinda og aðrir í kerfinu. Innlent 19.1.2021 10:08