Þingkosningar í Bandaríkjunum
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 11 ›
Neitar því að hafa borgað þungunarrof kærustu Herschel Walker, frambjóðandi Repúblikanaflokksins til annars öldungadeildarþingsætis Georgíu-ríkis, þvertekur fyrir það að hafa greitt fyrir þungunarrof fyrrverandi kærustu sinnar árið 2009. Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum vestanhafs en Walker segist mikill andstæðingur þess að konur eigi rétt á þungunarrofi. Erlent 4.10.2022 16:32
Gætu breytt bandarísku samfélagi næstu áratugina Hæstiréttur Bandaríkjanna kemur saman á morgun í fyrsta sinn frá því í júní en dómararnir munu taka fyrir mörg stór og umdeild mál á næstu mánuðum. Búast má við því að dómarar sem skipaðir voru af forsetum úr Repúblikanaflokknum, sem eru í miklum meirihluta (6-3), muni halda áfram að færa bandarískt samfélag til hægri. Erlent 2.10.2022 15:03
Trump hótaði McConnell lífláti undir rós Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hótaði Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, lífláti undir rós í gærkvöldi. Samhliða því fór hann rasískum orðum um Elaine Chow, eiginkonu McConnells. Erlent 1.10.2022 10:11
Skaut fast á Repúblikana fyrir fylgispekt þeirra við Trump Dómari fór hörðum orðum um Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og leiðtoga Repúblikanaflokksins fyrir ítrekaðar lygar þeirra um kosningasvik í Bandaríkjunum. Hún sagði Trump hafa gert háttsetta Repúblikana lafandi hrædda við að missa völd sín svo þeir þorðu ekki að fara gegn honum. Erlent 28.9.2022 11:11
Gefa ekki upp hvort þeir muni sætta sig við kosningaúrslit Á annan tug frambjóðenda Repúblikanaflokksins í þing- og ríkisstjórakosningum í haust vilja ekki taka af tvímæli um hvort þeir samþykki úrslitin þegar talið hefur verið upp úr kjörkössunum. Stór hluti flokksins afneitar enn úrslitum forsetakosninganna árið 2020. Erlent 19.9.2022 15:26
Segir MAGA-Repúblikana ógna Bandaríkjunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um Donald Trump, forvera sinn og stuðningsmenn hans, í ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Biden sagði að svo lengi sem Trump stjórnaði Repúblikanaflokknum ógnaði flokkurinn lýðræði í Bandaríkjunum. Erlent 2.9.2022 10:53
Sarah Palin beið lægri hlut Sarah Palin, fyrrverandi ríkisstjóri Alaska og varaforsetaefni Repúblikana, beið lægri hlut í aukakosningum um laust þingsæti fyrir hönd Alaska í fulltrúadeild Bandaríkjaþings sem fram fóru í gær. Erlent 1.9.2022 07:34
Er rauða flóðbylgjan að verða að smá skvettu? Svo virðist sem að sú „rauða flóðbylgja“ sem spáð hefur verið að skelli á Bandaríkjunum í þingkosningunum í nóvember, ætli ekki að raungerast. Undanfarna mánuði hafa Repúblikanar virst í góðri stöðu til að ná völdum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og mögulega öldungadeildinni einnig. Erlent 24.8.2022 22:31
Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Erlent 19.8.2022 08:01
Ætlar sér að stöðva Trump hvað sem það kostar Fulltrúadeildarþingmaðurinn Liz Cheney hefur heitið því að nýta næstu tvö ár í að gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að Donald Trump snúi aftur í Hvíta húsið. Hún útilokar ekki forsetaframboð í forsetakosningunum eftir tvö ár. Erlent 17.8.2022 22:01
Liz Cheney hafnað af Repúblikönum í Wyoming Bandarísku þingkonunni Liz Cheney var hafnað í forkosningum Repúblikana í Wyoming í gær vegna þingkosninganna sem fram fara í Bandaríkjunum í nóvember. Cheney, sem hefur átt sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings frá 2017, hefur verið einn helsti andstæðingur Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, innan Repúblikanaflokksins. Erlent 17.8.2022 07:40
Viðbrögðin sýna tangarhald Trumps á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gæti mögulega verið fundinn sekur um brot á lögum sem hann sjálfur þyngdi refsinguna við töluvert. Það er að segja ef hann braut lög með því að flytja opinber gögn, og þar á meðal leynilegt gögn, með sér til Flórída þegar hann flutti úr Hvíta húsinu. Trump er sagður vera að leita sér að lögmönnum til að mögulega verja sig. Erlent 11.8.2022 14:30
Trump-liðar kvarta undan „vopnvæðingu“ dómsmálaráðuneytisins Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) gerðu í gær húsleit í Mar-a-Lago sveitaklúbbinum í Flórída en Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, býr þar. Fjölmiðlar vestanhafs segja útlit fyrir að atlagan, sem stóð yfir frá morgni til kvölds í gær, tengist meðhöndlun Trumps og starfsmanna hans á opinberum og leynilegum gögnum. Erlent 9.8.2022 10:29
Fyrrverandi Repúblikanar og Demókratar sameinast í nýjum flokki Fjöldi fyrrverandi ráðamanna og þingmanna úr röðum bæði Demókrata og Repúblikana hafa stofnað nýtt stjórnmálaafl í Bandaríkjunum. Flokkurinn mun bera heitið „Forward“ eða „Áfram“ og vonast stofnendur eftir því að ná til þeirra sem líkar ekki við tveggja flokka kerfi landsins. Erlent 28.7.2022 07:37
Fjarlægðu umdeilda kosningaauglýsingu Samfélagsmiðlarisinn Facebook fjarlægði umdeilda kosningaauglýsingu frambjóðanda Repúblikanaflokksins í Missouri. Í auglýsingunni er frambjóðandinn vopnaður haglabyssu og segist ætla að veiða aðra repúblikana. Erlent 21.6.2022 08:42
Gefur út skotleyfi á eigin flokkssystkini í kosningaauglýsingu Frambjóðandi í forvali Repúblikanaflokksins fyrir kosningar til öldungadeildarþings talar um að gefa út veiðileyfi á flokkssystkini sín í nýrri kosningaauglýsingu. Í henni sést frambjóðandinn vopnaður haglabyssu ráðast inn í hús í fylgd vopnaðra sérsveitarmanna. Erlent 20.6.2022 15:51
Hefndarleiðangur Trump í Georgíu misheppnaðist Frambjóðendur sem Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, studdi til að ná sér niður á sitjandi fulltrúum Repúblikanaflokksins í Georgíu töpuðu í forvali sem fór fram í gær. Trump reyndi að fella ríkisstjórann og innanríkisráðherrann þar sem þeir tóku ekki þátt tilraunum hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna við. Erlent 25.5.2022 08:46
„Rísandi stjarna“ Repúblikana tapaði í forvali Þingmaðurinn Madison Cawthorn tapaði í forvali Repúblikanaflokksins í gær og mun því ekki sitja á þingi annað kjörtímabil. Chuck Edwards, sem situr í öldungadeild ríkisþings Norður-Karólínu bar sigur úr bítum en Cawthorn hefur verið plagaður af hverju hneykslinu á fætur öðru í aðdraganda forvalsins og hafði reitt félaga sína í Repúblikanaflokknum til reiði með ummælum sínum og hegðun. Erlent 18.5.2022 10:05
Vildi sannfæra þjóðina um árangur sinn Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu stefnuræðu fyrir báðar deildar Bandaríkjaþings í nótt. Þar hét Biden því að halda aftur af innrás Rússa í Úkraínu, koma böndum á verðbólgu í Bandaríkjunum og kveða niður kórónuveiruna. Erlent 2.3.2022 08:55
Lafhræddir Demókratar vilja drífa sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, vill tilnefna nýjan hæstaréttardómara eins fljótt og auðið er og koma tilnefningu hennar fljótt í gegnum öldungadeildina. Þar á bæ hafa Repúblikanar þegar gefið í skyn að þeir vilji draga ferlið á langinn. Erlent 29.1.2022 07:01
Kallaði blaðamann Fox heimskan tíkarson Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, kallaði Peter Doocy, blaðamann Fox, heimskan tíkarson í gær. Biden virtist ætla að hvísla það en blótaði óvart í hljóðnema. Erlent 25.1.2022 09:47
Tókst ekki að breyta reglum öldungadeildarinnar og samþykkja kosningalög Tilraunir Demókrata til að koma á nýjum kosningalögum í Bandaríkjunum misheppnuðust í gær þegar tveir öldungadeildarþingmenn flokksins neituðu að taka þátt í því að breyta reglum þingdeildarinnar. Umræddar breytingar eru Demókrötum nauðsynlegar til að koma frumvarpinu í gegnum þingið vegna naums meirihluta þeirra. Erlent 20.1.2022 09:48
Kallar eftir breytingum á þingi og nýjum kosningalögum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í dag að hann væri hlynntur því að fella niður regluna um aukinn meirihluta í öldungadeildinni, svo Demókratar gætu komið nýjum kosningalögum þar í gegn. Hann sagði það nauðsynlegt til að vernda „hjarta og sál“ lýðræðisins í Bandaríkjunum. Erlent 11.1.2022 23:24
Allt útlit fyrir að meirihlutinn haldi í öldungadeildinni Allt útlit er fyrir það repúblikanar muni áfram vera í meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings. Demókrötum hefur aðeins tekið að bæta við sig einu sæti en hefðu þurft þrjú til fjögur, eftir því hver sigrar forsetakosningunum, til að ná meirihluta. Erlent 5.11.2020 09:06
„Það er engin ástæða til að vera alltaf að taka sýni“ Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur ýjað að því að hann muni halda kosningafund í Flórída á morgun, laugardag. Erlent 9.10.2020 07:13
Óttast að missa tökin á öldungadeildinni Kannanir sýna að Demókrötum hefur vaxið ásmegin og viðbrögð Donald Trump, forseta, vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar hafa verið harðlega gagnrýnd. Erlent 11.5.2020 11:29
Íhaldsmenn í minnihluta vilja flytja landamæri Oregon Þeir segjast þreyttir á því að atkvæði þeirra drukkni í atkvæðum frjálslyndra kjósenda í fjölmennum borgum ríkisins og þá sérstaklega Portland. Erlent 19.2.2020 12:11
Trump sýknaður af ákærum um embættisbrot Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur sýknað Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, af tveimur ákærum fyrir embættisbrot. Erlent 5.2.2020 15:58
Allt útlit fyrir að réttarhöldin yfir Trump hefjist eftir viku Allt útlit er fyrir að formleg réttarhöld yfir Donald Trump, forseta Bandaríkjana, þar sem ákærur á hendur honum til embættismiss verða teknar fyrir í öldungadeildinni, hefjist eftir viku. Búist er við að fulltrúadeildin sendi ákærurnar formlega til meðferðar öldungadeilarinnar á morgun. Erlent 14.1.2020 20:00
Ráðgjafi Trump sagði flokkinn reiða sig á að hindra kjósendur Einn af æðstu kosningaráðgjöfum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sagði á fundi Repúblikana að flokkurinn hefði reitt sig á að koma í veg fyrir að fólk sem þykir líklegra til að kjósa Demókrataflokkinn kjósi í baráttunni um ríki sem flakka á milli Demókrata og Repúblikana. Erlent 21.12.2019 11:43