Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024)
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 40 ›
Segir Vinstri græn hafa þröngvað Guðrúnu til lögbrots Eins og lýðum má ljóst vera gaf Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra út skipan um að brottflutningi hins ellefu ára Yazan frá Palestínu sem er með Duchenne sjúkdóminn yrði frestað. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir engan vafa á leika að þar með hafi hún framið lögbrot. Innlent 17.9.2024 11:25
Bjarni segir brottvísunina standa Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir brottvísun Yazans Tamimi standa. Ríkisstjórnin muni ekki taka ákvörðun um brottvísun, það verði að fara að lögum. Yazan er ellefu ára drengur frá Palestínu sem glímir við hrörnunarsjúkdóm. Beiðni hans og fjölskyldu um vernd hér á landi var synjað á árinu. Innlent 17.9.2024 11:22
Notuðu sönginn til að mótmæla vegna Yazan Nokkur hundruð manns eru saman komin við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavík fyrir utan skrifstofur forsætisráðuneytisins þar sem ríkisstjórnin situr á reglubundnum þriðjudagsfundi sínum. Innlent 17.9.2024 09:44
Sigríður áfram ríkislögreglustjóri Staða ríkislögreglustjóra verður ekki auglýst, samkvæmt svörum dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins en í gær voru sex mánuðir þar til skipunartími Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur rennur út. Innlent 17.9.2024 06:32
Viðurkennir að hafa ekki haft heimild til að stíga inn Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kveðst ekki hafa haft lagaheimild til þess að stíga inn í mál Yazans Tamimi, ellefu ára langveiks drengs frá Palestínu, sem til stóð að vísa úr landi í morgun. Frá því var horfið þegar Guðrún fyrirskipaði að brottvísun hans yrði frestað, að ósk Guðmundar Inga Guðbrandssonar félagsmálaráðherra. Innlent 16.9.2024 23:50
Furða sig á harkalegum aðgerðum yfirvalda Faðir langveiks drengs frá Palestínu sem var vísað af landi brott í gærkvöldi segir fjölskylduna skelfingu lostna eftir harkalegar aðgerðir lögreglu. Sonur hans hafi ásamt móður verið handtekinn á sjúkrabeði. Þá hafi hann meiðst þegar menn með lambúshettur brutust inn til hans í nótt og handtóku. Innlent 16.9.2024 19:22
Ákvörðunin um brottflutning Yazan stendur Dómsmálaráðherra segir að ákvörðun um brottvísun Yazans Tamimi og fjölskyldu hans standi, þrátt fyrir að henni hafi verið frestað að beiðni félags- og vinnumarkaðsráðherra. Innlent 16.9.2024 16:10
Ráðherrar VG fóru fram á að brottvísun Yazans yrði frestað Ráðherrar Vinstri grænna fóru fram á að mál Yazans Tamimi yrði rætt í ríkisstjórn. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra fyrirskipað í kjölfarið að brottvísun hans frá landinu yrði frestað. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 16.9.2024 11:33
Skipun um að hætta við brottflutning Yazan kom frá dómsmálaráðherra Hætt var við brottflutning Yazan Tamimi frá Íslandi í nótt. Skipunin um að hætta við kom frá dómsmálaráðherra, að sögn Marínar Þórsdóttur verkefnisstjóra hjá heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra. Innlent 16.9.2024 09:50
Bæjarstjóri vill funda með ráðherra um hávaða á Kársnesi Augnablikshávaði vegna flugumferðar frá Reykjavíkurflugvelli mælist reglulega langt yfir það sem er kveðið á um í reglugerð um hávaða um mörk vegna hávaða frá flugumferð. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi hefur óskað eftir fundi með innviðaráðherra til að ræða hávaðamengun á Kársnesi vegna aukinnar flugumferðar við Reykjavíkurflugvöll. Innlent 16.9.2024 06:45
Oddviti segist ekki geta gengið gegn ákvörðun Alþingis Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangárþings ytra, segir sveitarfélagið ekki geta gengið gegn ákvörðun Alþingis um að setja Búrfellslund í orkuvirkjanakost. Snæbjörn Guðmundsson formaður Náttúrugriða segir málið ekki svo einfalt. Ákvörðun Alþingis sé ekki endanleg. Eggert og Snæbjörn ræddu orkumál á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Innlent 15.9.2024 16:01
Hart tekist á og saka hvort annað um skattahækkanir Formaður Samfylkingarinnar sakar stjórnvöld um að hækka skatta á ungt fólk og fjölskyldur og að reka ósjálfbæra atvinnustefnu í landinu. Forsætisráðherra segir Samfylkinguna á móti ekki boða neitt annað en skattahækkanir og aukin ríkisútgjöld. Innlent 15.9.2024 12:29
Ótrúlegt ef Sjálfstæðismenn ætli að hoppa á Miðflokksvagninn Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins finnst ótrúlegt að fólk ætli að hoppa á vagn Miðflokksins sé það ekki ánægt með stefnu Sjálfstæðisflokksins eða vinnu flokksins síðasta kjörtímabilið. Innlent 15.9.2024 11:02
Staða stjórnmála, Búrfellsvirkjun og niðurskurðarstefna í opinberum rekstri Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði ræðir rannsóknir sínar á nútímasamfélagi sem hann segir grafa undan sjálfu sér með áherslum sem valda einangrun og firringu, fremur en samkennd og samstöðu. Innlent 15.9.2024 09:42
Ísland mælist meðal fremstu ríkja í netöryggismálum Ísland er komið í hóp þeirra ríkja sem þykja standa sig hvað best í netöryggismálum á heimsvísu samkvæmt nýrri alþjóðlegri úttekt. Mikilvægt er að gefa ekkert eftir þar sem ógnin fer vaxandi að sögn iðnaðarráðherra. Aukin áhersla verður lögð á netöryggi barna í aðgerðaráætlun stjórnvalda í netöryggismálum. Innlent 14.9.2024 15:19
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ber fulla ábyrgð á stöðunni! Á mbl.is birtist í gær frétt undir fyrirsögninni „Þjóðin ber skaðann af þessari framgöngu“ (mbl.is). Þar segir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að þjóðin beri skaða af framgöngu þeirra sem reyni að tefja fyrir grænni orkuöflun. Einnig segir ráðherrann að það sé ekki hugmyndin með kæruleiðum að menn séu að ná fram einhverjum pólitískum markmiðum. Skoðun 14.9.2024 12:03
Um 400 fyrirtæki séu hætt eða að hætta að nota Rapyd vegna sniðgöngu Hundruð fyrirtækja hafa síðustu mánuði hætt að nota greiðslumiðlun Rapyd vegna þrýstings frá Sniðgönguhreyfingunni fyrir Palestínu. Þá hefur innflutningur á ávöxtum og grænmeti frá Ísrael minnkað verulega á milli ára. Sniðgangan 2024 verður gengin á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri í dag. Gangan er farin til að vekja athygli á sniðgöngu fyrir Palestínu. Innlent 14.9.2024 10:01
Þingmaður Miðflokksins rak augun í undarlega grein Þingmanni Miðflokksins finnst undarlegt að gert sé ráð fyrir aukinni aðkomu stjórnvalda að rekstri borgarlínu, umfram það sem gert væri ráð fyrir í nýundirrituðu samkomu lagi ríkis og sveitarfélaga. Samgöngumálin voru rædd í tengslum við fjárlög næsta árs á Alþingi í dag. Innlent 13.9.2024 21:28
„Ég stend við þessa ákvörðun“ Dómsmálaráðherra stendur keik við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Hún segir eðlilegt að fram komi ólík sjónarmið enda eigi málið sér fá sem engin fordæmi. Ríkissaksóknari telur umræðu um málið hafa verið óvægna gagnvart embættinu. Innlent 13.9.2024 19:26
Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum í Reykjavík Utanríkisráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna funduðu í dag í Reykjavík um tvíhliða samskipti þjóðanna, stöðu átakanna í Úkraínu og á Gaza. Bandaríski ráðherrann segir stöðuna á Indo-Kyrrhafssvæðinu snerta Evrópubúa þar sem Kína og Norður Kórea styðji stríðsrekstur Rússa í Úkraínu með beinum hætti. Innlent 13.9.2024 19:22
Séreign inn á húsnæðislán hafi nýst sterkefnuðum mest Fjármálaráðherra segir að sterkefnað stóreignafólk hafi fengið mestan stuðning frá ríkinu með almennri heimild til þess að nýta séreignarsparnað inn á húsnæðislán. Ekki sé gáfulegt af ríkinu að halda áfram að styðja þann hóp. Viðskipti innlent 13.9.2024 17:46
„Við erum hundfúl yfir þessu“ Bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar var í síðustu viku falið að krefja Vegagerðina svara um stöðu framkvæmda á Dynjandiheiði, en aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði á heiðinni allri. Svarið sem barst var einfalt; fjármagn skortir og ekkert verður aðhafst í bili. Innlent 13.9.2024 17:01
Hallað hafi á embættið í moldviðri Helga Magnúsar Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir fjölmiðlaumfjöllun um mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara hafa verið mjög á einn veg og lítið hafa farið fyrir gagnrýnum spurningum til Helga Magnúsar. Þannig hafi hallað verulega á embætti ríkissaksóknara og ákæruvaldið í moldviðri, sem Helga Magnúsi hafi tekist að magna. Innlent 13.9.2024 14:33
Menntun sem nýtist í starfi Þegar ég flutt til Íslands 2008 eftir 30 ára nám og störf erlendis var hugtakið sjálfbærni nær óþekkt. Fólk hváði þegar það spurði hvaða rannsóknir og kennslu ég væri að fást við. Íslenskir nemendur voru einnig meira og minna út á klaka, en erlendir nemendur höfðu dýpri þekkingu. Nú hafa íslensku nemendurnir náð svipaðri þekkingu og þeir erlendu. En sama er ekki að segja um ráðamenn. Skoðun 13.9.2024 14:02
Áhersla á stuðning við jaðarsetta hópa í menntakerfinu Mennta- og barnamálaráðherra segir fjármagn verða sett í þjóðarleikvanga á næsta ári og 250 milljónir verði settar aukalega til afreksíþrótta. Brugðist verði við aukinni aðsókn í verknám nám fyrir jaðarsetta hópa í samfélaginu eflt. Innlent 13.9.2024 12:01
Telur Guðrúnu vilja halda hlífiskildi yfir ráðuneytinu Almar M. Möller lögmaður gagnrýnir þau sjónarmið sem fram komu í grein Róberts Spanó frá í gær að ákvörðun Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um að Helgi Magnús Gunnarsson haldi stöðu sinni sem vararíkissaksóknari stangist á við lög. Hann telur dómsmálaráðherra skilgreina málið of þröngt að gefnum forsendum og í raun megi rekja allt tal um lögleysu til ríkissaksóknara sjálfs. Innlent 13.9.2024 10:55
Gagnrýna afnám greiðslu séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán Stjórnarandstaðan telur fátt í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar stuðla að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Þá gagnrýna margir að afnema eigi heimild til að nýta séreignarsparnað til að greiða niður húsnæðislán. Innlent 12.9.2024 20:52
Telur niðurstöðu dómsmálaráðherra órökrétta Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur niðurstöðu dómsmálaráðherra um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki tímabundna lausn frá störfum órökrétta. Innlent 12.9.2024 20:19
Útboðsstopp staðið í heilt ár meðan vegirnir grotna niður Uppsagnir eru hafnar í verktakageiranum vegna verkefnaskorts í jarðvinnu. Ekkert stórt verk hefur verið boðið út hjá Vegagerðinni í heilt ár. Innlent 12.9.2024 20:10
„Krefjandi“ að semja við einkaaðila um bakaðgerðir Heilbrigðisráðuneytið segir undirbúning og samningsgerð við einkaaðila um bakaðgerðir krefjandi vegna þess að aldrei hafi verið samið um þær áður. Ætlunin er að nýta reynsluna af samingum ríkisins við einkaaðila um liðskiptaaðgerðir. Innlent 12.9.2024 19:26