Formannsslagur Bjarna og Guðlaugs Þórs
1 2 ›
Fjölbreyttari málverk í Valhöll Nú er formlega hafinn formannsslagur fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins sem fram fer um komandi helgi. Guðlaugur Þór og fylgisveinar hans ganga nú hrópandi á torgum að þeir vilji breytingar í Sjálfstæðisflokknum. Skoðun 1.11.2022 07:31
Kosið um miklu meira en bara formann Sjálfstæðisflokksins Stjórnarþingmenn telja ólíklegt að hægt verði að halda stjórnarsamstarfinu áfram verði Guðlaugur Þór kjörinn nýr formaður Sjálfstæðisflokksins næstu helgi. Stjórnmálaskýrandi segir formannsslaginn hreinlega snúast um hvort blása eigi til þingkosninga í ár. Innlent 31.10.2022 21:40
Veðmangarar telja Bjarna í betri stöðu Veðbankar eru farnir að taka við veðmálum um niðurstöðu formannskjörs á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Allavega einn þeirra spáir Bjarna Benediktssyni sigri gegn Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Innlent 31.10.2022 21:10
„Ég óttast nákvæmlega ekki neitt“ Guðlaugur Þór Þórðarson segist ekki óttast um ráðherrastól sinn tapi hann formannskjöri gegn Bjarna Benediktssyni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um helgina. Bjarni segir að spyrja þurfi að því að leikslokum og að hann trúi því að kosningabaráttan verði drengileg. Innlent 31.10.2022 19:57
Ert þú að fara á landsfund? Ef þú ert að fara á landsfund Sjálfstæðisflokksins næstu helgi þá er líklegt að þú, eins og vafalaust margir aðrir, sért ekki búin að ákveða hvort að Guðlaugur eða Bjarni fái atkvæðið þitt. Skoðun 31.10.2022 18:31
Guðlaugur segist ekki hafa hótað Bjarna Guðlaugur Þór Þórðarson orkumálaráðherra segir allsendis ósatt að hann hafi verið reiðubúinn að falla frá áformum sínum um formannsframboð gegn því að Bjarni myndi eftirláta honum að taka við sem fjármála- og efnahagsráðherra. Innlent 31.10.2022 17:19
Leynd yfir sætaskiptingu á landsfundi í Laugardalshöll Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram um helgina í Laugardalshöll. Mikil spenna er meðal meðlima flokksins enda fer formannskjör fram á sunnudeginum. Þá kemur í ljós hvort Bjarni Benediktsson fái að halda áfram að leiða flokkinn eða hvort Guðlaugur Þór Þórðarson steypi formanni til þrettán ára af stóli. Innlent 31.10.2022 15:45
Guðlaugur vildi verða fjármálaráðherra gegn því að falla frá framboði Guðlaugur Þór Þórðarson, orku- og loftlagsráðherra, var reiðubúinn að falla frá áformum sínum um að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn því að Bjarni Benediktsson, núverandi formaður flokksins, myndi eftirláta honum að taka við sem fjármála- og efnahagsráðherra. Innherji 31.10.2022 15:02
Gulli plús Kata talið ganga illa upp Framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins teflir ríkisstjórnarsamstarfinu í tvísýnu að mati stjórnarþingmanna. Þeir óttast margir að líftími ríkisstjórnarinnar verði talinn í vikum nái Guðlaugur Þór kjöri. Innlent 31.10.2022 13:36
Framboð Guðlaugs krókur á móti bragði Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, telur að hægt sé að tengja framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar við orðróm um að ráðherrastóll hans væri í hættu. Hann segir að erfitt sé að spá fyrir um úrslit kosninganna. Innlent 31.10.2022 10:42
Að minnsta kosti níu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokks styðja Bjarna Að minnsta kosti níu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins styðja Bjarna Benediktsson í formannsslagnum sem framundan er í aðdraganda landsfundar flokksins um næstu helgi. Innlent 31.10.2022 06:36
Fylgið muni ekki rjúka upp þótt skipt yrði um formann Stjórnmálafræðingur telur að mannabreytingar í forystu Sjálfstæðisflokksins myndu ekki duga til að færa fylgi flokksins nær því sem það var fyrir rúmlega áratug síðan. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur tilkynnt um framboð til formanns flokksins, gegn Bjarna Benediktssyni, formanni og fjármálaráðherra. Innlent 30.10.2022 23:00
„Plan Bjarni er alltaf að vinna“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir tímasetningu framboðs Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, orku-, umhverfis- og loftslagsráðherra, til formanns Sjálfstæðisflokksins koma sér nokkuð á óvart. Hann segist þó hvorki kvíða fyrir né kvarta undan því að fá mótframboð. Innlent 30.10.2022 19:30
„Við erum ólíkir menn“ Guðlaugur Þór Þórðarson ákvað í gærmorgun að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann tilkynnti mótherja sínum í formannsslagnum, Bjarna Benediktssyni, ákvörðun sína í morgun en gefur ekkert upp um það hvað fór þeim á milli áður en hann tilkynnti ákvörðun sína opinberlega. Innlent 30.10.2022 16:27
Guðlaugur Þór tekur slaginn við Bjarna Guðlaugur Þór Þórðarson, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins. Ljóst er að slagurinn við Bjarna Benediktsson, sitjandi formann, verður harður á landsfundi flokksins næstu helgi. Innlent 30.10.2022 13:11
Guðlaugur Þór ávarpaði Sjálfstæðismenn Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ætlar að taka slaginn gegn Bjarna Benediktssyni. Innlent 30.10.2022 12:09
„Þá er mínum tíma í stjórnmálum bara lokið“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ef hann muni tapa væntanlegum formannaslag í Sjálfstæðisflokknum sé tíma hans í íslenskum stjórnmálum lokið. Bjarni segist hafa rætt við Guðlaug Þór Þórðarson, orkumálaráðherra, um það hvort sá síðarnefndi ætli að bjóða sig fram til embættis formanns Sjálfstæðisflokksins. Innlent 30.10.2022 11:30
Guðlaugur boðar til fundar í Valhöll Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur boðað til opins fundar í Valhöll í dag. Þar er hann sagður ætla að tilkynna hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn Bjarna Benediktssyni. Innlent 30.10.2022 09:21
Tilkynnir á morgun hvort hann taki slaginn Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra mun tilkynna á morgun hvort hann bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 29.10.2022 18:56
„Það er sóknarkraftur í jafnaðarmönnum, meðan höfuðandstæðingurinn logar stafna á milli“ Nýr formaður Samfylkingarinnar ætlar að endurreisa velferðakerfið. Varaformaðurinn segir á dagskrá að sækja um aðild að Evrópusambandinu, kanna þurfi þjóðarvilja. Algjör endurnýjun er á forystu Samfylkingarinnar. Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram á Grand hótel í dag. Innlent 29.10.2022 12:13
Guðlaugur Þór segir Bjarna fyrstum allra ef hann býður sig fram Guðlaugur Þór Þórðarson segir Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins frétta það fyrstan allra ákveði hann að bjóða sig fram gegn honum á landsfundi í næstu viku. Formaðurinn hlakkar til að leggja árangur flokksins í ríkisstjórn fyrir landsfundarfulltrúa. Innlent 27.10.2022 19:21
Bjarni segir allt forystufólk bera ábyrgð á stöðu Sjálfstæðisflokksins Guðlaugur Þór Þórðarson útilokar ekki að hann bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins fyrir landsfund flokksins í næstu viku enda væri flokkurinn í alvarlegri stöðu fylgislega séð. Bjarni Benediktsson segir fylgi flokksins á ábyrgð allra frambjóðenda sem hver um sig þurfi að horfa á útkomuna í sínu kjördæmi. Innlent 27.10.2022 12:25
Guðlaugur Þór spyrji sig hvernig hafi gengið að afla fylgis Það er sameiginlegt verkefni allra sjálfstæðismanna að hífa fylgið flokksins upp aftur, ekki bara formannsins, að mati Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann ráðleggur Guðlaugi Þór Þórðarsyni að líta í eigin barm og spyrja sig hvernig honum hafi gengið að afla flokknum fylgis í borginni. Innlent 27.10.2022 11:13
Öll óvissa með ráðherrastól skapi ekki gott andrúmsloft Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir enn óákveðið hvort hann bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann ætli að greina Bjarna Benediktsson formanni fyrst frá framboði verði það lendingin. Innlent 27.10.2022 10:26
Fundaði með fjölmennum hópi úr baklandinu í Grafarvogi Fjölmennt var á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra með stuðningsmönnum sínum í Grafarvogi í gærkvöldi samkvæmt heimildum fréttastofu. Hugur var í fólki. Fundi lauk þó án þess að Guðlaugur Þór ákveddi hvort hann ætlaði fram til formanns á landsfundi Sjálfstæðisflokksins aðra helgi. Innlent 27.10.2022 09:18
Bjarni segir engin átök hafa verið á milli hans og Guðlaugs Þórs „Við höfum ekki rætt þessi mál. Það hafa ekki verið nein átök á milli okkar, bara ágætis samstarf verð ég að segja. Að því leytinu til kæmi mér á óvart ef þetta endaði með einhverjum átökum um forystuna í flokknum,“ segir Bjarni Benediktsson um mögulegt formannsframboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Innlent 27.10.2022 06:50
Kraumar undir niðri í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins Orðrómur um hugsanlegt framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi er enn ein vísbending um að Guðlaugur Þór og formaðurinn Bjarni Benediktsson gangi ekki í takt. Og að innan flokks skipist menn í sveitir. Líklega er um að ræða eitt verst geymda leyndarmál í íslenskum stjórnmálum. Innlent 26.10.2022 15:35
Kæmi Bjarna á óvart ef landsfundur sæi ástæðu til að skipta honum út Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það kæmi sér á óvart ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins sæi ástæðu til að skipta um forystu flokksins á þessum tímapunkti kjörtímabilsins. Innlent 26.10.2022 09:20
Segja Guðlaug Þór velta því fyrir sér að sækjast eftir formannsembættinu Samkvæmt áreiðanlegum heimildum veltir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, því nú fyrir sér að bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Innlent 26.10.2022 06:45