Hjörtur J. Guðmundsson
1 2 3 4 5 … 5 ›
Treystandi fyrir stjórn landsins? Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Skoðun 3.10.2024 07:30
Hljómar kunnuglega ekki satt? Mjög langur vegur er frá því að helztu lögspekingar landsins séu einróma í þeirri afstöðu að rétt sé að frumvarp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem kennt hefur verið við bókun 35 við EES-samninginn, verði að lögum þrátt fyrir fullyrðingar stjórnvalda um annað. Skoðun 1.10.2024 07:32
Kæra sig ekki um evruna Meira en fjórðungur ríkja Evrópusambandsins hefur ekki tekið upp evruna þrátt fyrir að ríkin séu öll fyrir utan eitt lagalega skuldbundin til þess. Í meirihluta tilfella vegna þess að þau hafa einfaldlega ekki viljað það. Vitanlega er áhugavert í ljósi áherzlu hérlendra Evrópusambandsinna á inngöngu í sambandið, einkum og sér í lagi til þess að geta tekið upp evruna, að ríki sem þegar eru innan þess kæri sig ekki um hana. Skoðun 26.9.2024 09:31
Fást engin svör Margítrekaðar tilraunir til þess að reyna að fá skýringar á því hvers vegna stjórnvöld ákváðu skyndilega að hætta að halda uppi vörnum gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), sem hefur krafizt þess að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gangi framar innlendri lagasetningu, hafa engan árangur borið. Skoðun 23.9.2024 08:01
Hengd á klafa hnignandi markaðar Ísland er í vaxandi mæli í þeirri stöðu að þurfa að aðlaga hagsmuni sína og aðstæður að regluverki sem er hugsað fyrir hagsmuni milljóna og tugmilljóna þjóða. Við erum í raun í verstu mögulegu stöðu í þessum efnum fyrir utan inngöngu í Evrópusambandið. Umræðan 19.9.2024 12:54
„Við höfðum öll rangt fyrir okkur“ „Ég hafði rangt fyrir mér,“ sagði Wolfgang Schäuble, fyrrverandi fjármálaráðherra Þýzkalands, í kjölfar þess að rússneskar hersveitir réðust inn í Úkraínu í lok febrúar árið 2022. Skoðun 19.9.2024 08:02
Hvaðan kemur verðbólgan? Tveir helztu drifkraftar verðbólgunnar hér á landi undanfarin misseri hafa annars vegar verið kostnaður vegna húsnæðis og hins vegar innflutt verðbólga. Aðallega frá ríkjum Evrópusambandsins enda mest flutt inn þaðan. Skoðun 16.9.2024 08:02
„Spilaborgin hrynur einn daginn“ „Horft raunsætt á málið mun þetta snúast um það að reyna að halda sjó og ströggla frá einni krísu til þeirrar næstu. Það er erfitt að spá fyrir um það hversu lengi þetta mun halda áfram með þeim hætti en það getur ekki gengið þannig endalaust,“ sagði dr. Otmar Issing, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Evrópusambandsins, í samtali við brezka dagblaðið Daily Telegraph í október 2016. Skoðun 12.9.2024 08:02
Milljarðatugir Jóns Baldvins Fyrir helgi birtist athyglisverð grein á Vísir.is eftir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, þar sem hann hélt því fram að árlegur efnahagslegur ávinningur Íslands af aðildinni að EES-samningnum hafi numið 52 milljörðum króna. Skoðun 9.9.2024 08:32
Málið sem þolir ekki ljósið Fyrir einu og hálfu ári var reynt að keyra lagafrumvarp um forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu vegna aðildarinnar að EES-samningnum gagnvart innlendri lagasetningu í gegnum Alþingi undir forystu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Vonazt var til þess að málið vekti sem minnsta athygli. Það mistókst. Til stendur nú að reyna það aftur. Skoðun 5.9.2024 08:02
Hverfist allt um lokamarkmiðið Mjög langur vegur er frá því að Evrópusambandið snúist einungis um markaðs- og gjaldmiðilsmál líkt og gjarnan mætti halda miðað við málflutning ófárra talsmanna inngöngu Íslands í sambandið. Jafnvel mætti stundum ætla að Evrópusambandið væri ekki annað en gjaldmiðill miðað við þann málflutning. Skoðun 2.9.2024 07:31
Fær prik fyrir hreinskilnina Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanir á vettvangi þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Vægi ríkja innan Evrópusambandsins fer þannig fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Skoðun 31.8.2024 09:00
Spurning sem ekki er hægt að svara? Hreyfingar Evrópusambandssinna á Íslandi hafa um langt árabil látið gera skoðanakannanir fyrir sig þar sem spurt hefur verið meðal annars um afstöðu fólks til þess hvort ganga eigi í Evrópusambandið. Síðast fyrr í sumar. Fyrir það hafa verið greiddar háar fjárhæðir. Á sama tíma er um að ræða spurningu sem þær hafa viljað meina að ekki sé hægt að svara fyrr en samningur um inngöngu í sambandið liggi fyrir. Skoðun 27.8.2024 09:33
Tala eingöngu um vextina Hvers vegna skyldu talsmenn þess að Ísland gangi í Evrópusambandið svo gott sem eingöngu tala um vaxtastigið á evrusvæðinu þegar efnahagsmál þess eru annars vegar? Jú, vegna þess að fæstar hagtölur innan svæðisins eru eitthvað til þess að hrópa húrra yfir. Skoðun 24.8.2024 09:01
Fór út fyrir umboð sitt Haustið 2012 fór fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt var hvort vilji væri fyrir því að tillögur stjórnlagaráðs yrðu „lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá“. Var það samþykkt með atkvæðum tæplega 31% kjósenda á kjörskrá en kjörsókn var einungis 48,4%. Frumvarpið var í kjölfarið lagt fram á Alþingi en náði hins vegar ekki fram að ganga áður en þingkosningar fóru fram næsta vor. Skoðun 21.8.2024 08:01
Fjármagna enn hernað Rússlands Tveimur og hálfu ári eftir að rússneski herinn réðist inn í Úkraínu flæða enn tugir milljarða evra í ríkissjóð Rússlands frá ríkjum Evrópusambandsins vegna kaupa á rússneskri orku. Einkum gasi. Þrátt fyrir að gripið hafi verið til aðgerða til þess að draga úr slíkum kaupum eru þau enn í dag umtalsverð. Þá er rússneskt gas í ófáum tilfellum flutt til ríkja sambandsins í gegnum önnur ríki sem þarlend framleiðsla. Skoðun 18.8.2024 09:00
Hættu að spyrja um spillinguna Mikill meirihluti íbúa ríkja Evrópusambandsins taldi spillingu þrífast innan stofnana þess samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem gerð var fyrir framkvæmdastjórn sambandsins árið 2013 eða 70%. Þar af 84% aðspurðra í Svíþjóð, 82% í Þýzkalandi og 80% í Austurríki. Hliðstætt hafði komið fram árin á undan. Viðbrögð Evrópusambandsins voru þau að hætta að spyrja um spillingu í stofnunum þess. Skoðun 12.8.2024 08:00
Hvar er restin af könnuninni? Munurinn á fjölda þeirra sem eru annað hvort andvígir inngöngu Íslands í Evrópusambandið eða hlynntir henni er einungis 6,8 prósentustig stuðningsmönnum inngöngu í vil ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar Maskínu fyrir Evrópuhreyfinguna sem birtar voru í byrjun júlí. Skoðun 9.8.2024 07:30
Hryllir við tilhugsuninni „Við skulum orða þetta svona. Þrátt fyrir að flestir sjómenn hafi orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með útlit samningsins hryllir þá flesta við þeirri tilhugsun að ganga aftur í Evrópusambandið og myndu ekki styðja neitt sem myndi leiða til þess,“ sagði Mike Park, framkvæmdastjóri Scottish White Fish Producers Association, við fréttavefinn Politico.eu í janúar 2021. Skoðun 6.8.2024 09:35
Milli vonar og ótta „Horft fram á veginn mun þýzkt efnahagslíf halda áfram að sveiflast á milli vonar og ótta.“ Þetta er á meðal þess sem fram kemur í greiningu hollenzka alþjóðabankans ING á stöðu mála í hagkerfi Þýzkalands sem birt var 30. júlí síðastliðinn. Þar segir enn fremur að stöðnun hafi ríkt í þýzku efnahagslífi undanfarin ár með litlum eða engum hagvexti. „Hagkerfið er raunar minna í dag en það var fyrir tveimur árum síðan.“ Skoðun 3.8.2024 09:01
Volaða þjóð? Telja má nánast á fingrum annarrar handar þá málaflokka sem einróma samþykki, stundum kallað neitunarvald, á enn við um þegar teknar eru ákvarðanir í ráðherraráði Evrópusambandsins. Skoðun 31.7.2024 09:01
Myndum greiða miklu meira Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið á einhverjum tímapunkti í framtíðinni liggur fyrir að við Íslendingar myndum alltaf greiða miklu meira til sambandsins en við fengjum til baka frá því í formi styrkja. Skoðun 29.7.2024 08:00
Færeyingar vissulega til fyrirmyndar Fyrir síðustu helgi kaus Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í grein á Vísir.is að taka Færeyjar sem dæmi um Evrópuland þar sem finna mætti meiri lífsgæði en hér á landi. Tilgangurinn var sem fyrr að reyna að tína til rök fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Skoðun 27.7.2024 10:01
Höfðu algerlega rétt fyrir sér „Ég spái því að Ísland gangi ekki í ESB í fyrirsjáanlegri framtíð,“ sagði Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, á fundi í Norræna húsinu sem fram fór 24. september 2009, tæpum tveimur mánuðum eftir að samþykkt var naumlega á Alþingi að sækja um inngöngu í sambandið. Skoðun 25.7.2024 10:48
Tíminn vinnur ekki með þeim Haustið 2022 ritaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, grein í Fréttablaðið þar sem hún hvatti Evrópusambandssinna til þess að ganga til liðs við flokkinn þar sem hann yrði einn um það að setja inngöngu í Evrópusambandið á dagskrá næstu stjórnarmyndunarviðræðna. Tilefnið var sú ákvörðun forystu Samfylkingarinnar að leggja áherzlu flokksins á inngöngu í sambandið til hliðar. Fylgi Samfylkingarinnar hefur síðan stóraukizt á meðan fylgi Viðreisnar er nokkurn veginn á sömu slóðum. Skoðun 23.7.2024 08:01
Klæðaleysi keisarans Hvar væri maður ef ekki væri fyrir menn eins og Ole Anton Bieltvedt sem veitir manni hvert tilefnið á fætur öðru til þess að stinga niður penna og fjalla um Evrópumálin. Málaflokk sem varðar mikilvæga hagsmuni okkar enda snýst hann fyrst og fremst um það hvort við förum áfram með valdið yfir okkar eigin málum eða framseljum það til Evrópusambandsins þar sem vægi okkar færi einkum eftir íbúafjölda landsins. Skoðun 18.7.2024 10:31
Hvernig og hvenær en ekki hvort Venjulega þykir það góður siður að lesa greinar sem maður hyggst svara áður en maður svarar þeim. Hins vegar má ljóst vera að sumir hafa það ekki að leiðarljósi. Til að mynda minn góði vinur Ole Anton Bieltvedt. Ég fjallaði þannig um það í grein á Vísir.is í gær að reglur Evrópusambandsins væru óumsemjanlegar þegar ný ríki gengju þar inn. Þar vitnaði ég beint til orða sambandsins sjálfs, nánar tiltekið bæklings sem það hefur gefið út til þess að útskýra inngönguferlið. Ole hefði ljóslega afar gott af því að kynna sér efni hans: Skoðun 15.7.2024 07:30
Reglurnar eru óumsemjanlegar Til þess að útskýra fyrir almenningi ferlið sem sem fer í gang þegar ríki sækja um inngöngu í Evrópusambandið hefur framkvæmdastjórn sambandsins gefið út sérstakan bækling sem ber heitið „Understanding enlargement“. Þar er meðal annars útskýrt með ágætlega skilmerkilegum hætti hvers eðlis þær viðræður eru sem fram fara á milli Evrópusambandsins og umsóknarríkja í ferlinu. Óhætt er að segja að sú lýsing rími ekki beinlínis vel við fullyrðingar sumra um að hægt sé nánast að semja um hvað sem er við sambandið. Skoðun 14.7.2024 11:10
Þegar rökin skortir Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði eðli málsins samkvæmt ekki samið um það hvert vægi landsins yrði innan þess. Þar er enda um að ræða fyrirkomulag sem nær til allra ríkja sambandsins og tekur fyrst og fremst mið af íbúafjölda þeirra. Skoðun 10.7.2024 08:00
„Þið vitið hvað þið væruð að fara út í“ Fyrir fjórum árum síðan samþykktu ríki Evrópusambandsins að komið yrði á viðamiklu styrktarkerfi vegna kórónuveirufaraldursins. Danmörk, Austurríki, Holland og Svíþjóð höfðu barizt gegn kerfinu en drógu síðan í land og beittu sér einkum gegn því með stuðningi Þýzkalands og síðar Finnlands að það byggði á sameiginlegri skuldaábyrgð ríkjanna. Skoðun 8.7.2024 12:31