Sveitarstjórnarkosningar 2022
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 44 ›
Dólgur í mynd sem fæstir tóku eftir Vakin var athygli á því í Íslandi í dag í gær að ekki væri ánægjulegt fyrir alla að fylgjast með ölvuðum frambjóðendum eða flokksmönnum ólíkra stjórnmálaflokka á kosningavökum í kringum kosningar. Lífið 19.5.2022 08:31
Hefja formlegar viðræður á Akureyri Fulltrúar Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar og Miðflokksins á Akureyri hafa ákveðið að ganga til formlegra viðræðna um myndun bæjarstjórnar. Innlent 18.5.2022 22:54
Oftast strikað yfir nafn Hildar Af þeim ellefu flokkum sem voru í framboði í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjavík á laugardag var oftast strikað yfir nöfn frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins eða þeir færðir neðar á lista en nemur röðunartölu. Alls var strikað yfir nöfn frambjóðenda á lista Sjálfstæðisflokksins eða þeir færðir niður 1.004 sinnum. Þar á eftir kom Samfylkingin, með 422 útstrikanir eða færslur. Innlent 18.5.2022 18:27
Annar meirihluti ef Framsókn gengur inn í samstarfið Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, segir að ef Framsóknarflokkurinn fer í samstarf við þrjá fráfarandi meirihlutaflokkana í borginni þá verði það annar meirihluti en sá sem er að líða undir lok. Ekki sé ólíklegt að Viðreisn og Framsókn vinni saman á nýju kjörtímabili. Innlent 18.5.2022 18:22
Lokaniðurstöður úr Kjósarhreppi Kjörsókn í Kjósarhreppi í sveitarstjórnarkosningunum var 86 prósent. Af þeim 222 sem voru á kjörskrá greiddu 191 atkvæði. Innlent 18.5.2022 17:51
Lokaniðurstöður úr Árneshreppi Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í Árneshreppi var 82,9 prósent. Úlfur Eyjólfsson frá Krossnesi er fyrsti aðalmaður í sveitarstjórn. Innlent 18.5.2022 17:44
Viðræður Kex-framboðs og Sjálfstæðisflokksins ganga vel Viðræður Kex-framboðs og Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu Hornafirði ganga vel að sögn oddvita Kex-framboðs. Innlent 18.5.2022 14:48
Ísleifur í Kálfholti hlaut flest atkvæði í Ásahreppi Ísleifur Jónasson í Kálfholti hlaut flest atkvæði í óbundnum kosningum til hreppsnefndar í Ásahreppi á laugardaginn. Innlent 18.5.2022 12:34
Telur Viðreisn fremur en Framsókn vera í lykilstöðu í borginni Það er Viðreisn, fremur en Framsóknarflokkurinn, sem er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, að mati Baldurs Þórhallssonar, prófessors í stjórnmálafræði. Innlent 18.5.2022 12:25
Flestir íbúar hreppsins vilja sameinast „öllu Snæfellsnesi“ Herdís Þórðardóttir hlaut flest atkvæði í óbundnum kosningum í sveitarfélaginu Eyja- og Miklaholtahreppi á sunnan- og innanverðu Snæfellsnesi á laugardaginn. Samhliða kosningum til hreppsnefndar fór fram skoðanakönnun meðal íbúa um hug þeirra til sameiningar sveitarfélaga. Innlent 18.5.2022 11:24
Fulltrúar B, D, S og M funda um meirihluta á Akureyri í kvöld Hlynur Jóhannsson, oddviti Miðflokksins á Akureyri, virðist nokkuð bjartsýnn á viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar með Framsóknarflokki, Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni. Stefnt er að því að fulltrúar flokkanna hittist í kvöld til að ræða málin. Innlent 18.5.2022 10:58
Flestir vildu Magnús í hreppsnefnd Skagabyggðar Magnús Björnsson bóndi fékk flest atkvæði til setu í óbundnum kosningum til hreppsnefndar í Skagabyggð á laugardaginn. Innlent 18.5.2022 10:55
Finnur fékk flest atkvæði í Kaldrananeshreppi Finnur Ólafsson fékk flest atkvæði í óbundnum kosningum sem fram fóru í Kaldrananeshreppi í á laugardaginn. Innlent 18.5.2022 10:26
Sýnum samstöðu fyrir bæinn okkar! Þá eru kosningar afstaðnar, við Píratar og óháðir þökkum þeim sem studdu okkur kærlega fyrir stuðninginn og að mæta á kjörstað. Skoðun 18.5.2022 08:30
Meirihlutaviðræðum á Akureyri slitið Meirihlutaviðræðum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og L-listans, um myndun bæjarstjórnarmeirihluta er lokið. Þetta staðfestir Halla Björk Reynisdóttir, bæjarfulltrúi L-listans, í samtali við fréttastofu. Innlent 17.5.2022 21:10
„Bæjarstjórastóllinn er vissulega þáttur af þessu samkomulagi“ Á morgun kemur líklega í ljós hvort formlegar meirihlutaviðræður geti hafist milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi. Tilkall Sjálfstæðismanna til bæjarstjórastólsins geti haft áhrif á viðræður. Innlent 17.5.2022 20:01
Sigurður Ingi segir bæjarfulltrúum flokksins ekki fyrir verkum Formaður Framsóknarflokksins segir sveitarstjórnarfulltrúa flokksins best til þess fallna að ákveða með hvaða öðrum flokkum þeir vilji starfa á komandi kjörtímabili og hvort krefjast eigi tiltekinna embætta. Oddviti flokksins í borginni fundaði einslega með hverjum og einum oddvita annarra flokka í dag. Innlent 17.5.2022 19:20
Dóra bjartsýn á framhaldið nú þegar allir ræða við alla Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, segist hafa rætt við Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins í dag. Hún segir samskipti flokkanna í Reykjavík ekki komin á það stig að hægt sé að tala um formlegar viðræður. Innlent 17.5.2022 18:54
„Af hverju ekki Dóra?“ Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir ekki skrýtið að fylgi Vinstri grænna hafi hrapað í undangengnum sveitarstjórnarkosningum. Róttækni flokksins hafi vikið og aðrir flokkar tekið við. Flokkurinn fór úr 4,6% fylgi í Reykjavík 2018 í 4,0% fylgi nú. Innlent 17.5.2022 18:06
Sex atkvæða munur í Grímsnes- og Grafningshreppi Hársbreidd munaði á atkvæðafjölda E-listans og G-listans í Grímsnes- og Grafningshreppi í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag en E-listinn bar naumlega sigur úr bítum með sex atkvæða mun. Innlent 17.5.2022 15:30
L-listinn með þrjá af fimm fulltrúum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Samvinnulistinn, eða L-listinn, var sigursæll í sveitarstjórnarkosningum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi á laugardag. Listinn fékk þrjá menn inn í sveitarstjórn af fimm fulltrúum sem þar sitja. Innlent 17.5.2022 15:22
Sveitarstjórinn fékk flest atkvæði í Súðavíkurhreppi Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, fékk flest atkvæði í óhlutbundnum kosningum í Súðavíkurhreppi síðastliðinn laugardag. Hlutkesti réði því hverjir tóku fjórða og fimmta sætið í sveitarstjórn. Innlent 17.5.2022 14:39
Einn listi bauð fram í Tjörneshreppi Einn listi bauð fram til sveitarstjórnar í Tjörneshreppi og var hann því sjálfkjörinn svo ekki þurfti að boða til sveitarstjórnarkosningar í hreppnum á laugardag. Innlent 17.5.2022 14:25
Skagastrandarlistinn sjálfkjörinn og engar kosningar Íbúar í sveitarfélaginu Skagaströnd gengu ekki til kosninga um helgina þar sem aðeins einn framboðslisti barst. Hann var því sjálfkjörinn í apríl. Innlent 17.5.2022 13:57
Munaði þrettán atkvæðum á listum í Svalbarðsstrandarhreppi Þrettán atkvæðum munaði á listunum tveimur sem buðu fram í Svalbarðsstrandarhreppi í Eyjafirði í kosningunum á laugardag. Svo fór að A-listinn fékk 128 atkvæði og þrjá menn kjörna, en Ö-listinn 115 atkvæði og tvo menn kjörna. Innlent 17.5.2022 13:49
R-listinn er málið Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalista í Reykjavík, sagðist í viðtölum í gær óska sér að Samfylking, Framsókn, Sósíalistar og VG mynduðu meirihluta í borginni. Þetta er mynstur sem vísar til Reykjavíkurlistans sem náði völdum af Sjálfstæðisflokknum 1994 og stýrði borginni í þrjú kjörtímabil, til 2006. Skoðun 17.5.2022 13:30
Einar fundar einslega með öllum oddvitunum Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík ætlar að funda einslega með oddvitum allra flokka í borgarstjórn í dag. Það var sameiginleg niðurstaða á fundi oddvita Vinstri grænna í borginni með félögum sínum og þingmönnum flokksins í Reykjavík að sækjast ekki eftir því að taka þátt í myndun nýs meirihluta í borginni. Innlent 17.5.2022 13:17
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hefja formlegar viðræður í Hafnarfirði Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa hafið formlegar meirihlutaviðræður í Hafnarfirði. Flokkarnir ná meirihluta í bæjarstjórn með einum manni. Innlent 17.5.2022 13:06
Hlutkesti skilaði Önnu Jónu í sveitarstjórn í Fljótsdalshreppi Jóhann Frímann Þórhallsson hlaut flest atkvæði í sveitarstjórn í óbundinni kosningu til sveitarstjórnar í Fljótsdalshreppi á laugardag. Grípa þurfti til hlutkestis til að ákvarða hver myndi skipa fimmta sætið í sveitarstjórn. Innlent 17.5.2022 11:55
Einar Freyr verður sveitarstjóri Mýrdalshrepps eftir sigur B-lista B-listi Framsóknar og óháðra tryggði sér þrjá fulltrúa í sveitarstjórn Mýrdalshrepps í kosningunum á laugardag og hélt þar með meirihluta sínum. A-listi Allra náði inn tveimur mönnum. Innlent 17.5.2022 11:25