Fasteignamarkaður
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 29 ›
Arion banki fyrstur til að hækka vexti Arion banki er fyrsti bankinn til að hækka vexti í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að hækka stýrivexti um heilt prósentustig. Hækkunin nær einungis til einnar tegundar lána en breytingar á öðrum vöxtum verða tilkynntar á næstu dögum. Viðskipti innlent 23.3.2023 17:49
„Er ekki kominn tími á að ríkisstjórnin skili lyklunum að Stjórnarráðinu?“ Tólfta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð hefur vakið hörð viðbrögð víða í samfélaginu en þingmenn vöktu margir hverjir athygli á aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina kjarklausa og verkstola og þingflokksformaður Viðreisnar segir þau ekki geta dvalið lengur í Hvergilandi. Innlent 22.3.2023 16:59
„Getum ekki beðið eftir neinum öðrum“ Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir augljóst að peningastefnunefnd Seðlabankans hafi ákveðið að stíga stórt skref til þess að ná tökum á verðbólgunni með því að hækka stýrivexti um eitt prósentustig. Hann segir hjálp við það verkefni úr öðrum áttum vel þegna en Seðlabankinn geti ekki beðið eftir að aðrir grípi til aðgerða. Viðskipti innlent 22.3.2023 10:42
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður hækkunina Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um eitt prósentustig. Viðskipti innlent 22.3.2023 09:01
Íbúðaverð hækkaði eftir þrjá mánuði af lækkunum Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði í febrúar um 0,3 prósent, en síðastliðna þrjá mánuði hafði vísitalan lækkað um 0,9 prósent. Þar skiptir mestu verðhækkun á fjölbýlishúsnæði. Innlent 21.3.2023 18:49
Seðlabankinn vill meiri áherslu á atvinnuhúsnæði Lítið framboð og hátt verð einkenna markaðinn með atvinnuhúsnæði samkvæmt greiningu Fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Að mati nefndarinnar yrði jákvætt ef lækkandi íbúðaverð skapaði aukinn hvata til uppbyggingar atvinnuhúsnæðis. Innherji 16.3.2023 13:06
Spá því að verðbólga hjaðni á milli mánaða Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans spá því að ársverðbólga hjaðni lítillega þegar næstu verðbólgutölur verða gefnar út. Sérfræðingar beggja deilda sjá fyrir sér að verðbólga lækki hægt næstu mánuði. Viðskipti innlent 16.3.2023 12:39
Margir hafi efni á að kaupa dýrar og vandaðar íbúðir Löggiltur fasteignasali segir að markaðurinn fyrir lúxus íbúðir sé tiltölulega nýr af nálinni hér á landi. Ofsalega margir hafi efni á því að kaupa dýrar og vandaðar íbúðir. Viðskipti innlent 15.3.2023 14:18
Bubbi byggir, en aldrei nóg Undirritaður er einn þeirra sem vinna í fasteignageiranum. Að sjálfsögðu eru alltaf uppi sterkar væntingar um jafnvægi á markaði og að það sé samhengi milli framboðs og eftirspurnar þannig að allir sem kjósa eigi kost á því að eignast þak yfir höfuðið. Skoðun 15.3.2023 12:30
Seðlabankinn hækkar eiginfjárkröfu á bankanna vegna aukinnar áhættu Þrátt fyrir að fjármálakerfið hér á landi „standi traustum fótum“ þá hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að setja hærri eiginfjárkröfu á bankanna til að auka enn frekar viðnámsþrótt þeirra vegna innlendrar þenslu og aukinnar áhættu á erlendum mörkuðum. Þá hafa fjármálaskilyrði heimila farið versnandi og útlit er fyrir að verðbólga verði „þrálát og greiðslubyrði lána þyngist.“ Innherji 15.3.2023 09:03
Dýrustu fasteignir sem seldar voru á Íslandi árið 2022 Ein dýrasta fasteign sem seldist á síðasta ári fór á hvorki meira né minna en 620 milljónir. Eignina er að finna í myndbandi sem fasteignasalinn Páll Pálsson tók saman þar sem farið er yfir níu af dýrustu eignum sem seldust árið 2022. Lífið 10.3.2023 11:34
Varaseðlabankastjóri: Villandi samanburður á getu til fasteignakaupa Taka þarf tillit til launahækkana og skattabreytinga þegar borin er saman greiðslugeta heimila til fasteignakaupa á nokkra ára tímabili. Staðan er ekki jafn slæm og stundum birtist í samanburði í fjölmiðlum. Í yfir 70 prósentum tilvika hafa tekjur hækkað meira en greiðslubyrði lána. Rétt er að bera saman 250 þúsund krónur árið 2020 við 450 þúsund krónur í dag. Innherji 9.3.2023 12:34
Heildin hafi það býsna gott Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir að gögn Seðlabankans sýni að meirihluti lánþega á fasteignamarkaði hafi það býsna gott, þrátt fyrir núverandi efnahagsárferði. Áhyggjur stjórnmálamanna ættu að snúa að þeim sem ekki hafa keypt sér húsnæði og eru á leigumarkaði. Viðskipti innlent 9.3.2023 11:42
Fasteignamarkaðurinn nálgast frostmark Á sama tíma og lítið selst vex fjöldi þeirra fasteigna sem er til sölu ört. Núverandi fasteignaverð og vaxtastig hafa því leitt til pattstöðu á fasteignamarkaðnum. Það sem hefur komið í veg fyrir algjört frost á fasteignamarkaðnum undanfarna mánuði er möguleiki kaupenda til að skýla sér fyrir hækkandi greiðslubyrði með því að taka löng verðtryggð lán. Umræðan 28.2.2023 11:00
Staðan á fasteignamarkaði: Kaupsamningar geti varla verið færri Formaður Félags fasteignasala segir gríðarlega fækkun í kaupsamningsgerð á fasteignamarkaði. Hann segir fyrstu kaupendur virðast halda að sér höndum eftir aðgerðir seðlabankastjóra. Von sé á frekari lækkunum á húsnæðisverði. Viðskipti innlent 23.2.2023 23:10
Klúður! Klúður í Hafnarfirði. Enn og aftur. Það var vitlaust lagt á í Hafnarfirði. Það þurfti að laga. Draga þurfti úr hækkun fasteignaskatts afturvirkt. Og var gert í morgun, 23.febrúar í bæjarráði. Skoðun 23.2.2023 15:01
Hlutfall íbúða sem seljast yfir ásettu verði fer lækkandi Hlutfall íbúða sem sem selst yfir ásettu verði fer lækkandi. Á höfuðborgarsvæðinu seldust 12,7 prósent íbúða í janúar yfir ásettu verði samanborið við 16,9 prósent í desember. Hlutfallið er því nú á svipuðu róli og það hefur verið á síðustu árum þegar ró hefur verið á fasteignamarkaðinum. Viðskipti innlent 23.2.2023 06:52
Í varnarham á opnum fundi Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var í varnarham í morgun á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um áhrif verðbólgu hér á landi, þar sem þingmenn spurðu hann spjörunum úr um aðgerðir Seðlabankans síðustu misseri. Viðskipti innlent 21.2.2023 11:39
Ólafur og Ragnheiður selja sjarmerandi einbýlishús Ólafur Stephensen, framkvæmdarstjóri Félags atvinnurekenda, og eiginkona hans, Ragnheiður Agnarsdóttir, hafa sett hús sitt á sölu. Lífið 16.2.2023 16:09
Mismunandi áhyggjur en allir sammála um þyngri róður Verðbólgan og vaxtahækkanirnar að undanförnu hafa ekki farið framhjá almenningi. Nokkrir viðmælendur fréttastofu lýsa yfir miklum áhyggjum af stöðu unga fólksins. Neytendur 8.2.2023 23:54
Fasteignaverð hérlendis almennt hærra en í sambærilegum borgum Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu var sjö prósentum yfir miðgildi fasteignaverðs á Norðurlöndum miðað við gengi krónu við áramót. Horft var til borga með um 100 til um 500 þúsund íbúa. Þegar leiðrétt er fyrir fjármagnskostnaði og ráðstöfunartekjum sker höfuðborgarsvæðið á Íslandi sig úr og er „langhæst.“ Innherji 8.2.2023 16:00
Seðlabankinn hafi dregið stutta stráið Seðlabankastjóri segir Seðlabankinn hafi dregið það stutta strá að þurfa að bregðast við verðbólgu hér á landi, sem skýri enn eina stýrivaxtahækkun bankans í morgun. Stjórnendur bankans gagnrýndu hið opinbera og aðila vinnumarkaðarins nokkuð fyrir ákvarðanir síðustu missera og var talað um sjálfsmark í því samhengi. Var því velt upp hvort að þessir aðilar væru staddir í öðrum veruleika en Seðlabankinn. Viðskipti innlent 8.2.2023 11:29
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður enn eina stýrivaxtahækkunina Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,5 prósentustig. Viðskipti innlent 8.2.2023 09:00
Fasteignaverð „hátt á alla mælikvarða“ og spáir tólf prósenta raunlækkun Vandinn á fasteignamarkaði er ekki kominn til vegna aðgerða Seðlabankans heldur eru orsökin fasteignaverðið sjálft sem er „hátt á alla mælikvarða“. Þegar tekið er tillit til ráðstöfunartekna og fjármagnskostnaðar þá stendur fasteignaverðið á höfuðborgarsvæðinu „eins og nagli upp úr spýtu“ í samanburði við hin Norðurlöndin, samkvæmt nýrri greiningu á fasteignamarkaðinum. Spáð er um tólf prósenta raunlækkun á fasteignaverði fram til ársloka 2024 en sú lækkun gæti orðið enn meiri ef verðbólga verður þrálát og vextir lækki seinna en nú sé gert ráð fyrir. Innherji 6.2.2023 12:01
Spá elleftu hækkuninni í röð Hagfræðingar Landsbankans spá því að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti um 0,5 prósentur í næstu viku. Gangi þessi spá eftir verður það ellefta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð. Viðskipti innlent 2.2.2023 10:31
Stjórnvöld þurfi að sýna að þau standi með almenningi Verkefnastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands segir að hið opinbera sé að kynda undir verðbólguna með ýmsum nýlegum hækkunum á opinberum gjöldum. Stjórnvöld þurfi að fara að sýna að þau standi með almenningi. Neytendur 31.1.2023 10:33
„Ég held að það muni algjörlega frysta markaðinn“ Vaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa skilað árangri að sögn fasteignasala sem segir húsnæðisverð ekki fara hækkandi. Frekari vaxtahækkanir muni þó frysta markaðinn. Viðskipti innlent 28.1.2023 21:21
Húsnæðismarkaður kólni þar til stýrivextir lækki á ný Húsnæðismarkaðurinn virðist vera að kólna nokkuð hratt en í nýrri skýrslu húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að íbúðaverð lækkaði um 0,7% í desember frá fyrri mánuði. Hægfræðingur stofnunarinnar gerir ráð fyrir að markaðurinn haldi áfram að kólna þar til stýrivextir lækki á ný. Viðskipti innlent 26.1.2023 07:01
Verðtryggð lán 86 prósent af hreinum nýjum lánum hjá bönkunum Þrátt fyrir útlit sé fyrir að fasteignamarkaðurinn sé að kólna hratt þá er enn tiltölulega hátt hlutfall íbúða að seljast á yfirverði. Þannig seldust 17,4 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu á yfirverði í desember, samanborið við 19,3 prósent í nóvember. Viðskipti innlent 25.1.2023 06:38
Hafa samþykkt 59 prósent umsókna um hlutdeildarlán Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur samþykkt 59 prósent af þeim umsóknum sem borist hafa um hlutdeildarlán frá því að opnað var fyrir umsóknir í nóvember 2020. Viðskipti innlent 18.1.2023 13:42