Vegagerð
1 2 3 4 5 6 7 … 15 ›
Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Íbúar í Vogahverfi hafa ítrekað gert athugasemdir við hættuleg gatnamót við Sæbraut þar sem banaslys varð seint í gærkvöldi. Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sem sækja skóla og frístundir yfir götuna og skora á borgarstjórn að kynna sér aðstæður. Innlent 29.9.2024 19:21
„Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Stofnaður hefur verið starfshópur til að bregðast við fjölda alvarlegra slysa hjá erlendum ferðamönnum. Ferðamálastjóri segir íslenska vegakerfið sennilega hættulegasta ferðamannastað landsins. Finna þurfi betri leiðir til að koma upplýsingum um hætturnar sem leynast á landinu til ferðamanna. Innlent 27.9.2024 12:32
Segist hafa væntingar um meira fé til samgöngumála Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segir nýja samgönguáætlun verða lagða fyrir Alþingi í næsta mánuði og segist hafa væntingar til þess að þingmenn auki framlög til samgönguinnviða við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól. Innlent 25.9.2024 21:11
Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð Smíði nýrrar Ölfusárbrúar er í uppnámi vegna skilyrðis um að gjaldtaka fyrir akstur yfir brúna standi undir kostnaði. Sérfræðingar ríkisábyrgðarsjóðs efast um að dæmið gangi upp. Fjármálaráðherra og innviðaráðherra leita leiða til að koma verkefninu í gang. Innlent 24.9.2024 21:42
„Við erum hundfúl yfir þessu“ Bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar var í síðustu viku falið að krefja Vegagerðina svara um stöðu framkvæmda á Dynjandiheiði, en aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði á heiðinni allri. Svarið sem barst var einfalt; fjármagn skortir og ekkert verður aðhafst í bili. Innlent 13.9.2024 17:01
Útboðsstopp staðið í heilt ár meðan vegirnir grotna niður Uppsagnir eru hafnar í verktakageiranum vegna verkefnaskorts í jarðvinnu. Ekkert stórt verk hefur verið boðið út hjá Vegagerðinni í heilt ár. Innlent 12.9.2024 20:10
Klæðing fauk af veginum í hvassviðri Klæðing hefur fokið af kafla vegarins um Mývatns- og Möðrudalsöræfi. Vindhviður náðu allt að 37 metrum á sekúndu í gær og segir upplýsinga fulltrúi Vegagerðarinnar fólk verða að aka varlega um svæðið. Gert verður við veginn eftir helgi. Innlent 7.9.2024 16:08
Jarðgöng í gegnum Reynisfjall á dagskrá - Tökum höndum saman! Nú liggur fyrir álit Skipulagsstofnunnar um umhverfismat vegna uppbyggingar hringvegar um Mýrdal. Þar leggur stofnunin til að áfram verði notast við sömu veglínu og nú er. Áður hafði Vegagerðin lagt til að veglínan yrði færð upp fyrir þéttbýlið í Vík, þessir tveir kostir tala engan veginn saman við Aðalskipulag Mýrdalshrepps. Árið 2013 var samþykkt Aðalskipulag þar sem gert er ráð fyrir nýjum láglendisvegi um Mýrdal og jarðgöngum í gegnum Reynisfjall. Vegagerðin og Skipulagsstofnun hafa beint allri athygli frá þeirri leið sem er á Aðalskipulagi. Skoðun 4.9.2024 23:02
Siglufjarðarvegur færist um metra á ári Siglufjarðarvegur færist að meðaltali um einn metra á ári í átt til sjávar. Mikil tilfærsla hefur orðið á veginum síðustu daga vegna mikillar úrkomu síðustu daga. Í gær og fyrradag mældist tilfærslan sjö sentímetra þar sem hún er sem mest. Innlent 28.8.2024 06:20
Niðurstöðu um smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá vænst á næstu dögum Niðurstöðu um smíði nýrrar Ölfusárbrúar er vænst á næstu dögum, að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra. Standist það gætu framkvæmdir hafist í haust og ný brú verið tilbúin eftir rúm þrjú ár. Innlent 27.8.2024 20:40
Helsta nýframkvæmdin 2024 er endurheimt malarvega – telst það ekki innviðaskuld? Eins og kunnugt er var blásið til mikilla hátíðarhalda þann 21. ágúst sl. þar sem forystumenn ríkisstjórnar og forráðafólk sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kynntu enn eina uppfærsluna á samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið. Skoðun 26.8.2024 11:03
Geirsgata opnuð í báðar áttir á morgun Opnað verður fyrir umferð um Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur í báðar áttir á nýjan leik á morgun. Lokað hefur verið fyrir akstur í aðra átt í einu síðan á fimmtudag í síðustu viku. Innlent 20.8.2024 16:08
Hellisheiði lokuð að hluta á fimmtudag til föstudags Hellisheiði verður lokuð til austurs við Þrengslavegamót frá því klukkan níu um morgun á fimmtudag til klukkan sjö föstudagsmorgun vegna malbikunarframkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Innlent 20.8.2024 14:57
Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Eftir úrhellisrigningu í nótt hafa fallið aurskriður á nokkrum stöðum á veginum norður í Árneshrepp. Vegagerðin vinnur að viðgerð á veginum í Veiðileysi þar sem hann grófst í sundur. Innlent 2.8.2024 14:05
Refasveitarvegur Vegagerðin fær miklar þakkir fyrir að leggja sléttan, breiðan og góðan veg um Refasveitina miðja frá þjóðvegi 1 að tveimur brúm yfir Laxá á Refasveit, nýja brú út á Skagaströnd en hina á veginum upp í Norðurárdal og þaðan yfir Biskupsleiti austur í Skagafjörð. Skoðun 1.8.2024 15:00
Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, hafa boðað til opins fundar um vegakerfið og öryggi í húsnæði Colas í Hafnarfirðinum klukkan 19 í kvöld. Á fundinum verður rætt um umferðaröryggi og lagningu vega, en sagt er að ástand vega sé mikið áhyggjuefni. Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferðarslysum var 237 á síðasta ári. Innlent 31.7.2024 11:13
Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Vegagerðin segir auglýsingaskilti vera til þess gerð að draga athygli ökumanna frá akstrinum. Bjartir skjáir sem skipta á milli auglýsinga ótt og títt við gatnamót þar sem mikið er um að vera eru sérstaklega varhugaverð. Innlent 30.7.2024 19:53
Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Starfsmenn Vegagerðarinnar vinna nú hörðum höndum að viðgerð hringvegarins austan Skálmár, sem varð fyrir skemmdum vegna jökulhlaups í Mýrdalsjökli um helgina. Vegurinn eru verulega laskaður. Innlent 29.7.2024 11:47
Frestun á afgreiðslu Samgönguáætlunar er fagnaðarefni Ástand vega í Dalabyggð er bágborið í öllum samanburði við aðra landshluta og er þar efstur á blaði þessa dagana þjóðvegur 60, Vestfjarðarvegur í gegnum Dali. Nú er komin 22. júlí og ekki er enn farið að leggja slitlag á þá vegbúta sem slitlag var heflað ofan af í vor og þar með var „endurheimtur“ malarvegur á þeim köflum þjóðvegarins sem um ræðir. Skoðun 22.7.2024 15:31
„Ég hef ekki aðgang að vatni neins staðar annars staðar“ Eigandi sumarbústaðar í Vestur-Skaftafellssýslu kennir umdeildum garði um laka grunnvatnsstöðu í bústað sínum. Um er að ræða sama garð og hefur valdið því að gjöfult fiskveiðisvæði er upp urið. Innlent 21.7.2024 20:00
„Alvarlega vanfjármögnuð“ í viðhaldinu Forstjóri Vegagerðarinnar segir stofnunina alvarlega vanfjármagnaða þegar það kemur að viðhaldi vega. Ósamþykkt samgönguáætlun setur sömuleiðis strik í reikninginn. Innlent 21.7.2024 15:07
Hefja viðgerðir á næstu dögum þrátt fyrir óvissuástand Grindavíkurnefnd hyggst ráðast sem allra fyrst í framkvæmdir og viðgerðir í Grindavík svo að hægt verði að opna bæinn að fullu á nýjan leik þrátt fyrir óvissuástand á svæðinu. Innlent 16.7.2024 12:18
„Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Hópur bifhjólamanna safnaðist saman á Korputorgi til að mótmæla slæmum skilyrðum fyrir akstur þeirra á vegum landsins. Hann krefst þess jafnframt að einhver axli ábyrgð á mistökum við vegagerð sem leiddu til banaslyss tveggja bifhjólamanna á Kjalarnesi árið 2020. Innlent 15.7.2024 22:01
„Hættan fyrir vinnandi fólk er raunveruleg“ Hraðakstur á vinnusvæði við breikkun Reykjanesbrautar skapar mikla hættu fyrir vinnandi fólk. Um helmingur ökumanna virða ekki hraðatakmarkanir. Innlent 15.7.2024 16:42
Segir fáránlegt að enginn axli ábyrgð á banaslysinu Hópur mótorhjólamanna hefur efnt til mótmæla næstkomandi mánudag til að mótmæla því að enginn ætli að bera ábyrgð á mistökum við vegagerð, sem leiddu til banaslyss tveggja mótorhjólamanna á Kjalarnesi fyrir fjórum árum. Hópurinn ætlar að hittast á Korputorgi klukkan 19, aka saman upp á Kjalarnes, og stöðva þar hjólin á báðum akreinum í stutta stund í mótmælaskyni. Skipuleggjandi segir fáránlegt að enginn taki ábyrgð. Innlent 13.7.2024 16:48
Sjá fyrir endann á tvöföldun Reykjanesbrautar að flugstöð Hringtorg víkja fyrir mislægum gatnamótum á Reykjanesbrautinni til að stuðla að öryggi íbúa og vegfarenda. Með fyrirhuguðum framkvæmdum verður brautin tvöfölduð frá höfuðborgarsvæðinu og alla leið að Keflavíkurflugvelli. Innlent 11.7.2024 21:00
Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Malbikstöðin hefur ráðið Bjartmar Stein Guðjónsson sem aðstoðarframkvæmdastjóra fyrirtækisins. Bjartmar er lögfræðingur að mennt og kemur yfir til Malbikstöðvarinnar frá Samtökum iðnaðarins, þar sem hann starfaði sem viðskiptastjóri á mannvirkjasviði. Viðskipti innlent 11.7.2024 13:35
Lokað frá Heklu að Nóatúni í hálfan mánuð Laugavegi verður lokað í báðar áttir milli gatnamóta Nóatúns og Laugavegs og Laugavegs 172, þar sem bílaumboðið Hekla er til húsa. Veginum verður lokað frá og með 15. júlí út 29. júlí. Innlent 8.7.2024 14:28
„Klæðingin er engin skítaredding“ Forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar segir klæðingu á vegum ekki skítareddingu. Vegakerfið á Íslandi væri ekki að meirihluta á bundnu slitlagi ef ekki væri fyrir hana. Það sem sé hamlandi sé að vegna fjármagns nái Vegagerðin ekki að sinna viðhaldi eftir þörf. Viðhaldsskuld í íslensku vegakerfi kosti líklega tugi eða hundrað milljarða. Innlent 8.7.2024 11:06
„Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Bóndi í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu lýsir miklum raunum í áratugalangri baráttu við kerfið, en á sem rennur um land hans er upp urin. Hrygningarfiskar í ánni eru flestir dauðir og útlitið er svart. Innlent 6.7.2024 20:52