Meistaradeildin
266 267 268 269 270 271 272 273 274 … 274 ›
Við getum komist komist í úrslit Rafael Benitez, framkvæmdastjóri Liverpool, telur lið sitt nú vera í bílstjórasætinu eftir 0-0 jafntefli gegn Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Stamford Bridge í kvöld. Liðin munu mætast öðru sinni á Anfield á þriðjudaginn eftir viku, með sæti í úrslitaleiknum í húfi, og Benitez telur sína menn geta náð góðum úrslitum í þeim leik. Sport 13.10.2005 19:07
Chelsea og Liverpool skyldu jöfn Chelsea og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik liðana í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Bæði lið fengu færi á að skora mark í kvöld en nýttu ekki tækifærin sín. Eiður Smári lék allan leikinn fyrir Chelsea og átti ágætan fyrri hálfleik, en sást ekki mikið í þeim seinni. Sport 13.10.2005 19:07
Eiður Smári í byrjunarliðinu Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Liverpool í fyrri leik liðana í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Stamford Bridge í kvöld. Eiður mun spila í fremstu víglínu ásamt Didier Drogba en Damien Duff er ekki í hópnum vegna meiðsla. Sport 13.10.2005 19:07
Stam vill ekki vanmeta PSV Hollensi varnarmaðurinn Jaap Stam hjá AC Milan segist þekkja vel til fyrrum félaga sinna í PSV Eindhoven og varar liðsmenn Mílanóliðsins við vanmati á löndum sínum í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í Mílanó í kvöld. Sport 13.10.2005 19:07
Liverpool mætir í Evrópugírnum Mikil eftirvænting ríkir á Englandi fyrir viðureign ensku liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Chelsea er af flestum talið mun sigurstranglegra liðið, ekki síst þegar horft er til þess að Lundúnaliðið hefur unnið alla þrjá leiki liðanna í vetur. Sport 13.10.2005 19:07
PSV ætla að koma á óvart Gus Hiddink, þjálfari PSV Eindoven, segir sýna menn staðráðna í að koma á óvart í Meistaradeildinni í kvöld, þegar þeir sækja AC Milan heim. Sport 13.10.2005 19:07
Liverpool-menn bjartsýnir Rafael Benitez og forráðamenn Liverpool virðast nær öruggir um að liðið vinni Meistaradeildina í ár, ef marka má baráttu þeirra um þessar mundir fyrir því að liðið komist í keppnina að ári ef það vinnur hana í nú, þó svo að það hafni ekki í einu af fjóru efstu sætum ensku deildarinnar. Sport 13.10.2005 19:07
Ancelotti sefur ekki Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan sagðist í gær ekki búast við því að sofa vel í nótt, vegna leiksins við PSV í undanúrslitum meistaradeildarinnar í kvöld og sagði að slíkt ætti eflaust eftir að henda kollega sinn hjá hollenska liðinu. Sport 13.10.2005 19:07
Kewell í hópnum hjá Liverpool Ástralski miðjuleikmaðurinn Harry Kewell hjá Liverpool hefur gefið kost á sér í leikmannahóp Liverpool, sem mætir Chelsea annað kvöld í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Sport 13.10.2005 19:07
Ekki hræddir við Chelsea Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, vill að Mílanóborg hljóti uppreisn æru þegar hans menn mæta PSV Eindhoven í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld, eftir ólætin sem settu blett á leik liðsins í síðustu umferð. Sport 13.10.2005 19:07
Uefa tilkynnir leikstaði Uefa tilkynnti í dag að úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu muni fara fram á The Stade de France í París á næsta ári og úrslitaleikur Uefa keppninnar í Eindhoven. Árið 2007 mun Aþena hýsa úrslitaleik Meistaradeildarinnar á meðan úrslitaleikur Uefa keppninnar sama ár mun fara fram á Hampden Park í Glasgow. Sport 13.10.2005 19:05
Aldrei neitt gert á Ítalíu Roberto Mancini knattspyrnustjóri Inter Milan er hoppandi fúll út í UEFA vegna refsingar þeirrar sem félagið var úrskurðuð í gær föstudag vegna ólátanna á Meistaradeildarleiknum gegn AC Milan í vikunni. Inter var dæmt til að leika næstu 4 heimaleiki sína í Evrópukeppni fyrir luktum dyrum. "<em>Við getum og ættum að gera eitthvað en aldrei er nokkurn tímann gert á Ítalíu</em>." Sport 13.10.2005 19:04
Inter sleppur vel Lið Inter Milan á Ítalíu sleppur með ótrúlega væga refsingu eftir ólætin í stuðningsmönnum liðsins í leiknum við grannaliðið AC Milan í Meistaradeildinni á dögunum. Sport 13.10.2005 19:04
Capello: Liverpool voru frábærir Framkvæmdastjóri Juventus, Ítalinn Fabio Capello, viðurkenndi í gær að lið hans hefði ekki haft nein svör við varnarleik Liverpool í leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi, en leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Liverpool vann fyrri leikinn á Anfield 2-1 og komst því áfram í undanúrslitin. Sport 13.10.2005 19:03
Chelsea reynslunni ríkari Eiður Smári Guðjohnsen segir í viðtali við enska blaðið <em>The Sun</em> í morgun að Chelsea hafi lært sína lexíu í undanúrslitum Meistaradeildarinnar fyrir ári síðan þegar Mónakó sló Chelsea út. Hann segist ekki vilja upplifa þau vonbrigði aftur. Sport 13.10.2005 19:03
Cisse er á bekknum hjá Liverpool Djibril Cisse er kominn í leikmannahóp Liverpool í fyrsta sinn síðan í haust þegar hann fótbrotnaði en hann er á varamannabekk liðsins sem mætir Juventus í síðari viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar nú kl. 18.45. Einnig vekur athygli að markvörðuinn Jerzy Dudek er í byrjunarliðinu. Nú skömmu fyrir leikinn voru 50 stuðningsmenn Juventus handteknir fyrir utan Delle Alpi. Sport 13.10.2005 19:03
Hálfleikstölur í Meistaradeildinni Aðeins eitt mark hefur verið skorað þegar hálfleikur stendur yfir í leikjum kvöldsins í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Sylvain Wiltord skoraði á 10. mínútu mark Lyon sem er 1-0 yfir gegn PSV Eindhoven. Fyrri leik liðanna lauk 1-1. Staðan hjá Juventus og Liverpool er 0-0 í hálfleik. Sport 13.10.2005 19:03
Heitt í kolunum í Tórínó Stuðningsmenn Juventus og Liverpool tóku forskot á sæluna fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni með því að fljúgast á í knæpu í gærkvöldi. Sport 13.10.2005 19:03
PSV í undanúrslitin PSV Eindhoven sló Lyon út í vítaspyrnukeppni í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu í kvöld, 4-2 og er komið í undanúrslitin þar sem hollenska liðið mætir AC Milan eftir 2 vikur. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 en fyrri leik liðanna í Frakklandi í síðustu viku lauk með sömu úrslitum. Ekkert var skorað í framlengingunni. Sport 13.10.2005 19:03
Inter í vondum málum Knattspyrnulið Inter Milan á yfir höfði sér harða refsingu eftir að stuðningsmenn liðsins urðu til þess að dómari þurfti að flauta leik þeirra við grannaliðið AC Milan af í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Sport 13.10.2005 19:03
Tekið á ofbeldi á vellinum Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hvatti til þess í dag að tekið yrði á ofbeldi á knattspyrnuleikjum eftir að flauta varð leik Inter Milan og AC Milan af í gærkvöldi vegna mikilla óláta og blysa og flugelda sem fleygt var inn á völlinn, meðal annars í markvörð AC Milan. Sport 13.10.2005 19:03
3-0 tap vegna fótboltabullna Ítalska knattspyrnusambandið hefur nú þegar tekið fyrsta skrefið í áttina að hertri meðferð gegn knattspyrnubullum þar í landi í kjölfar ólátanna á leik AC Milan og Inter Milan á San Siro í gærkvöldi. Héðan í frá verður engin miskunn hjá Magnúsi hjá ítalska sambandinu sem hefur boðað róttækar aðgerðir. Sport 13.10.2005 19:03
Lyon yfir gegn PSV Franska liðið Lyon er komið yfir á útivelli 0-1, gegn PSV Eindhoven í síðari leik liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en leikurinn fer fram í Hollandi. Fyrrum Arsenal sóknarmaðurinn Sylvain Wiltord skoraði markið á 10. mínútu. Ennþá er 0-0 hjá Juventus og Liverpool. Sport 13.10.2005 19:03
Lampard ánægður Frank Lampard, leikmaður Chelsea, var ánægður með sína menn eftir leikinn við Bayern Munchen í gær. Þrátt fyrir að tapa leiknum 3-2 í Munchen, er Chelsea komið áfram í undanúrslitin í Meistaradeildinni eftir að hafa unnið fyrri leik liðanna á Englandi 4-2. Sport 13.10.2005 19:03
PSV hefur jafnað gegn Lyon Alex da Dias Costa hefur jafnað metin fyrir PSV Eindhoven gegn Lyon í Meistaradeildinni og er staðan í leik liðanna orðin 1-1. Markið kom á 66. mínútu en Sylvain Wiltord hafði komið Lypon yfir á 10. mínútu. Verði þetta úrslit leiksins þarf að framlengja hann þar sem fyrri leik liðanna lauk einnig 1-1. Sport 13.10.2005 19:03
Liverpool sló út Juventus Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn með því að slá út Juventus en liðin gerðu markalaust jafntefli á Delle Alpi heimavelli Juve. Samtals vinnur Liverpool rimmuna 2-1 eftir sigur í fyrri leik liðanna fyrir viku. Leikur PSV Eindhoven og Lyon er farinn í framlengingu en honum lauk 1-1, eins og fyrri leik liðanna. Sport 13.10.2005 19:03
Meistaradeildin í kvöld Leik Juventus og Liverpool í Meistaradeild Evrópu í kvöld er beðið með mikilli eftirvæntingu, ekki síst vegna þeirrar spennu sem byggst hefur upp meðal stuðningsmanna liðanna. Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 18:30. Sport 13.10.2005 19:03
Chelsea í undanúrslitin Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Chelsea tapaði 3-2 gegn Bayern Munchen í kvöld í þýskalandi en unnu samanlagt 6-5 og mæta annað hvort Juventus eða Liverpool í undanúrslitunum. Sport 13.10.2005 19:03
Bayern búið að jafna Bayern Munchen var rétt í þessu að jafna leikinn gegn Chelsea. Bayern fékk aukaspyrnu sem hitti beint á kollinn á Michael Ballack sem átti góðan skalla sem Cech varði frábærlega í stöngina og þaðan út í teig. Þar var Claudio Pizarro einn og óvaldaður og setti boltann í netið nánast af marklínu. Bayern þarf nú tvö mörk á 25 mínútum til að komast áfram í keppninni. Sport 13.10.2005 19:03
Kallaður í hópinn hjá Liverpool Franski framherjinn Djibril Cisse hefur mjög óvænt verið kallaður inn í leikmannahóp Liverpool fyrir síðari leik liðsins við Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sport 13.10.2005 19:03