Formúla 1
93 94 95 96 97 98 99 100 101 … 101 ›
Schumacher hefur ekki áhyggjur af framtíðinni Ævisaga Michael Schumacher kemur í bókahillur á næstu dögum og ber einfaldlega heitið "Schumacher". Sjöfaldur heimsmeistarinn segist ekki óttast aðgerðaleysi í framtíðinni þó hann sé hættur að keppa og flestir reikna með að hann setjist við hlið Jean Todt hjá Ferrari og sinni starfi ráðgjafa liðsins. Formúla 1 22.11.2006 14:57
Montoya ók á vegg Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Montoya, sem áður ók með McLaren í Formúlu 1, slapp ómeiddur á sunnudaginn þegar hann ók Nascar-bíl sínum á vegg í keppni í Miami. Jimmy Johnson tryggði sér meistaratitilinn með því að hafna í 9. sæti í keppninni og hafði betur í einvígi sínu við Matt Kenseth. Formúla 1 21.11.2006 17:21
Mosley segir of mörg mót í Evrópu Max Mosley, forseti Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, segir að fjölga verði mótum í Formúlu 1 í allt að 20 ef keppni verði ekki hætt í fleiri mótum Evrópu. Mosley segir of mörg mót vera haldin í Evrópu og segir restina af heimsbyggðinni þurfa að fá stærri sneið af kökunni. Formúla 1 16.11.2006 18:01
Mika Hakkinen ekur ekki fyrir McLaren Forráðamenn McLaren-liðsins í Formúlu 1 hafa neitað því að liðið sé að reyna að lokka fyrrum heimsmeistarann Mika Hakkinen aftur til keppni til að aka við hlið heimsmeistarans Fernando Alonso á næsta tímabili. Formúla 1 16.11.2006 17:18
Klien ekur hjá Honda Austurríkismaðurinn Christian Klien verður vara- og æfingaökumaður Honda-liðsins í Formúlu 1 á næsta tímabili samkvæmt fréttatilkynningu frá liðinu í dag. Klien ók með Jaguar árið 2004 og ók fyrir Red Bull á síðasta ári. Hann verður varaökumaður fyrir þá Jenson Button og Rubens Barrichello hjá enska liðinu á næsta keppnistímabili. Klien leysir Anthony Davidson af hómi, en sá fékk sæti í liði Super Aguri í gær. Formúla 1 16.11.2006 17:14
Davidson ekur fyrir Super Aguri Breski ökuþórinn Anthony Davidson verður ökumaður japanska Super Aguri liðsins í Formúlu 1 á næsta ári ásamt Takuma Sato. Davidson hefur verið æfingaökumaður fyrir BAR/Honda síðustu þrjú ár, en fær nú tækifæri til að reyna sig fyrir alvöru á meðal þeirra bestu. Hann á að baki tvær keppnir sem aðalökumaður með liði Minardi árið 2002 og eina með Honda á síðasta tímabili. Formúla 1 15.11.2006 16:56
McLaren bílarnir verða í speglinum hjá mér á næsta ári Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen, sem nú er genginn í raðir Ferrari þar sem honum verður ætlað að fylla skarð Michael Schumacher, segir að samningur hans við liðið verði hugsanlega síðasti samningurinn sem hann skrifar undir á ferlinum. Formúla 1 14.11.2006 16:42
Ecclestone veldur titringi á Silverstone Formúlumógúlnum Bernie Ecclestone er ekkert heilagt þegar kemur að því að auka veg og virðingu íþróttarinnar og nú hefur hann valdið mótshöldurum breska kappakstursins á Silverstone hugarangri með framtíðaráformum sínum. Formúla 1 9.11.2006 20:34
Ferrari vill halda Schumacher í vinnu Forráðamenn Ferrari vilja ólmir halda í sjöfaldan heimsmeistara Michael Schumacher þó hann hafi lagt stýrið á hilluna á dögunum og er Schumacher nú með tilboð í höndunum um að gerast aðstoðarmaður Jean Todt liðsstjóra. Þjóðverjinn er sagður ætla að hugsa málið í nokkrar vikur áður en hann tekur ákvörðun um framhaldið. Formúla 1 8.11.2006 19:49
Alonso kveður Renault Heimsmeistarinn Fernando Alonso fór í kveðjutúr um verksmiðjur Renault á Englandi um helgina en hann gengur til liðs við McClaren fyrir næsta tímabil. Alonso kvaddi starfsmenn Renault með þökkum og óskaði þeim sigurs í öllum keppnum sem hann á annað borð sigraði ekki í sjálfur. Formúla 1 1.11.2006 15:50
Sonur Schumacher efnilegur Þýska dagblaðið Express í Cologne segir að þó nú sé aðeins einn Schumacher að keppa í Formúlu 1, gæti það átt eftir að breytast í framtíðinni því sjö ára gamall sonur Michael Schumacher sé mikið efni. Formúla 1 25.10.2006 17:57
Massa ætlar ekki að gera Raikkönen neina greiða Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari hefur sent verðandi félaga sínum Kimi Raikkönen og öðrum keppinautum sínum aðvörun fyrir næsta keppnistímabil og ætlar sér stóra hluti. Formúla 1 24.10.2006 19:28
Nóg að vinna einn titil í viðbót Heimsmeistarinn Fernando Alonso segist sáttur geta lagt stýrið á hilluna ef hann nær að vinna einn titil í viðbót og jafna þar með árangur Brasilíumannsins Ayrton Senna. Hinn 25 ára gamli Spánverji varð um helgina heimsmeistari annað árið í röð. Formúla 1 24.10.2006 17:10
Schumacher er besti ökumaður allra tíma Michael Schumacher er besti ökumaður í sögu Formúlu 1 að mati þeirra Niki Lauda og David Coulthard, en þýski ökuþórinn lagði stýrið á hilluna eftir Brasilíukappaksturinn á sunnudaginn. Formúla 1 24.10.2006 16:54
Schumacher sallarólegur Michael Schumacher segist halda til Brasilíukappakstursins með sama hugarfari og áður, þrátt fyrir að þar verði um að ræða síðustu keppni hans sem ökumanns í Formúlu 1. Hann segist fullkomlega sáttur við að leggja stýrið á hilluna eftir glæstan feril. Sport 19.10.2006 19:34
Ég hefði aldrei átt að fara til Williams Íslandsvinurinn Mark Webber í Formúlu 1 hefur viðurkennt að hann hafi gert stór mistök þegar hann ákvað að ganga til liðs við Williams liðið á sínum tíma, en hann ekur í síðasta sinn fyrir liðið í Brasilíu um helgina og gengur þá í raðir Red Bull. Sport 19.10.2006 17:23
Vöxtur Ferrari er helsta afrek Schumacher Fyrrum þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Sir Jackie Stewart, segir að sjö heimsmeistaratitlar séu ekki merkasta afrek Michael Schumacher í Formúlu 1 - heldur sú staðreynd að hann eigi stærstan þátt í að gera lið Ferrari að því stórveldi sem það er í dag. Formúla 1 18.10.2006 14:45
Renault á ekki von á bellibrögðum Ferrari Flavio Briatore, liðsstjóri Renault í Formúlu 1, segist ekki eiga von á því að lið Ferrari beiti bellibrögðum í síðustu keppni ársins í Brasilíu um næstu helgi, en þar þarf heimsmeistarinn Fernando Alonso aðeins eitt stig til að verja titilinn. Formúla 1 16.10.2006 20:08
Aftur keppt á Spa á næsta ári Forráðamenn Belgíukappakstursins hafa náð samkomulagi við Bernie Ecclestone um að endurvekja keppnishald á Spa-brautinni þar í landi, en ekki var keppt á brautinni í ár eftir að mótshaldarar fóru á hausinn. Brautin hefur verið endurbætt fyrir um 25 milljónir dollara og verður keppt á þessari sögufrægu braut á ný í september á næsta ári. Formúla 1 13.10.2006 17:47
Schumacher heiðraður í Brasilíu Þýski ökuþórinn Michael Schumacher tekur um næstu helgi þátt í sínum síðasta kappakstri á ferlinum þegar lokamót ársins fer fram í Brasilíu og þar verður hann heiðraður sérstaklega af knattspyrnugoðsögninni Pele. Formúla 1 13.10.2006 16:24
Alonso á sigurinn vísan Allar líkur eru á því að Spánverjinn Fernando Alonso muni verja heimsmeistaratitil ökumanna eftir að hafa borið sigur úr býtum í Japans-kappakstrinum í fyrrinótt. Michael Schumacher féll úr keppni eftir vélin í Ferrari-bíl hans bræddi úr sér, en það er í fyrsta skipti í sex ár sem það gerist. Alonso er því með 10 stiga forystu á Scumacher í keppni ökumanna þegar aðeins eitt mót er eftir, í Brasilíu eftir tvær vikur. Formúla 1 8.10.2006 20:19
Schumacher í mun betri stöðu Michael Schumacher verður annar á ráslínu, á eftir félaga sínum Felipe Massa hjá Ferrari, þegar ræst verður til leiks í kappakstrinum í Japan í dag. Heimsmeistarinn Fernando Alonso náði aðeins fimmta sæti í tímatökunni og því ljóst að Schumacher er skrefinu á undan í baráttunni um titilinn í ár. Formúla 1 7.10.2006 21:19
Schumacher er yfir í sálfræðistríðinu Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Damon Hill, segir hinn sigursæla Michael Schumacher ekki hafa verið íþróttinni til mikils sóma á ferlinum, en þykist nokkuð viss um að hann muni enda ferilinn á meistaratitli. Formúla 1 6.10.2006 15:08
Við höfum engar afsakanir Pat Symonds, liðsmaður Renault, segir liðið ekki hafa neinar afsakanir fyrir því að hafa tapað Kínakappakstrinum í dag og segir að liðið hefði átt að vinna keppnina. Formúla 1 1.10.2006 14:19
Schumacher á toppinn Þýski ökuþórinn Michael Schumacher er kominn í efsta sætið í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1 í fyrsta skipti í tvö ár eftir að hann vann frábæran sigur í Kínakappakstrinum í dag. Heimsmeistarinn Fernando Alonso hafnaði í öðru sæti í dag og eru þeir því jafnir að stigum þegar tvö mót eru eftir, en fleiri sigrar Þjóðverjans tryggja honum efsta sætið. Formúla 1 1.10.2006 13:08
Alonso á ráspól í Kína Heimsmeistarinn Fernando Alonso verður á ráspól í Kínakappakstrinum á morgun eftir að hafa náð besta tímanum í tímatökum í morgun. Michael Schumacher varð að láta sér lynda sjötta sætið, en hann átti erfitt uppdráttar í rigningunni í Shanghai í dag. Giancarlo Fisichella náði öðrum besta tímanum og Honda mennirnir Jenson Button og Rubens Barrichello náðu þriðja og fjórða besta tímanum. Formúla 1 30.9.2006 13:35
Allt í járnum í Kína Það er ekki laust við að spennan sé að verða óbærileg í Shanghai í Kína þar sem æfingar standa nú yfir fyrir Kínakappaksturinn í Formúlu 1 um helgina. Keppinautarnir um heimsmeistaratitil ökumanna, Fernando Alonso og Michael Schumacher, komu í mark á nánast nákvæmlega sama tíma í dag. Formúla 1 29.9.2006 13:23
Þýsku brautirnar skipta með sér keppnum Nú hefur verið tilkynnt að þýsku kappakstursbrautirnar Nurburgring og Hockenheim muni skipta með sér mótshaldi í Formúlu 1 næstu fjögur árin. Þetta þýðir að keppnin á næsta ári fer fram á Nurburgring og svo aftur árið 2009, en 2008 og 2010 verður Þýskalandskappaksturinn haldinn á Hockenheim. Formúla 1 27.9.2006 15:48
Schumacher er fjórum sinnum vinsælli en Alonso Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er fjórum sinnum vinsælli meðal áhugamanna í greininni en heimsmeistarinn Fernando Alonso. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Alþjóða Akstursíþróttasambandið lét gera á dögunum. Formúla 1 27.9.2006 15:32
Renault segir pressuna mikla á Schumacher Pat Symonds, yfirmaður tæknimála hjá Renault, segir að Fernando Alonso standist pressu betur en Michael Schumacher og telur meistaralið Renault eiga betri möguleika til að ná góðum árangir um næstu helgi þegar keppt verður í Kína. Formúla 1 26.9.2006 15:29